Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hjalti í Vantrú skólar séra Sindra í guðfræði: „Jesú var duglegur að beita fólk trúarlegu ofbeldi“

Hjalti í Vantrú skólar séra Sindra í guðfræði: „Jesú var duglegur að beita fólk trúarlegu ofbeldi“
Séra Sindri Geir Ósk­ars­son

Vantrú, sem er félag trú­leys­ingja, blandar sér í umræð­una um orð Davíðs Þórs Jóns­sonar sókn­ar­prests í Laug­ar­nes­kirkju í garð stjórn­mála­manna vegna söl­unnar á hlut í Íslands­banka með grein á heima­síðu sinni, van­tru.is.

Séra Davíð Þór Jónsson

En meðal þess sem Davíð sagði er þetta:

„Þinglið og ráð­herr­ar VG eru ekki leng­ur bara með­sek um glæpi þess­ar­ar rík­is­stjórn­ar gegn mannúð og góðu sið­ferði, þau eru ein­fald­lega sek eins og synd­in. Það er sér­stak­ur staður í hel­víti fyr­ir fólk sem sel­ur sál sína fyr­ir völd og veg­tyll­ur.“

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup

Vegna þess­ara orða Davíðs Þórs sá Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup, ástæðu til að veita Davíð Þór áminn­ingu í starfi, og hefur sú ákvörðun fallið í frekar grýttan jarð­veg. En það er annað mál.

En nú um grein­ina sem Vantrú birti á heima­síðu sinni og er eftir Hjalta Rúnar Ómarsson.

„Vegna nýlegra ummæla prests­ins Davíðs Þórs Jóns­sonar, þar sem hann sagði sér­stakan stað vera tilb úinn ákveðnu stjórn­mála­fólki, hefur hel­víti komið aftur upp í umræð­una. Af því til­efni skrif­aði annar prestur, Sindri Geir, (Sindri Geir Ósk­ars­son sókn­ar­prestur í Gler­ár­kirkju á Akureyri) grein þar sem hann kemur með vafa­samar full­yrð­ingar um hel­víti,“ ritar Hjalti Rúnar Ómarsson félagi í Vantrú undir yfir­skrift­inni Helvítið hans Jesú og bætir við:

„Gyðingar trúðu upp­haf­lega ekki á til­vist hel­vítis. Þess vegna er hvergi á það minnst í eldri ritum bibl­í­unnar. Það var ekki fyrr en nokkru fyrir tíma Jesú að margir gyð­ingar fóru að trúa á ein­hvers konar stað þar sem vondu fólki yrði refsað í eldi við heimsendi. Oft er talið að þetta séu áhrif frá trú­ar­brögðum Persa. Þetta sést í þeim bókum sem var bætt í nýju Bibl­íu­þýð­ing­unni, sem eru yngri en Gamla testa­mentið. í Júd­ít­ar­bók er til dæmis sagt að á dóms­degi mun Jahve senda „eld og orma í lík­ama“ hinna for­dæmdu og þeir munu „veina af af kvöl um eilífð“ (16.17).“

Bætir við að „gyð­inga­rit frá þeim tíma sem kristni varð til fjalla líka um þennan stað; til dæmis 1. Enoksbók, sum Dauða­hafs­hand­rit­anna og 4. Makka­bea­bók [1].

Gyð­ing­ur­inn og sagna­rit­ar­inn Jósefus, sem skrif­aði á 1. öld, tal­aði um að farísear trúðu því að í jörð­inni yrði eilíft fang­elsi þar sem hinum illu yrði refsað, og að annar trúflokkur Gyðingar, Essenar, trúði því sama og líkti því við hug­myndir Grikkja um kval­ar­staði í und­ir­heimunum.“

Jesús

Og þá kemur að Jesú sjálfum:

„Þegar Jesús talar um hel­víti, sem hann segir að sé eilífur eldur sem lík­ömum fólks verður kastað í af englum á dóms­degi, þá er hann að öllum lík­indum að tala um þetta. Svona hug­myndir eru síðan ríkj­andi í ritum kirkju­feðr­anna, fyrstu kristnu höf­und­anna sem við höfum rit frá. Sem dæmi þá segja Ter­túll­í­anus og Klemens frá Alex­andríu að hel­víti ætti ekki að vera fram­andi hug­mynd fyrir heiðna Grikki, þar sem Grikkir trúðu því að það væri eld­fljót í þeim hluta Hadesar, und­ir­heims­ins, þar sem mjög illt fólk end­aði.[2]“

Hann segir að „Jesús og kirkju­feð­urnir voru forn­ald­ar­menn, og þeir trúðu ýmsu sem okkur nútíma­mönnum þykir fárán­legt og jafn­vel ógeðs­legt. Helvíti sem elds­díki þar sem sumt fólk myndi þurfa að dúsa í er ein­fald­lega ein þess­ara forn­ald­ar­hug­mynda,“ og bætir svo við að „Sindri Geir, eins og margir kristnir sem trúa ekki á hel­víti, vill ekki eigna Jesú eða Bibl­í­unni hug­myndir um hel­víti; hann vill til­einka ítalska rit­höf­und­inum Dante það að við séum kunnug þessum hug­myndum; staður vít­isloga og refs­ingar sem við lærum um í gegnum bíó­myndir og dæg­ur­menn­ingu á rætur sínar í skáld­skap Dantes en ekki Bibl­í­unni.“

Eitt af fjölda­mörgum mál­verkum sem byggja á hel­vít­inu hans Dante

Hjalti Rúnar færir það í tal að „stað­reyndin er að staður vít­isloga og refs­inga á rætur sínar í gyð­ing­dómi forn­aldar og fór þaðan til kristni. Að hel­víti væri staður vít­isloga og refs­inga er alls ekki upp­finn­ing Dante, né eitt­hvað sem hann gerði vin­sælt. Þetta var almenn trú á hans tíma og hafði verið í þús­und ár. Jafnvel bók­mennta­form Infernos Dantes á sér hlið­stæðu í frum­kristni: Opin­ber­un­ar­bók Péturs. Það er rit frá 2. öld þar sem Pétur fær að sjá Helvíti og hinar ýmsu refs­ingar sem fólk mun eiga í vændum þar. Ritið var svo vin­sælt að það var meira að segja talið hluti af Nýja Testa­ment­inu af sumu kristnu fólki.“

Hann kemur inn á það að „næst segir Sindri Geir að hel­víti hafi verið til­bún­ingur „kirkj­unnar“ í kringum árið 500, en að það hafi ekki verið „hluti af boð­skap kirkj­unnar fyrstu árhund­ruðin en þegar róm­ar­kirkjan varð vald­hafi þurfti hún stjórn­un­ar­tæki, og það trú­ar­lega ofbeldi að þykj­ast hafa sál­ar­heill fólk í hendi sinni.“

Justinus písl­ar­vottur (100 -165)

„Þetta er ein­fald­lega rangt,“ segir Hjalti Rúnar og bendir á að „þá töl­uðu kirkju­feð­urnir um hel­víti löngu áður en kristni varð að nokk­urs konar rík­is­trú­ar­brögðum. Sem dæmi sagði Jústínus písl­ar­vottur (eins og nafnið gefur til kynna þá var kristni ekki vald­hafi á þessum tíma – hann var tek­inn af lífi fyrir trú sína á 2. öld) að hel­víti væri „staður þar sem þeim sem hafa lifað illa og hafa ekki trúað því sem guð kenndi í gegnum Jesú að yrði verður refsað“ (kafli 19).

Sindri Geir vill auk þess alls ekki kann­ast við það að Jesús hafi boðað nokk­urs konar hel­víti í ætt við það hel­víti sem ætla mætti af sögu­legu sam­hengi Jesú. Hann segir að Jesús hafi ekki verið að vísa til „ein­hvers veru­leika í eft­ir­líf­inu, heldur til þeirrar mann­gerðu þján­ingar sem við sköpum í lífi sam­ferða­fólks­ins dag hvern.“

Og Hjalti Rúnar bætir þessu við orð sín:

„Til að byrja með passar þessi hug­mynd um hel­víti sem ein­hvers konar almennt „slæmt ástand í líf­inu núna“ engan veg­inn við það hvernig orðið var notað af sam­tíma­mönnum hans. Auk þess passar hug­myndin ekki við það hvernig Jesús talar um hel­víti í guð­spjöll­unum. Jesús segir að hel­víti sé staður þar sem guð­inn hans kastar fólki í eftir að það deyr (Lúk 12.5-6). Jesús segir á öðrum stað að „við endi ver­aldar“ muni hann senda engla sína og safna öllum þeim sem rang­læti fremja og kasta þeim í eldsofn­inn (Matt 13.40-42).

Málverk af hinum fjórum reið­mönnum dóms­dags

Á öðrum stað fjallar hann um dóms­dag; þar sem mann­kynið mun standa frammi fyrir guði og þar verður mann­kyn­inu skipt í tvennt: Annars vegar til eilífs lífs, og hins vegar „í þann eilífa eld, sem búinn er djöfl­inum og árum hans“ sem hann kallar svo „eilífa refs­ingu“ (Matt 25.31-46).“

Samkvæmt orðum Hjalta Rúnars „talar Jesús svo bein­línis um að „lík­ömum“ fólks verður kastað í hel­víti (Matt 5.30). Þetta passar engan veg­inn við hel­víti sem eitt­hvað í lík­ingu við „slæmir hlutir í líf­inu“ – en passar full­kom­lega við ríkj­andi hug­myndir á þessum tíma um hel­víti sem kvala­stað elds þar sem illu fólki yrði refsað á dóms­degi.

Það er því hreinn hug­ar­burður að segja að Jesús hafi verið að tala um hel­víti sem „mann­gerðu þján­ingar sem við sköpum í lífi sam­ferða­fólks­ins dag hvern.“

Og líka þetta:

„Sindri Geir reynir samt að útskýra þetta eld­tal Jesú, og segir rétti­lega að eitt gríska orðið sem oft er þýtt í íslensku sem „hel­víti“ (gríska geenna, Gehenna) – hafi upp­haf­lega vísað til dals fyrir utan Jer­úsalem. Það er rétt. En Sindri Geir bætir síðan við því að á „dögum Jesú voru þar log­andi rusla­haugar þangað sem líkum þeirra sem stóðu á jaðri sam­fé­lags­ins var varpað og þau brennd.“ Þetta er útbreidd helgi­sögn og raunin er að elsta heim­ildin um að Gehenna hafi verið brenn­andi rusla­haugur er frá 13. öld. Rétt fyrir tíma Dante. Þetta er í riti fransks rabbína, Kimhi nokk­urs. Það er ekki einn ein­asti staf­krókur um þessa hug­mynd fyrir þann tíma og engar forn­leifar sem styðja þetta. Þetta er til­bún­ingur nán­ast frá síð­mið­öldum.“

Hjalti Rúnar segir að „loks vill Sindri ekki að Þjóð­kirkjan beiti fólki því „trú­ar­legu ofbeldi“ sem felst í trú á hel­víti. Það er vel hægt að vera sam­mála því. En það er stór galli á þess­ari hug­mynd Sindra Geirs: Jesú var dug­legur að beita fólki svona trú­ar­legu ofbeldi. Jesús hót­aði þeim trú­ar­leið­togum sem voru ósam­mála honum með hel­víti:

„Högg­ormar og nöðru kyn, hvernig fáið þér umflúið hel­vít­is­dóm?“ (Matt 23.33).

Einnig að „Jesús hót­aði meira að segja heilu borg­unum með hel­víti og sagði að Sódóma myndi vegna betur á dóms­degi en þeim (Matt 11.22-24). Jesús sagði að ef maður fyr­ir­gefði fólki ekki þá myndi guð­inn hans ekki heldur fyr­ir­gefa fólki heldur senda það í hel­víti, sem hann líkti við því að vera hent í dýflissu til að verða pynt­aður (Matt 18.34-35).“

Spyr einnig:

„Af hverju ætti Þjóð­kirkjan ekki að beita þessu „trú­ar­lega ofbeldi“ þegar Jesús sjálfur gerði það? Það er auð­vitað fínt að Sindri Geir trúi ekki á hel­víti, að minnsta kosti að hann sé búinn að útvatna það í eitt­hvað sem eng­inn í frum­kristni myndi kann­ast við. En hann ætti samt að gera það án þess að mistúlka sögu kristn­innar og texta Nýja Testa­ment­is­ins. Gyðingar og kristnir menn í fornöld trúðu á hel­víti – og í guð­spjöll­unum er sagt að forn­ald­ar­mað­ur­inn Jesús hafi boðað trú á hel­víti.

Ef Sindri Geir vill afneita hel­víti ætti hann bara að segja að hann sé ósam­mála þessum textum í stað­inn fyrir að reyna að troða nútíma­skiln­ingi sínum á fólk sem hefði ekki haft hug­mynd um hvað hann er að tala um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við