Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ástandið á bráðamóttökunni er grafalvarlegt: „Þetta verður bara verra og verra með hverju ári“

Ástandið á bráðamóttökunni er grafalvarlegt: „Þetta verður bara verra og verra með hverju ári“
Bráða­mót­taka Land­spít­al­ans. – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint -Ljósmynd: Land­spít­al­inn Mynd: Landspítalinn

Í gær var full bið­stofa á bráða­mót­tök­unni, hátt í hund­rað sjúk­lingar voru skráðir á deild­ina að bít­ast um þrjá­tíu laus með­ferð­ar­stæði. Meira en fimm klukku­stunda bið var í sumum til­fellum eftir þjón­ustu þannig að mikil ringul­reið var á svæð­inu og starfs­fólk undir gríð­ar­legu álagi.

Ástandið á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans er grafal­var­legt. Fyrr í dag greindi RÚV frá því að fjórir hjúkr­un­ar­fræð­ingar hafi sagt upp störfum á deild­inni vegna langvar­andi álags og lélegs aðbún­aðar.

DV ræddi við Borislav Bukarica sem hefur verið búsettur hér á landi í 21 ár ásamt eig­in­konu sinni, en þau eru bæði frá Serbíu að ástandið væri grafal­var­legt.

Borislav segir að nú sé nóg komið: „Ég er búinn að vera hérna á Íslandi í 21 ár og þetta verður bara verra og verra með hverju ári. Fyrir 10 árum síðan var bara tveggja eða eins tíma bið. Ég er með margar skyldur, ég er með börn í skóla,“ segir hann.

„Ég þurfti að bíða og bíða og bíða. Maður veit ekki hversu lengi eða eftir hverju maður er að bíða. Allir eru bara að bíða og eng­inn segir neitt. Hundrað manns í bið­stof­unni. Ég er kannski útlend­ingur, en ég er líka Íslend­ingur. Ég tala ekki bara mitt mál heldur íslensku líka. Við verðum að laga þetta, þetta gengur ekki lengur,“ segir Borislav Bukarica.

Greindist með krabbamein og töldu að meinið væri farið að láta á sér kræla

Hjónin fóru á bráða­mót­töku Lands­spít­al­ans í gær vegna hræði­legra verkja sem eig­in­kona hans hefur verið með síð­ustu þrjá mán­uði. Hún greind­ist með krabba­mein fyrir þremur árum og hjónin grun­aði að meinið væri farið að láta á sér kræla og mögu­lega á hættu­legri stað en áður. Borislav seg­ist blöskra hversu lengi þau þurftu að bíða eftir aðstoð og kveðst hafa upp­lifað mikið skipu­lags­leysi.

Hann segir þau hjón hafa átt mjög tor­velt með að fá upp­lýs­ingar frá hjúkr­un­ar­fræð­ingum. Að sögn Borislavs kom eng­inn til þeirra í marga tíma og svo hafi hjúkr­un­ar­fræð­ingur tekið blóð­sýni úr eig­in­konu hans þar sem hún sátu á bið­stof­unni og sent þau svo heim. „Hún hefði getað dáið á meðan við biðum hérna eftir lækni,“ segir Borislav í sam­tali við DV um málið.

„Ég spurði nokkrum sinnum um að fá að fara bara beint inn að hitta lækni. En það var ekki hægt og eftir langa bið kom loks hjúkr­un­ar­fræð­ingur og tók blóðprufu.

Hjónin þurftu að mæta aftur á spít­al­ann í morgun því eig­in­kona Borislav þurfti einnig að fara í þvag­sýna­töku og ómskoðun, og þeim rann­sóknum lauk ekki fyrr en rétt fyrir hádegi í dag. „Umhyggja fyrir fólki og sam­kennd eru fram­andi setn­ingar hér. Ég er von­svik­inn með heil­brigð­is­kerfið hér.“ segir hann.

Þá segir Borislav að skipu­lagið á spít­al­anum sé hræði­legt. „Ég er að vinna á sjúkra­heim­ili og ég veit hvað skipu­lag er. Þetta er bara óþol­andi. Það eru líka hjúkr­un­ar­fræð­ingar hérna [hjá Lands­spít­al­anum] sem eru annað hvort hættir hérna, eða ætla að hætta. Ég fór í gær og mig langar bara aldrei að koma aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina