Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Marta María Arnarsdóttir – Nýráðinn skólameistari Hússtjórnarskólans stýrði Covid-sýnatökum

Marta María Arnarsdóttir – Nýráðinn skólameistari Hússtjórnarskólans stýrði Covid-sýnatökum
Marta María Arn­ars­dóttir

„Allt frá því ég var lítil hefur mig langað til að verða skóla­stjóri,“ segir Marta María Arn­ars­dóttir, nýráð­inn skóla­meist­ari Hús­stjórn­ar­skól­ans í Reykja­vík. „Mig lang­aði líka alltaf til að verða kenn­ari og mér fannst rök­rétt að byrja að kenna fyrst áður en ég spreytti mig á skóla­stjóra­starf­inu. Mig lang­aði til að vera kenn­ar­inn sem ég vildi að ég hefði haft sem barn og í kennslu minni hef ég lagt ríka áherslu á að nem­endum mínum líði sem allra best til dæmis með því að nota fjöl­breyttar kennslu­að­ferðir til að koma til móts við alla nem­endur á ein­hverjum tíma­punkti. Ég hef einnig verið lánsöm með marga kenn­ara í gegnum tíð­ina sem hafa haft mikil og mót­andi áhrif á mig. Kennarar hafa mikil áhrif á nem­endur sína og mig lang­aði til að láta gott af mér leiða; hafa góð áhrif á aðra. Ég hef einnig fengið að upp­lifa mis­mun­andi stjórn­un­ar­hætti yfir­manna minna og skóla­stjóra sem ég hef unnið með og það hefur gefið mér skýra sín á það hvernig skóla­stjóri ég vil vera. Í mörgum yfir­mönnum mínum hef ég séð fyr­ir­myndir en í öðrum hef ég lært hvernig ég vil ekki haga hlut­unum. Þegar ég hef lent í mót­læti í líf­inu hef ég reynt að nýta mér það til góðra verka svo aðrir þurfi ekki að upp­lifa hluti sem maður sjálfur hefur gengið í gegnum. Ég hugsa að það sé í grunn­inn þess vegna sem ég ákvað að sækja um sem skóla­stjóri, til að láta gott af mér leiða.“

Það má því segja að skól­inn sé aftur kom­inn í tísku.

Hvaða áherslur mun nýr skóla­meist­ari koma með? Jafnvel ein­hverjar nýj­ungar?

„Ég ber mikla virð­ingu fyrir sögu Hús­stjórn­ar­skól­ans, þeirri mik­il­vægu starf­semi sem þar fer fram og tel mig geta starfað af krafti við að halda arf­leifð skól­ans við í síbreyti­legum nútím­anum. Hús­stjórn­ar­skól­inn hefur vissu­lega breyst mikið frá því hann var stofn­aður þótt grunn­ur­inn sé að miklu leyti sá sami. Ég sé gríð­ar­leg tæki­færi í skól­anum. Mik­il­vægt er að huga að sjálf­bærni á öllum sviðum, end­ur­nýta, end­ur­vinna og vera sjálf­stæður og skap­andi og þetta er allt kennt nú þegar í skól­anum. Það má því segja að skól­inn sé aftur kom­inn í tísku. Ég sé ekki fyrir mér að koll­varpa öllum þeim góðu gildum sem skól­inn stendur fyrir en vissu­lega koma ein­hverjar breyt­ingar með nýjum stjórn­anda; ég held að það sé óhjá­kvæmi­legt.“

Marta María segir að það sé fyrst og fremst gíf­ur­legur heiður að fá að taka við taumunum í svona gömlum skóla sem á sér góða og far­sæla sögu. „Ég ber ómælda virð­ingu fyrir skól­anum og því sem hann stendur fyrir. Andinn í hús­inu er ólýs­an­lega góður; það er eins og maður finni fyrir krafti allra þeirra nem­enda og kenn­ara sem hafa áður gengið um stofur skól­ans. Ég er líka veru­lega heppin með sam­starfs­fólk sem heldur uppi mjög góðum anda og hefur tekið mér opnum örmum.“

Draum­ur­inn hefur ræst.

„Ég vona að ég geti nýtt krafta mína til góðra verka í þeim verk­efnum sem ég kem að og geti haft góð áhrif á fólkið í kringum mig. Stóri draum­ur­inn var í raun að verða skóla­stjóri Hús­stjórn­ar­skól­ans í Reykja­vík þannig að núna er það bara að njóta tím­ans hér.“

Handavinnan veitir hugarró

Marta María var á sínum tíma nem­andi við skól­ann og er spurð hvers vegna hún hafi farið í skól­ann.

„Stóra systir mín gekk í skól­ann þegar ég var fimm ára. Ég man eftir því að hafa farið á opið hús í skól­anum þegar hún var í honum og í minn­ing­unni var það eins og að koma inn í kast­ala sem í raun er ekki svo fjarri lagi; mér líður enn eins og í höll eða á fínum herra­garði í hvert sinn sem ég er í skól­anum. Móðir mín og amma hafa einnig verið ötular við handa­vinn­una, hafa kennt mér margt varð­andi alls konar bakstur og elda­mennsku og þær smit­uðu mig fljótt af áhuga þeirra. Þegar ég sótti um skóla­vist í Húsó á sínum tíma lang­aði mig aðal­lega til að kom­ast í kynni við alla handa­vinn­una sem er kennd við skól­ann og verða sjálf­stæð­ari í eld­hús­inu. Ég er einnig mjög heilluð af upp­setn­ingu náms­ins. Námið er ein önn og því afar hent­ugt að stoppa við í Húsó þegar maður er í ein­hverju milli­bils­á­standi líkt og ég gerði eftir mennta­skóla og áður en ég hóf nám við Háskóla Íslands.“

„Ég og amma mín og nafna, Marta María, sem gekk einnig í skól­ann á sínum tíma. Einn af mínum helstu stuðn­ings­að­ilum og fyr­ir­mynd.“
Handa­vinnan verður á þann hátt ein­hvern veg­inn ávana­bind­andi.

Hvað fannst Mörtu Maríu hún helst læra svo sem varð­andi sig sjálfa?

„Í handa­vinnu felst mikil núvit­und og því nær maður góðri teng­ingu við sjálfan sig þegar maður situr við og saumar, vefur og prjónar. Handa­vinnan verður á þann hátt ein­hvern veg­inn ávana­bind­andi, maður sækir oft í hana til að öðl­ast hug­arró. Svo er líka mjög hvetj­andi að mæta á réttum tíma í Húsó þar sem allir skóla­dagar hefj­ast á morg­un­verð­ar­hlað­borði. Það má því segja að ég hafi lært stund­vísi þegar ég gekk sjálf í skól­ann.“

Marta María segir að þegar hún stund­aði nám við skól­ann hafi hún eign­ast mörg áhuga­mál sem eru hennar helstu áhuga­mál í dag. „Ég met mik­ils að hafa orðið sjálf­stæð á hinum ýmsu sviðum eins og í eld­hús­inu, í handa­vinnu og í ræst­ingu. Í skól­anum kynnt­ist ég einnig mörgum af mínum bestu vinum og við höldum mörg enn hóp­inn í dag. Það er mjög dýr­mætt.“

Marta María og Katrín sauma­kenn­ari við Hús­stjórn­ar­skól­ann á góðri stundu við sauma­skap­inn.

Elda­mennska, bakstur, sauma­skapur, prjóna­skapur… Hvaða máli skiptir fyrir Mörtu Maríu að kunna þetta og gera þetta vel?

„Það þurfa allir að hafa í sig og á. Fljót­lega átta ungir ein­stak­lingar sig á því að það er ekki hægt að kaupa til­bú­inn mat í öll mál; það er bæði dýrt og óum­hverf­is­vænt. Eða þá að kaupa allar flíkur dýrum dómum þegar vel er hægt að sauma eða prjóna sér þær. Einhvers staðar þarf maður að læra þá hæfni sem til þarf til að vera sjálf­stæður og sjálf­bær á þessum sviðum og það er til­valið að læra það í Húsó.“

Umsjónarkennari 19 ára

Marta María ólst upp í Reykja­vík. „Ég lék mér mikið með krökk­unum í göt­unni, æfði á fiðlu og ein­söng og söng í kórum. Ég æfði einnig sam­kvæm­is­dans, ball­ett og tennis og hafði gaman af öllu þessu. Mig lang­aði þó helst til að geta „æft” prjón, sauma­skap og bakstur en það var hvergi hægt og það þyrfti kannski að bæta úr því fyrir unga krakka. Þess í stað gat ég farið í Húsó til að leggja frek­ari stund á þá iðju. Í grunn­skóla sleppti ég 10. bekk en ég lærði náms­efni 10. bekkj­ar­ins þegar ég var í 9. bekk og eftir það lá leið mín í MH. Þar undi ég mér mjög vel á mála­braut og félags­fræða­braut. Mig lang­aði lengi vel til að verða stærð­fræði­kenn­ari en í MH skipti ég alger­lega um skoðun þar sem íslensku­kenn­arar skól­ans smit­uðu mig af ein­lægum áhuga þeirra. Áður en ég fór í BA-nám í íslensku við HÍ fór ég í Húsó. Það hent­aði mjög vel þar sem ég varð stúd­ent í des­em­ber og hafði því akkúrat eina lausa önn til að njóta mín í Hús­stjórn­ar­skól­anum. Eftir BA-námið lá leið mín í meist­ara­nám í kennslu­fræðum. Samhliða háskóla­nám­inu kenndi ég í Hvassa­leit­is­skóla. Ég varð fyrst umsjón­ar­kenn­ari 19 ára gömul og fékk strax þá full­vissu um að ég vildi leggja mitt af mörkum í mennta­kerf­inu. Ég tók við stórum og krefj­andi bekk sem ég var svo heppin að fá að kenna í mörg ár. Það var ótrú­lega skemmti­legur tími sem mér þykir mjög vænt um.“

Stýrði Covid-sýnatökum

Marta María gegndi starfi verk­efna­stjóra hjá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og stýrði Covid-sýna­tökum Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á Suð­ur­lands­braut 34 í heims­far­aldr­inum.

Það er í raun ótrú­legt að líta til baka á þau fjöll sem við fluttum þegar mest lét og alltaf ríkti jákvæðni, gleði og drif­kraftur í starfs­manna­hópnum.

„Eftir fimm ár í kennslu lá leið mín óvænt á Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Ég réð mig upp­runa­lega til starfa hjá Heilsu­gæsl­unni þar sem ég var í kenn­ara­sum­ar­fríi, hafði lítið við að vera og vildi láta gott af mér leiða í far­aldr­inum. Eitt leiddi að öðru og áður en ég vissi af var ég nán­ast búin að flytja lög­heim­ili mitt á Suð­ur­lands­braut­ina þar sem Covid-sýna­tökur fóru fram. Verk­efna­stjóra­staðan hefur gefið mér veru­lega mikið. Hjá Heilsu­gæsl­unni ríkir mjög góður andi og ég er mjög heppin með sam­starfs­fólk og yfir­menn þar. Dagarnir hafa margir verið krefj­andi og síbreyti­legar reglu­gerðir og bylgjur hafa ýtt undir mjög sveigj­an­lega starfs­hætti. Það er í raun ótrú­legt að líta til baka á þau fjöll sem við fluttum þegar mest lét og alltaf ríkti jákvæðni, gleði og drif­kraftur í starfs­manna­hópnum. Einna eft­ir­minni­leg­ustu stund­irnar af Suð­ur­lands­braut­inni eru frá á aðvent­unni. Þá komu mörg þús­und skjól­stæð­ingar til okkar dag hvern til að sækja sér hrað­prófs­vott­orð fyrir hvers kyns við­burði sam­hliða því að smit­tölur fóru hækk­andi og því fjölg­aði einnig í PCR-sýna­tök­unum. Þrátt fyrir langar raðir sem hlykkj­uð­ust í kringum bygg­ing­una voru skjól­stæð­ingar dug­legir að hrósa okkur fyrir gott skipu­lag og hvað þetta gekk allt saman hratt og vel. Náunga­kær­leik­ur­inn getur verið svo sterkur og þýð­ing­ar­mik­ill. Þetta var veru­lega skemmti­legur og lær­dóms­ríkur tími. Ég hef ekki alveg sagt alveg skilið við Heilsu­gæsl­una og held áfram í mínu starfi þar í sumar.“

Fyrirmynd

Marta María segir að sín helstu áhuga­mál í dag sam­tvinn­ist vel í nýja starf­inu. „Ég hef mjög mik­inn áhuga á hvers kyns handa­vinnu og bakstri og oft fer frí­tími minn í þær iðjur. Ég hef einnig mik­inn áhuga á kennslu, upp­eldi, íslensku og góðum stjórn­un­ar­háttum. Einnig hef ég mikla ánægju af félags­skap og úti­veru með hund­inum mínum henni Línu og nýt þess að fara í ferða­lög og hitta vin­konur mínar.“

Marta María með Línu, hund­inum sínum.

Hvaða lífs­reynsla hefur mótað hana?

„Eins og áður hefur komið fram tók ég við sem umsjón­ar­kenn­ari í fyrsta skipti þegar ég var 19 ára gömul. Sú reynsla og ábyrgð sem mér var fólgin mót­aði mig mjög mikið. Ég gaf mig alla í starfið og það var dýr­mætt fyrir mig að finna fyrir trausti sam­starfs­fólks, nem­enda og for­eldra. Það gaf mér mikið að sinna því mik­il­væga starfi sem kenn­ara­starfið er. Mér fannst mik­il­vægt að vera eins góð fyr­ir­mynd og ég gat fyrir nem­endur mína og ábyrgðin sem fólst í starf­inu hvatti mig til að standa mig vel, setja mér skýr mark­mið og standa við þau.“

Lífið getur verið alls konar.

„Þar sem það er óhjá­kvæmi­legt að verða fyrir áföllum í líf­inu er mik­il­vægt að læra að takast á við þau, sækja sér aðstoð og taka ákvörðun um það hvernig maður vill lifa líf­inu með þeim. Það er mjög mik­il­vægt að leyfa sér að dvelja í til­finn­ingum sínum og í sorg­inni þegar það á við en síðan er jafn mik­il­vægt að fest­ast ekki þar. Það þarf mik­inn vilja­styrk að vinna úr áföllum og láta þau ekki brjóta sig niður. Þótt það sé krefj­andi getur maður alltaf lært af þeim áföllum sem maður verður fyrir og snúið þeirri reynslu upp í eitt­hvað jákvætt.“

Skóla­meist­ar­inn gefur les­endum upp­skrift að sívin­sælu húsókleinum skól­ans. „Upp­skrift sem notuð hefur verið frá upp­hafi skól­ans. Alveg guð­dóm­legar.“

Húsó-kleinur

Heil upp­skrift:

1 kg hveiti

300 g sykur

150 g smjör­líki

6 tsk. lyfti­duft

2 stór egg

2 tsk. mat­ar­sódi

6 dl súr­mjólk eða AB-mjólk

2 tsk. mal­aðar kar­dimommur

  1. Blandið öllum þurr­efnum saman.
  2. Myljið smjör­líkið saman við.
  3. Vætið í með sund­ur­s­legnum eggjum og helm­ingnum af súr­mjólk­inni/AB-mjólk­inni. (Myndið fjall úr þurr­efn­unum og myndið holu fyrir eggin og súr­mjólk­ina).
  4. Vætið í með afgang­inum af súr­mjólk­inni/AB-mjólk­inni og hnoðið.
  5. Fletjið út og mótið kleinur.
  6. Steikið.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina