Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ellefu skipverjar á reki í 15. klukkustundir: „Allt í einu fór báturinn á stjórnborðshliðina“

Ellefu skipverjar á reki í 15. klukkustundir: „Allt í einu fór báturinn á stjórnborðshliðina“
Skip­brots­menn­irnir af Hamri, þegar þeir komu í bæinn um morg­un­inn. Þeir sitja í lang­ferða­bílnum. í fremstu röð: Eðvald Eyj­ólfs­son stýri­maður sem var í brúnni, þegar slysið gerð­ist, Georg Georgs­son háseti, Birgir Erlends­son skip­stjóri. Sitjandi í næstu röð: Erljngur Ríkarð Guð­munds­son, Tómas Þor­kels­son 2. véla­maður, Jón Gunn­ars­son mat­sveinn og Friðrik Sig­urðs­son 1. vél­stjóri. Stand­andi í aft­ari röð: Sigurður Jónsson, Björn Ragn­ars­son, Guð­mundur Frið­riks­son (sonur Friðriks vél­stjóa og yngsti maður áhafnar­ínnar 15 ára) og Gísli Ólafsson.

Tveir menn voru á brúnni þennan júlí en vakta­skipti höfðu nýlega verið um borð í Hamri frá Sand­gerði en hann hafði nýlega verið upp­gerður og hafði um borð full­komin tæki til veiða. Allt leit sem sagt vel út og áhöfnin kát á leið á síld­veiðar. En þeir komust aldrei á veið­arnar því bátnum hvolfdi skyndi­lega og var 11 manna áhöfnin í vanda statt og mátti engu skeika ef þeir ætl­uðu allir að lifa af.

Vísir sagði frá þessu sjó­slysi sem gerð­ist í 1. júlí árið 1962 á eft­ir­far­andi máta:

Sá furðu­legi atburður gerð­ist hér á miðjum Faxaflóa, að glæsi­legu, nýupp­gerðu 80 tonna fiski­skipi, Hamri frá Sand­gerði hvolfdi allt í einu og hann sökk á svo skömmum tíma að skip­verjarnir ell­efu að tölu komust aðeins naum­lega í gúmmí­björg­un­ar­bát.

Og það sem er enn furðu­legra. Það var ekki fyrr en kl. 2 síð­ast­liðna nótt, sem menn höfðu nokkra hug­mynd um þetta sjó­slys. Þá komu sex af skip­brots­mönn­unum á land á Mýrum, fóru heim að bænum Ökrum og gerðu vart við sig.

KONAN FÆR FRÉTTIRNAR

Þegar Vísir frétti um þetta slys snemma í morgun, hringdi frétta­maður blaðs­ins í frú Sigrúnu Theó­dórs­dóttur konu Birgis Erlends­sonar skip­stjóra á Hamri og spurði hana hvort hún hefði frétt nokkuð af bátnum.
— Nei, ekk­ert sér­stakt, svar­aði
hún. Hann á að koma á miðin í dag og byrja að veiða.
— Hafið þér ekki heyrt það að
bát­ur­inn sökk á laug­ar­dag­inn en allir menn­irnir björg­uð­ust?
— Nei, það hef ég ekki heyrt. En er það öruggt að allir hafi bjarg­ast.
— Já, það er öruggt, þeir eru allir ell­efu tals­ins á leið til bæj­ar­ins í bíl.
— Guði sé lof, sagði konan.

SKIPBROTSMENN KOMA Í BÆINN

Frétta­menn Vísis sátu fyrir rútu­bíl frá Akranesi, sem hafði farið upp á Mýrar til að sækja
skip­brots­menn­ina. Hann kom í bæinn skömmu fyrir kl. 11 i morgun. Í honum sátu allir hinir ell­efu skip­brots­menn. Þeir voru enn flestir á sokka­leist­unum, en útgerðin hafði í flýti sent þeim nauð­syn­leg föt. Það var eng­inn tími til að klæða
sig í fötin, sögðu skip­brots­menn­irnir.
— Ég kom út á stuttum nær­buxum og bol, sagði Friðrik Sig­urðs­son 1. vél­stjóri. Hinir voru sumir á nær­fötum og flestir skó­lausir.
— Hvernig bar slysið að, spurði
frétta­maður Vísis skip­stjór­ann Birgi Erlends­son (en hann er sonur Erlends Þor­steins­sonar í síld­ar­út­vegs­nefnd).

BÁTNUM HVOLFDI SKYNDILEGA

Það voru vakta­skipti og aðeins tveir menn voru í brúnni. Það var nokkur stormur, en þó ekki svo að nein hætta væri á ferðum. Allt í einu fór bát­ur­inn á stjórn­borðs­hlið­ina. Ég kom þá fram og reyndum við fyrst að stýra bátnum og sigla honum upp en það bar engan árangur. Hann lá á hlið­inni og möstrin fóru í sjó­inn.
— Hvernig held­urðu að hafi staðið á því að bátnum hvolfdi.
— Það get ég ekki sagt. Hann var tómur.
— Heldurðu að það geti verið að hann hafi orðið yfir­hlað­inn vegna þess, að sjór hafi safnazt í nót­ina og hún þyngzt þannig?
— Nei, það held ég að komi ekki til mála.

SNARRÆÐI SKIPSTJÓRANS

Skip­verjarnir segja frétta­manni blaðs­ins að þeir eigi snar­ræði skip­stjór­ans mest að þakka, að þeir standa nú hér lif­andi. Það mun­aði vissu­lega mjög mjóu. Því að bát­ur­inn sökk á svo skömmum tíma.
Skip­stjór­inn fór og klifraði upp eða rétt­ara sagt niður á þak stýr­is­húss­ins þar sem kass­inn með gúmmí­bátnum var geymdur. Kassinn var þá kom­inn undir sjó og var það þrek­virki hjá skip­stjór­anum að opna hann, en gúmmí­bát­ur­inn opn­aði sig strax og við komumst í hann.
— Eruð þið ailir syndir?
— Já, við erum allir syndir segir Friðrik, 1. yél­stjóri, nema ég.
Ég lærði í gamla daga að synda, en hef ekk­ert iðkað það. Flestir skip­verjarnir fóru í sjóínn til að kom­ast út í bát­inn og urðu blautir, en tveir klifr­uðu þó út eftir mastr­inu og út í bát­inn.
Allt gerð­ist þetta með svo skömmum hætti að eng­inn tími vannst til að senda út neyð­ar­skeyti.

Skip­brots­menn­irnir af Hamri, þegar þeir komu í bæinn um morg­un­inn. Þeir sitja í lang­ferða­bílnum. í fremstu röð: Eðvald Eyj­ólfs­son stýri­maður sem var í brúnni, þegar slysið gerð­ist, Georg Georgs­son háseti, Birgir Erlends­son skip­stjóri. Sitjandi í næstu röð: Erljngur Ríkarð Guð­munds­son, Tómas Þor­kels­son 2. véla­maður, Jón Gunn­ars­son mat­sveinn og Friðrik Sig­urðs­son 1. vél­stjóri. Stand­andi í aft­ari röð: Sigurður Jónsson, Björn Ragn­ars­son, Guð­mundur Frið­riks­son (sonur Friðriks vél­stjóa og yngsti maður áhafnar­ínnar 15 ára) og Gísli Ólafsson.

15 KLST. Á REKI

— Voruð þið svo lengi í gúmmí­bátnum? 
— Okkur var að reka á honum í 15 kist. segir skip­stjór­inn. Það er mikil mildi að veðrið var á vestan svo okkur bar að landi, en jafn­vel það hefði getað farið illa, ef okkur hefði borið upp á sker.
— Hvernig var aðbún­að­ur­inn á bátum?
— Það var þröngt í honum, við vorum ell­efu á tíu manna bát. Verst að sumir voru illa klæddir.
— Höfðuð þið nokkuð til að borða?
— Það voru venju­legar mat­ar­birgðir í bátnum, en við borð­uðum ekk­ert. Við höfum náð í fjalir úr þil­farsmilli­gerð og gátum örlítið róið okkur áfram með þeim. Það bjarg­aði okkur kannski, því að þegar okkur bar um hádegið á sunnu­dag upp að Hvalsey við Mýrar virt­ist alls staðar ólend­andi fyrir skerjum og brimi, nema á einum stað, þar sem læna virt­ist út frá
eynni og gátum við róið okkur að henni með þessum spýtum.

ENGINN SÁ BÁLIÐ

— Reynduð þið ekki að gera vart við ykkur, þegar þið komuð
upp í Hvalsey?
— Jú, við reyndum öll ráð. Við skutum neyð­ar­ra­k­ettum og blysum, kveiktum bál úr reka­við sem stóð í margar klst. og settum upp hvít flögg, en allt kom fyrir ekki. Það var slæmt í sjó­inn svo að við lögðum ekki aftur af stað á gúmmí­bátnum, enda segja bændur á Mýrum okkur nú, að það hefði getað orðið okkar bani, því að mikið brim var við strönd­ina.

KOMIÐ Á BÆ UM NÓTTINA

Þegar veðrið lægði og sjór­inn stillt­ist í gær­kvöldi fórum við svo sex saman á gúmmí­bátnum í land og komum að Ökrum á Mýrum um kl. 2 um nótt­ina. Þar vöktum við upp. Bóndinn á Ökrum, Ólafur Þórð­ar­son og fólk hans tók ákaf­lega vel á móti okkur, gaf okkur mat og gekk úr rúmi fyrir okkur. Ólafur bóndi á Mýrum hafði ekki bát til­tækan en hafði sam­band við Helga Gíslason í Tröðum á Mýrum og sagði honum að skip­brots­menn væru úti í Hvalsey.
Helgi brá þegar við á bát sínum og sótti skip­brots­menn­ina.

MEÐ NÝ OG FULLKOMIN TÆKI

Þeir komu sem fyrr segir til Reykja­víkur um 11 leytið í morgun. Þeir kváð­ust skilja það, að þeir væru úr helju heimtir. Og þegar þeir fóru að minn­ast á skipið, mátti heyra trega í rödd þeirra
— Það var auman að þetta skyldi koma fyrir eftir alla fyr­ir­höfn­ina við að útbúa skipið á síld­veiðar. Það var nýupp­gert, skipið og öll tæki í því ný og full­komin. Splúnkuný síld­ar­leit­ar­tæki og kraft­blökk. Þar með erum við búnir að missa af síld­ar­ver­tíð­inni. Það
er sann­ar­lega- mikið áfall.
En getið þið ekki komizt á önnur skip?
— Það er ólík­legt, svör­uðu þeir, það er ekki auð­velt að kom­ast í
skips­rúm á síld­ar­bátum nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við