Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Segir vanda SÁÁ mikinn: „Ný stjórn virðist hafa beitt einhverjum brellum við rekstur samtakanna“

Segir vanda SÁÁ mikinn: „Ný stjórn virðist hafa beitt einhverjum brellum við rekstur samtakanna“
Svanur Guð­munds­son

„Fyrir tveimur árum var kosin ný stjórn yfir Samtök áhuga­fólks um áfengis- og vímu­efna­vand­ann (SÁÁ). Síðan hefur sigið á ógæfu­hlið­ina hjá sam­tök­unum sem sést meðal ann­ars á því að samn­ings­brot SÁÁ er nú til skoð­unar hjá Hér­að­sak­sókn­ara og Land­lækni,“ segir Svanur Guð­munds­son með­limur í SÁÁ ogbætir við:

„SÁÁ hefur á liðnum árum náð miklum árangri við með­ferð á áfeng­is­sýki í gegnum starf­semi sinni þrátt fyrir tak­mörkuð fjár­fram­lög frá hinu opin­bera. Stór hluti starf­sem­innar hefur verið fjár­magn­aður með sjálfsaflafé og tekið hefur verið við mun fleiri sjúk­lingum en ríkið er til­búið að greiða með. Þegar Covid19 far­ald­ur­inn gekk yfir fjölg­aði veru­lega sjúk­lingum en lokað var fyrir mögu­leika á álfasölu sem tak­mark­aði mikið tekjur sam­tak­anna. Það kall­aði á upp­sagnir starfs­fólks þar sem ríkið var ekki til­búið til að bæta SÁÁ tekju­skerð­ing­una og koma með aukið fjár­magn.“

Svanur nefnir að „núna hefur komið í ljós að ný stjórn virð­ist hafa beitt ein­hverjum brellum við rekstur sam­tak­anna. Í bréfi Sjúkra­trygg­inga Íslands (SÍ) frá 4. júní 2021 er SÁÁ krafið um greiðslu 36 millj­óna vegna rangra reikn­inga. Formaður SÁÁ upp­lýsti ekki rekstr­ar­fé­lag SÁÁ um bréfið á sínum tíma og taldi lík­lega það vera einka­bréf til sín. Í áfram­haldi af því bréfi og að SÍ fékk ekki þau gögn sem beðið var um nýtti SÍ sér heim­ild til að fara á starfs­stöð SÁÁ til gagna­öfl­unar. Það leiddi til þess að krafan hækk­aði upp í 174 millj­ónir kr. Sem stað­fest var með bréfi frá SÍ 29. des­em­ber 2021. Þrátt fyrir þá stöðu sem upp var komin var vald­hroki stjórn­enda SÁÁ slíkur að þeir fóru að saka starfs­menn SÍ um mis­beit­ingu valds eða að þetta væri allt mis­skiln­ingur.“

Hann segir að „Það allt saman leiddi til þess að SÍ sá sér ekki annað fært en að vísa mál­inu til Hér­aðs­sak­sókn­ara. Þar er málið núna statt og ekki annað að gera en að bíða og sjá hvort dóms­mál verði höfðað gegn SÁÁ.“

Honum finnst það blasa við að „Land­spít­al­inn getur ekki tekið við starf­semi SÁÁ, vegna þess að hann sinnir aðal­lega tví­greindum ein­stak­lingum, þ.e.a.s ein­stak­lingar sem þjást af geð- og fíkni­sjúk­dómum. Óeig­in­gjarnt starf frum­kvöðla SÁÁ, sem áður fyrr skil­aði frá­bærum árangri, er í mik­illi hættu. Biðlistar hafa lengst og er það annað hvort vegna þess að erf­ið­ara er að kom­ast inn á Vog eða vand­inn er að aukast. Það eru dæmi um að ein­stak­lingar þurfi að bíða í 8 mán­uði eftir að kom­ast í fíkni­efna­með­ferð og er það ólíð­andi.“

Og bætir þessu við:

„Það eiga ekki að vera biðlistar í fíkni­með­ferð. Það eiga alltaf að vera til laus pláss fyrir þá sem þurfa og vilja kom­ast í með­ferð við lífs­hættu­legri fíkn. Fíkni­sjúk­dómar verða alltaf erf­ið­ari og hættu­legri þeim sem við þá glíma meðan ekki er gripið inn í af fag­að­ilum með óæski­legum áhrifum á aðstand­endur og sam­fé­lagið í heild sinni. Það er mik­il­vægt að SÁÁ nái samn­ingum við ríkið og skikki verði komið á þann vanda sem nú blasir við í með­ferð­ar­úr­ræðum fíkni­efna­neyt­enda.“

Að lokum segir Svanur að það sé von hans að á „næsta aðal­fundi SÁÁ verði kosin ný stjórn og að nýr for­maður geti undið ofan af þeirri stöðu sem komin er upp í sátt við það góða starfs­fólk sem vinnur á Vogi og á Vík; og í sam­starfi við alla þá sem eru í Samtökum áhuga­fólks um áfengis- og vímu­efna­vand­ann. Allt sam­fé­lag­inu til heilla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina