Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Líf tísti um Davíð Þór og eyddi svo: „Davíð Þór… er mjög triggeruð – Ég þekki svona ofbeldismenn“

Líf tísti um Davíð Þór og eyddi svo: „Davíð Þór… er mjög triggeruð – Ég þekki svona ofbeldismenn“
Líf Magneu­dóttir. Mynd: Sigtryggur Ari

Borg­ar­full­trúi VG, Líf Magneu­dóttir, lét í sér heyra á sam­fé­lags­miðli með nokkrum látum – en eyddi síðan færsl­unni, sem var svona:

„Davíð Þór… er mjög trig­geruð. Ég þekki svona ofbeld­is­menn, hef elskað þá og búið með þeim og skilið við þá. Megi þeir finna frið í sál­inni,“ skrif­aði Líf í gær.

Nú hefur Líf beðist afsök­unar á þessum skrifum sínum og til­efni eyðslu færsl­unnar virð­ast vera það sem Davíð Þór sagði í við­tali mogg­ann; ummæli sem komu mjög illa út, og Davíð Þór hefur fetað sömu slóð og Líf gerði; hann baðst afsök­unar.

Séra Davíð Þór Jónsson

Mögulega er upp­hafið að þessum skeyta­send­ingum í nei­kvæðum tón séu harka­leg orð sem Davíð Þór við­hafði um rík­is­stjórn­ina vegna stefnu hennar í mál­efnum flótta­manna, en eins og kunn­ugt er stendur til að vísa um 300 útlend­ingum úr landi á næst­unni.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra vill senda 300 útlend­inga úr landi og á göt­una í Grikk­landi

Í Facebook-færslu sinni sagði Davíð Þór meðal ann­ars að það væri til sér­stakur staður í hel­víti fyrir fólk sem seldi sálu sína fyrir völd; og upp­skar áminn­ingu frá bisk­upi vegna ummæl­anna. Síðan þá hafa fjöl­margir komið Davíð Þór til varnar; sagt hann hafa haft fullt til­efni til skrif­anna.

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup áminnti séra Davíð Þór vegna ummæla sinna

Í kringum allt þetta havarí hefur það verið dregið fram í dags­ljósið að Davíð Þór og Katrín Jak­obs­dóttir voru í sam­búð í mörg ár. Davíð Þór ræddi málið í við­tali við mogg­ann, og um  ást­ar­sam­band hans við for­sæt­is­ráð­herra:

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

„Umræðan ætti að snú­ast um það hvernig við sem sam­fé­lag kom­um fram við okk­ar minnstu bræður og syst­ur. Ef að ein­hverj­um finnst að sú umræða eigi að snú­ast um það hvernig til­finn­inga­lífi mínu var háttað fyr­ir tutt­ugu árum þá vit­um við hversu stór sál­in í því fólki er. Þar fyrir utan þá bjó ég aldrei með for­sæt­is­ráð­herra Íslands; það var allt önnur mann­eskja.“

Eftir þessi ummæli sá Davíð Þór ástæðu til að biðj­ast afsök­unar:

„Mig langar að biðj­ast afsök­unar á orðum sem höfð eru eftir mér á mbl.is. Blaða­maður hringdi í mig þar sem ég var önnum kaf­inn við að koma börnum mínum í hátt­inn. Við töl­uðum saman í tvær mín­útur. Í lok spjalls­ins fékk ég spurn­ingu sem ég taldi ekki koma mál­inu neitt við og lét eina van­hugs­aða setn­ingu falla í kjöl­farið. Auðvitað var henni slegið upp í fyr­ir­sögn en ekki það sem ég lagði áherslu á í okkar stutta spjalli að ætti að vera það sem málið sner­ist um. Ég iðr­ast þess­ara orða og tek þau hér með aftur. Umræðan á ekki að snú­ast um per­sónur, en ég lét blaða­mann­inn slá mig út af lag­inu og niður á það plan.“

Ekki er loku fyrir það skotið að þessi ummæli hafi verið til­efni skrifa Lífar um Davíð Þór í gær.

Og nú hefur Líf líka beðið afsök­unar á orðum sínum um Davíð Þór:

„Eyddi tísti sem var mjög illa tíma­sett … biðst afsök­unar á því.“

Þá kemur upp sú pæl­ing sem vef­ur­inn DV veltir fyrir sér lok greinar sinnar um þetta sama mál:

„Sú spurn­ing vaknar hvort allar tíma­setn­ingar séu ekki slæmar fyrir það að full­yrða að Davíð Þór Jónsson sé ofbeld­is­maður“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina