Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þegar Hemmi Gunn mætti ekki: „Þetta var um páska og ég orðinn yfirkeyrður“

Þegar Hemmi Gunn mætti ekki: „Þetta var um páska og ég orðinn yfirkeyrður“
Það var erfitt að ná sím­tali við Hemma á þessum árum, það var alltaf á tali.

Það eru páskar 1994 og vin­sæl­asti þáttur Íslands að hefj­ast í beinni útsend­ingu. Þjóðin er nán­ast öll sem límd við skjá­inn en þessi þáttur verður öðru­vísi en þeir hafa verið því þátta­stjórn­and­inn mætir ekki. Þess í stað biður Vala Matt áhorf­endur í sal og heima í stofu vel­komin og til­kynnir að hún muni hlaupa í skarðið fyrir þátta­stjórn­and­anum í þetta skiptið. Hemmi Gunn var fall­inn.

Það var bara einn Hemmi Gunn.

Í næsta þætti tóku áhorf­endur and­köf því aftur virt­ist hann fall­inn en Unnur Steins­son birt­ist í stjórn­anda­sæt­inu. Síminn hringir og á lín­unni er Hemmi Gunn. Segist hann vera hátt uppi í augna­blik­inu og spurði Unni hvort hún gæti leyst hann aðeins af. En hann reynd­ist ekki vera fall­inn, heldur var hann staddur í flug­vél á leið í fall­hlífa­stökk. Kom hann svo svíf­andi inn í þátt­inn, öllum til mik­illar gleði.

Birgir Guð­munds­son rit­aði meðal ann­ars um fall­hlífa­stökk Hemma í Tímanum á sínum tíma:

Trúlega eru flestir sam­mála um að Hemma Gunn hafi tek­ist vel upp í þætt­inum sínum síð­asta vetr­ar­dag. Margir voru for­vitnir að sjá hvernig hann myndi fleyta sér yfir vand­ræða­lega augna­blikið í upp­hafi, þegar þjóðin beið með önd­ina í háls­inum eftir útskýr­ingu frá honum á for­föll­unum í næst­síð­asta þætt­inum. Flestir töldu víst ein­sýnt að Hemmi kæmi með eitt­hvað meira en við­talið í Dags­ljósi þar sem hann gerði, af aðdá­an­legu hisp­urs­leysi, grein fyrir veik­leika sínum gagn­vart áfengi.

Og Hemmi sveik engan. Þegar Unnur Steins­son birt­ist í stjórn­anda­sæt­inu en ekki Hermann tók áhorf­enda­skar­inn and­köf fyrir framan sjón­varps­tækin og spurði: „Er Hemmi dott­inn aftur?“ En svo var auð­vitað ekki, þetta var bara létt grín hjá Hemma, sem fékk menn undir eins til að fyr­ir­gefa fyrri for­föll með því að mæta á svæðið með enn stór­feng­legri hætti en áður — hann sveif inn í þátt­inn úr háloft­unum fyrir ofan höf­uð­borg­ina í fall­hlíf og aubvitað í beinni útsend­ingu.

Í Helg­ar­blaði DV árið 1997 birt­ist við­tal við Hemma Gunn sem þá hafði verið tek­inn af dag­skrá Rúv með Á tali hjá Hemma Gunn. Þar ræddi hann meðal ann­ars um það þegar hann mætti ekki.

Hemmi Gunn með epískt bindi.

Þegar hann mætti ekki

Hemmi hefur til margra ára ekki verið að fela þá stað­reynd að hann eigi við áfeng­is­vanda­mál að stríða. Hefur ólíkt mörgum öðrum getað tjáð sig opin­skátt um áfengið en fyrir vikið verið stöðugt á milli tann­anna á fólki. Ótrú­leg­ustu sögur fóru t.d. á kreik þegar hann mætti ekki í einn þátt­inn og Vala Matt var fengin í hans stað. „Ég var búinn að vera með um hund­rað þætti í átta eða níu ár þegar kemur þáttur sem ég mæti ekki til
leiks. Það þætti á flestum stöðum ekki tíð­indum sæta ef maður mætir ekki í vinn­una í einn dag á tæpum tiíu árum. Þetta var um páska og ég orð­inn yfir­keyrður. Var búinn að und­ir­búa þátt­inn allan þegar ég gleymdi mér og fékk mér í glas. Ég var ekki með það góða heilsu til að stjórna þessum þætti og Vala hljóp í skarðið af rögg­semi og mynd­ar­brag. Sögurnar fóru af stað og ég átti að hafa gert ótrú­leg­ustu hluti, sem því miður bitna á börn­unum mínum. Ég held að ég sé fyrsti maður sem þurfti að mæta í Dagsljós til að svara fyrir það að hafa drukkið vín. Það gerði ég ein­göngu barn­anna minna vegna því þau voru farin að fá ótrú­leg­ustu sögur frá for­eldrum skóla­systk­ina sinna. Þau vora óvarin en ég orð­inn brynj­aðri.

Eðlilega hefði ég átt að fá gula spjaldið fyrir að mæta ekki til leiks en síð­degis þann dag sem þátt­ur­inn var sýndur fékk ég risa­blóm­vönd með und­ir­skrift hvers ein­asta starfs­manns Sjón­varps­ins með óskum um skjótan bata. Þetta var hlutur sem ég kunni að meta,“ segir
Hemmi og hugsar hlýtt til fyrrum
sam­starfs­manna sinna.

Sjá má brot úr þætt­inum sem Vala Matt stýrði í fjar­veru Hemma hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við