Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Leikkonan Tanja Líf Traustadóttir – Fékk raddþjálfun hjá systur Colins Firth.

Leikkonan Tanja Líf Traustadóttir – Fékk raddþjálfun hjá systur Colins Firth.
Einlæg gleði við útskrift frá Institute of the Arts Barcelona.

Tanja Líf Trausta­dóttir ákvað að verða leik­kona þegar hún var átta ára gömul. Þá fékk hún eitt af aðal­hlut­verk­unum í barna- og fjöl­skyldu­leik­rit­inu Sitji Guðs englar á fjölum Þjóð­leik­húss­ins. Draumur hennar varð að veru­leika þegar hún útskrif­að­ist sem leik­kona úr lista­há­skóla í Barcelona í fyrra. Í vetur lék hún í þýskum sjón­varps­þáttum sem teknir voru upp á Tenerife og land­aði svo nýlega aðal­hlut­verki í íslensku kvik­mynd­inni Ótta sem tekin verður upp næsta vetur.

Tanja seg­ist hafa vitað frá fyrsta degi á stóra svið­inu að leik­listin væri það sem hún vildi gera að atvinnu sinni í fram­tíð­inni. Frá þeim degi hefur hún viðað að sér reynslu í fag­inu og þannig gert allt til að kom­ast nær því að upp­fylla draum­inn: Að starfa við leik­list­ina.

„Ég skráði mig í alla áfanga sem tengd­ust leik­list á árum áður og stærsta skrefið tók ég þegar ég komst inn í lista­há­skól­ann Institute of the Arts Barcelona, þaðan sem ég útskrif­að­ist með BA í leik­list sein­asta sumar. Það er bara eitt­hvað við þá til­finn­ingu að skapa hinar ýmsu til­finn­ingar innra með áhorf­and­anum. Þú veist í raun aldrei hvernig áhorf­and­inn mun bregð­ast við og því er hægt að segja að engin sýn­ing sé eins, sem er alveg ynd­is­legt. Á hinn bóg­inn er kvik­mynda­leikur alveg frá­bær líka, en það er allt önnur tækni þar á bak við, en alveg magnað að sjá sjálfa sig festa á mynd að eilífu,“ segir Tanja Líf.

Firth-systir kenndi raddþjálfun

Frá unga aldri hefur Tanja Líf verið smituð af ferða­bakt­er­í­unni enda búið meiri­hluta ævi sinnar erlendis. Fyrir vikið kom að hennar sögn ein­hvern veg­inn aldrei neitt annað til greina en að fara í háskóla erlendis. Tanja segir námið í Barcelona hafa verið því­líkt ævin­týri.

„Ég hef alltaf átt stóra drauma og heill­aði hinn stóri heimur mig frá fyrsta degi. Í Institute of the Arts Barcelona fékk ég þann heiður að vera hluti af frá­bærum alþjóð­legum bekk, þar sem bekkj­ar­fé­lagar mínir komu frá ýmsum heims­hornum, allir með sama mark­mið; að verða bestu leik­arar sem við mögu­lega gátum.

IAB, eins og hann er kall­aður, er frá­bær vett­vangur fyrir unga, upp­renn­andi lista­menn.

Innan veggja skól­ans er lagt mikið upp úr því að lista­mað­ur­inn útskrif­ist ekki ein­ungis fær í sinni sér­grein, heldur sem alhliða sviðs­lista­maður. Því fékk ég ekki ein­ungis menntun í leik­list heldur einnig í fram­sögn, radd­þjálfun og radd­beit­ingu, skap­andi skrifum, kvik­mynda­leik, lista­sögu, nútíma­dansi, sam­kvæm­is­dansi, hreyfifræði, dýra­fræði, pílates og við­skipta­fræði.“

Á loka­ár­inu í nám­inu lagði skól­inn líka áherslu á að útskrift­ar­nem­end­urnir fengju tæki­færi til að ræða brans­ann við atvinnu­fólk í fag­inu.

„Það reynd­ist mjög gagn­legt til að fá inn­sýn í það sem beið okkar eftir útskrift. Við fengum að leik­stýra okkar eigin barna­leik­riti og fara með það sem far­and­leik­hús í skóla borg­ar­innar og nágrenni. Síðan var auð­vitað rús­ínan í pylsu­end­anum sú að fá Kate Firth, systur Colins Firth leik­ara, til að kenna okkur radd­þjálfun og radd­beit­ingu. En hún var einmitt radd­þjálf­ari bróður síns í nokkrum af hans fræg­ustu myndum, meðal ann­ars King‘s Speech,“ segir Tanja Líf.

Tók á að leika dauða manneskju

Síð­ast­lið­inn vetur lék Tanja í þýskri sjón­varps­þátta­seríu og upp­lif­iði þar eitt sitt erf­ið­asta hlut­verk. Þegar leið á þætt­ina var karakter hennar drep­inn og þurfti hún að leika sig dauða tví­vegis í þætt­inum.

„Það er þol­raun út af fyrir sig, sér­stak­lega í kvik­mynd þar sem mynda­vélin er oft kölluð hið alsjá­andi auga og þú þarft því bara að gjöra svo vel að halda niðri í þér and­anum, þar til þú heyrir „og klippa“, segir Tanja Líf bros­andi og rifjar upp fleiri erfið og vand­ræða­leg atvik í leik­list­inni:

„Ég lenti einu sinni í því að bölva óvart á sviði á meðan ég var að leika í Gosa. Þá sló heldur betur þögn á sam­leik­ara mína og ég gat séð að þeir urðu furðu lostnir. Svo þegar ég kom bak­sviðs hlógum við heldur betur að þessu og var ég spurð aftur og aftur, hvort ég hefði í alvöru sagt það sem ég sagði. Leik­listin er heldur betur skemmti­leg, þar sem eng­inn dagur er eins og þú veist ekk­ert hvað mun ger­ast þann dag­inn.

Svo lék ég kven­sjúk­dóma­lækni í einni sýn­ingu úti, sem var að fram­kvæma innri skoðun með eigin höndum, sú sena gat oft verið ansi skraut­leg og hlægi­leg.“

Forréttindi að alast upp erlendis

Eins og áður segir, þá ólst Tanja Líf upp á erlendri grundu. Aðspurð segir hún það hafa verið því­lík for­rétt­indi að kynn­ast því.

„Nú bý ég að að því að eiga vini frá öllum heims­hornum, sem gaman verður að heim­sækja í fram­tíð­inni. Auk þess að tala reiprenn­andi þrjú tungu­mál og getað bjargað mér á tveimur í við­bót. Þetta opnar svo sýn manns á heim­inn. Ég er miklu opn­ari fyrir breyt­ingum og fer út í lífið með opinn huga. Það hefur kennt mér að heim­ur­inn hefur upp á svo margt skemmti­legt að bjóða og að kynn­ast sem flestum menn­ing­ar­heimum er mitt mark­mið í líf­inu. Eitt af mínum mark­miðum er að vera búin að heim­sækja öll undur ver­aldar fyrir fimm­tugt,“ segir Tanja Líf dreymin.

En þá er komið að stóru spurn­ing­unni; hvort finnst Tönju betra að búa erlendis eða á Íslandi?

„Úff. Það er eig­in­lega ekki hægt að svara þess­ari spurn­ingu. Hvort tveggja hefur sína kosti og galla. Ég hef alltaf verið afskap­lega heima­kær og Ísland hefur alltaf átt traustan sess í hjarta mínu. En það að vera með mína nán­ustu hjá mér er mér gríð­ar­lega mik­il­vægt. Ég hef búið víða með fjöl­skyldu minni og mér fannst ég alltaf eiga heima á hverjum stað fyrir sig, en ég tel ástæð­una fyrir því vera þá,  að ég var alltaf með for­eldra mína og systur hjá mér og átti alltaf góða vini.

Mér finnst að allir ættu að leggja mikið upp úr því að sanka að sér og læra ný tungu­mál. Að tala mörg tungu­mál opnar svo margar dyr og gefur þér tæki­færi að tjá þig á móð­ur­máli lands­ins. Að geta tjáð sig á ólíkum tungu­málum er lyk­il­at­riði í nútíma­sam­fé­lag­inu og að vera fær um að gera mig skilj­an­lega á fimm tungu­málum er bara alveg æðis­legt. Ég stefni á að læra von­andi fleiri tungu­mál í nán­ustu fram­tíð.

Ég er mikil félags­vera og það að vera fjarri fjöl­skyldu minni finnst mér alltaf erfitt, en á móti því vegur samt, að ég hef oft­ast búið í löndum þar sem veðrið leikur við mann alla daga og menn­ingin er heill­andi. Er ekki bara hægt að segja bæði? Mín starfs­grein snýst samt voða mikið um ferða­lög og ég bý mig undir að þurfa að búa tíma­bundið á hinum ýmsu stöðum á meðan ég er í verk­efnum, en ætli Ísland verði ekki alltaf hið end­an­lega „heima“ þess á milli.”

Ástin beið í crossfit

Þar sem Tanja Líf hefur dvalið lang­dvölum í ýmsum löndum, þar á meðal á Ítalíu og Spáni, hefði maður haldið að hún hefði jafn­vel farið í sam­band með ein­hverjum mynd­ar­legum heima­mann­inum. Eða urðu kannski engir sætir á vegi hennar?

„Jú, auð­vitað. Fullt af þeim. En ég var búin að ákveða að binda mig ekki fyrr en að háskóla­námi loknu. Ætlunin var bara við að klára námið fyrst og leika mér á meðan,“ segir Tanja Líf hlæj­andi.

Þegar hún útskrif­að­ist sem leik­kona í Barcelona var skoll­inn á heims­far­aldur. Fjöl­skylda Tönju var að flytja til Íslands á sama tíma og því ákvað hún að skella sér með. Hún hefur ávallt verið mikið fyrir hreyf­ingu og hreysti þannig hún ákvað að skella sér í prufu­tíma í crossfit þegar til Íslands var komið.

„Og bang. Ástin beið mín í crossfit og sam­býl­is­maður minn bauð mér á deit eftir þriðja tíma. Við höfum verið saman síðan og erum svaka­lega ham­ingju­söm.“

Enginn dagur eins

Þegar Tanja var ung lék hún undir leik­stjórn Sigurðar Sig­ur­jóns­sonar leik­ara í barna­leik­riti á sviði Þjóð­leik­húss­ins. Hún man enn þá eftir ráði sem Siggi gaf henni.

„Hann sagði mér að setja hand­ritið mitt undir kodd­ann, því þannig lærð­ust lín­urnar betur og að mig dreymdi þær meira að segja. Það má því segja að leik­ar­inn sé alltaf með lín­urnar með sér, og það er ákveð­inn sann­leikur í því. Þær eru það fyrsta sem þú hugsar þegar þú vaknar, þú þylur þær í sturt­unni, á meðan þú ert úti að hlaupa, yfir matnum og þær eru það síð­asta sem þú hugsar áður en drauma­landið tekur yfir­hönd­ina,“ segir Tanja Líf.

„Hver og einn leik­ari hefur sína tækni til að læra línur, eins og í ein­leikjum, alveg eins og hver og einn er með sinn leik­list­ar­stíl sem gerir okkur ein­stök á okkar hátt. Við þurfum að vera und­ir­búin til að gefa okkur öll í hvað sem við tökum okkur fyrir hendur, vera við­búin því að allt geti gerst á svið­inu, hvort sem það eru óundi­búin við­brögð frá áhorf­endum eða að mót­leik­ari þinn fari út af spor­inu.

Hjá leik­ara er eng­inn dagur eins. Alltaf ein­hver ný ævin­týri og áskor­anir til að takast á við. Maður þarf að vera mjög skipu­lagður hvað varðar und­ir­bún­ing fyrir hlut­verk. Þetta er ekki bara að fá hand­ritið í hend­urnar, blikka aug­unum og „voilá“, þú ert komin upp á svið með meist­ara­verk. Það þarf að læra lín­urnar sínar, kryfja karakt­er­inn og hverja línu fyrir sig. Svo þegar þú ert búin að læra lín­urnar og stúd­era hand­ritið í þaula, hefst hin raun­veru­lega gólf­vinna. Svo er allt önnur tækni hvað varðar kvik­mynda­leik.“

Meðvituð um harkið

Núna býr Tanja Líf á Íslandi og reynir að koma sér á fram­færi á þröngum mark­aði leik­ara hér. Til að vera alveg hrein­skilin segir hún leik­lista­brans­ann hér geta verið mikið hark.

„Þrátt fyrir að vera ört stækk­andi er hann enn þá lít­ill og afskap­lega mik­il­vægt að ná að mynda gott tengsla­net og koma sér inn á réttu stöð­unum. Svo hefur staðan ekk­ert skánað í þessu Covid-ástandi und­an­farið, þar sem mörg verk­efni hafa verið sett á bið og eru jafn­vel 1-2 árum á eftir áætlun. Mér hefur því fund­ist of lítið um að leik­húsin og kvik­mynda­brans­inn sé að taka inn nýtt fólk á meðan verið er að vinna úr þess­ari töf sem varð. Ég bind vonir við prufur hjá leik­hús­unum og svo fékk ég nýlega stórt hlut­verk í íslenskri bíó­mynd sem tekin verður upp næsta vetur.

En maður kemur sér inn í smærri verk­efni á meðan, þar sem öll reynsla telur. Á sama tíma getur það verið snúið að ganga í augun á bestu umboðs­mönn­unum, því þeir vilja varla sjá mann nema maður sé kom­inn með fullt af verk­efnum á fer­il­skrána og í kynn­ing­ar­mynd­bandið.“

Leið eins og stórstjörnu

Án umboðs­manns náði Tanja Líf að tryggja sér hlut­verk í þýsku sjón­varps­þátta­ser­í­unni Balko, sem tekin var upp á Tenerife síð­asta vetur. Þar leið henni eins og stór­stjörnu enda dekrað við hana á töku­stað frá upp­hafi til enda.

„Þar leik ég hina for­vitnu og upp­reisn­ar­gjörnu Maríu Vargas. Þetta er saka­mála­sería þar sem allt fer á annan end­ann og var ótrú­lega gaman, en líka fremur óraun­veru­legt að sjá sjálfa mig leika í þætt­inum þegar hann var frum­sýndur fyrir stuttu. Að fá þann frá­bæra heiður að taka þátt í svona stóru verk­efni var algjör­lega geggjað!“ segir Tanja Líf og heldur áfram:

„Mér leið eins og algjörri stór­stjörnu frá A-Ö. Um leið og fram­leiðsluteymið hitti mig fyrst var alveg greini­legt að það átti að hugsa vel um mig. Ég var spurð í gríð og erg hvort mig van­hag­aði um eitt­hvað. Hvort ég vildi bíða í einka­her­berg­inu mínu á meðan ég biði eftir að mínar senur yrðu teknar upp. „Fá einn stól og vatns­flösku fyrir Tönju, takk“ var setn­ing sem maður heyrði við minnstu bið.

Ég fékk minn eigin hús­bíl þar sem ég gat hvílt mig milli sena. Ég mátti ekki brjóta saman mín eigin föt né bún­ing­inn, því það var fólk í vinnu við það. Ég var með einka­snyrti- og hár­greiðslu­konu og alveg greini­legt að um risa­verk­efni var að ræða. Ferlið var algjör draumur frá degi eitt. Þótt dag­arnir hafi oft verið langir var þetta svo þess virði og ég hlakka mikið til að taka þátt í fleiri svona verk­efnum í náinni fram­tíð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una