Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Siggi Stormur yfirgefur Miðflokkinn: „Svona áfall gjörbreytir hugsun manns“

Siggi Stormur yfirgefur Miðflokkinn: „Svona áfall gjörbreytir hugsun manns“
Siggi Stormur

Sigurður Þ. Ragn­ars­son, betur þekktur sem Siggi Stormur, hefur ákveðið að segja skilið við Mið­flokk­inn í Hafn­ar­firði. Þessu segir hann frá á Facebook-síðu sinni. „Jæja þá er það ákveðið!“ segir hann.

„Þegar maður stendur á tíma­mótum er hollt að fara í gagn­rýna sjálf­skoðun,“ segir Siggi í upp­hafi tikynn­ingar sinnar.

Veður- og jarð­vís­inda­mað­ur­inn knái var bæj­ar­full­trúi og odd­viti Mið­flokks­ins í Hafn­ar­firði á síð­asta kjör­tíma­bili en náði ekki kjöri í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í maí síð­ast­liðnum.

Í til­kynn­ing­unni talar Siggi meðal ann­ars um það sem drifið hefur á daga hans síð­ustu miss­eri.

„Eins og margir vita lentum við hjónin í miklu áfalli þegar sonur okkar varð lífs­hættu­lega veikur mán­uðum saman og sér ekki fyrir end­ann á. Svona áfall gjör­breytir hugsun manns og lífið og lífs­gæði fara í fremsta þrep. En þó áföllin dynji yfir mann, þá verður maður líka að reyna að halda áfram.“

Hann útskýrir að þegar hann hafi farið að spegla sig við stjórn­mála­flokka hafi hann kom­ist að raunum um að hann vildi setja mann­gæsku og mann­legar þarfir í fyrsta sæti.

„Ég hef alltaf verið svo­lítið til hægri og hef haft gaman að póli­tísku vaf­stri. Nú hef ég gert upp hug minn og ákveðið að hætta í Mið­flokknum og yfir­gefa hægrið,“ segir hann. Það er þó ekki svo að Siggi ætli að hverfa alfarið frá stjórn­málum, heldur ætlar hann að færa sig um set.

„Ég hef sem­sagt ákveðið að færa mig yfir lín­una til vinstri og ákveðið að ganga til liðs við Sam­fylk­ing­una. Þar sé ég sam­svörun við það sem mér finnst öllu máli skipta, þegar öllu er á botn­inn hvolft, lífs­gæði og vel­ferð fólks. Ég finn að ég er sáttur við sjálfan mig að hafa tekið þessa ákvörðun og ber ekki kala til nokk­urs manns. Ég hlakka hins vegar mikið til að fá að starfa með bæj­ar­mála­flokki Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafn­ar­firði,“ segir í til­kynn­ing­unni.

„Svo mörg voru þau orð – hlýjar kveðjur til ykkar allra,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina