Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kynfæri hrossa skorin: „Það er eins og eggvopni hafi verið smeygt inn í skeiðina og síðan rist út,“

Kynfæri hrossa skorin: „Það er eins og eggvopni hafi verið smeygt inn í skeiðina og síðan rist út,“
Sumir bændur eru með hesta – Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint.

Fyrir rúmum ára­tug leit­aði lög­reglan eftir meintum land­lægum dýra­níð­ingi eftir fjölda til­kynn­inga um áverka á kyn­færum hryssa. Áttu þær það allar sam­eig­in­legt að vera illa særðar á utan­verðum jafnt sem inn­an­verðum kyn­færum. Fyrsta fréttin um málið birt­ist í maí­mán­uði 2011 þegar eig­andi hryssu austur á Héraði tók eftir blæð­ingu úr skeið­inni. Þegar líða tók á sum­arið röt­uðu fleiri mál inn á borð lög­reglu og fjöl­miðla.

Eggvopni smeygt inn í skeiðina

„Það er eins og egg­vopni hafi verið smeygt inn í skeið­ina og síðan rist út,“ sagði Hjörtur Magnason dýra­læknir í við­tali við Morg­un­blaðið, 13. maí 2011.

Þar sagði enn­fremur:

„Þetta er mál sem ég hef ekki kynnst hér á Íslandi en maður hefur heyrt um þetta erlendis,“ segir Hjörtur Magnason, dýra­læknir á Egils­stöðum, en þar er komið upp óhugn­an­legt dýra­níðs­mál. „Það koma fyrir svona dýra­níðs­mál oft á sumrin ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum. Það fer ein­hver óþjóða­lýður um og sker í dýr og þá oft í kyn­færi þeirra.“

Síð­ast­lið­inn sunnu­dag var Hjörtur kall­aður til af Ólafi Guð­geirs­syni, heila- og tauga­skurð­lækni, vegna áverka á hryssu sem upp­götv­uð­ust í útreið­ar­túr. Grunur vakn­aði fljótt um að áverk­arnir væru til­komnir af manna­völdum og var málið form­lega kært til lög­reglu í dag. „Hann var á reið­ferð með konu sinni og öðrum hjónum þegar hann tekur eftir blóð­blettum aftan á lær­unum á hest­inum á undan. Það sást ekki að hryssan sjálf hefði óþæg­indi af þessu svo hún var bara skoðuð þegar komið var heim í hest­hús. Þá sá hann blæð­ingu úr skeið­inni og blæð­ingin hafði þá sull­ast á innri hluta tagls­ins og út af óþæg­indum hafði hest­ur­inn sveiflað tagl­inu og litað þannig aft­ur­hlut­ann á lær­unum,“ segir Hjörtur.

tima­rit.is/Skjáskot af frétt Morg­un­blaðs­ins

Síðar sama ár barst lög­reglu til­kynn­ing frá Sig­ur­þóri Gísla­syni, bónda á Með­al­felli í Kjós. Hesta­níð­ing­arnir höfðu þrí­vegis á um það bil mán­uði beitt haga­göngu­hross hrotta­legu kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

Í frétt Dag­blaðs­ins Vísis, frá 19. sept­em­ber 2011, er rætt við Sigurþór um atvikið og við­brögð dýra­lækna: „Þegar þær fara með þriðju hryss­una á dýra­spít­ala, þá sem er mest særð, bólgin og skorin, þá segja þeir á dýra­spít­al­anum að þetta sé eitt­hvað ankanna­legt,“ segir Sigurþór. Part­ur­inn þar sem hest­arnir eru í haga­göngu yfir sum­arið er ekki nálægt bæjum eða vegum, en það sést í stað­inn frá mörgum bæjum í sveit­inni. Sigurþór telur lík­legt að dýra­níðið hafi átt sér stað að næt­ur­lagi og að fleiri en einn hafi verið að verki. Menn velti fyrir sér hvernig menn vinni svona verk, en ljóst sé að þæg­ustu hrossin í stóð­inu hafi verið valin. Ýmislegt hljóti hins vegar að ganga á með jafn­stóra skepnu. „Hún lætur ekki gera svona við sig einn, tveir og tíu án þess að berj­ast á móti.“

Olli ugg og óöryggi

Lög­reglan hvatti hrossa­eig­endur til að fylgj­ast vel með dýr­unum sínum, öllum manna­ferðum við beit­inga­hólf og halda til haga upp­lýs­ingum öku­tækja þeirra. Borgarar voru þá hvattir til að hafa taf­ar­laust sam­band við lög­reglu ef grun­semdir vökn­uðu um dýra­níð.

Ótti og óör­yggi íbúa og hrossa­eig­enda greip um sig í Kjós og í sömu frétt frá DV þann 19. sept­em­ber 2011 er Sigurþór spurður hvort ein­hver liggi undir grun íbúa.

„Nei menn hafa ekki grænan grun. Maður ein­hvern veg­inn trúir því aldrei að þetta sé ein­hver sem maður umgengst eða þekkir enda held ég að þá hefði þetta komið upp fyrr.“ Sigurþór segir að íbúar í Kjós hafi uppi við­búnað eftir að upp komst um dýra­níðið. „Nú eru allir grun­sam­legir sem keyra um og nú fylgj­ast allir með,“ segir hann og tekur fram að nú athugi fólk oftar með hross í haga­göngu. „Menn eru meira á ferð­inni, það er ekki hægt að neita því. Ég sé þetta ekki frá mínum bæ en núna vita allir af þessu og þá fara menn að fylgj­ast með. Sumir vita á hvaða bíl hver er og í hvaða hólfi. Þegar menn fara að sjá grun­sam­legar ferðir þá skrifa þeir hjá sér bíl­númer, þótt maður geti ekki farið að ásaka neinn frekar en annan.“ Sigurþór er gagn­rýn­inn á lög­regl­una sem vildi ekki taka við myndum af hryss­unni eða rann­saka málið. Yfir­dýra­læknir hefur hins vegar kraf­ist þess að þetta verði rann­sakað. „Ég ætla ekki að segja að lög­reglan myndi finna söku­dólg­inn, en ef hún safnar engum upp­lýs­ingum þá veit hún ekki neitt. Ef lög­reglan myndi þyggja mynd­irnar sem henni hafa verið boðnar og fara á stað­inn og eiga það inni ef þetta skyldi ger­ast aftur gæti hún hugs­an­lega rakið það saman. Það minnsta sem lög­reglan getur gert er að rann­saka málið, líka fólks­ins vegna.“

Allt er gott sem endar vel – eða hvað?

Mannlíf leit­aði nið­ur­stöðu mála­lykta þessa hrotta­lega máls og hafði upp á Gunnari Erni Guð­munds­syni þáver­andi hér­aðs­dýra­lækni í Gull­bringu- og Kjósar­um­dæmi.

Aðspurður um sann­anir og afdrif máls­ins svarar hann: „Já, sko ég lenti í þessu í Kjósinni. Það var aldrei sannað að þetta hefði verið skorið af manna­völdum.“

Hann heldur áfram og útskýrir fyrir blaða­manni: „Hryssur hafa rosa­lega til­hneig­ingu til þess að klóra sér í rass­gat­inu á staurum – og ekk­ert af litlum krafti. Svo miklum að þær jafn­vel brjóta staura. Og þar er oft gadda­vír eða eitt­hvað svipað og ég held að flest þess­ara slysa hafi verið af þess konar ástæðum. – Og EKKI perri!“

Blaða­maður andar léttar og tjáir Gunnari að honum finn­ist gleði­legt að geta endað sam­an­tekt þess­arar gömlu fréttar á jákvæðum nótum. Hann bætir þá við: „Sko, ég skal segja þér alveg satt. Ég fór í nokkur svona til­felli, á tíma­bili þar sem þetta var voða­lega akt­ú­elt – þá var ég Hér­aðs­dýra­læknir í Reykja­vík […] Í öllum til­fellum, nema einu, er ég næstum viss um að þetta voru slys af völdum girð­inga eða umhverfis. Gerði eða hús­næði þar sem voru hættur sem gátu boðið upp á þetta. En aldrei var neitt hægt að sanna. En það var eitt til­felli – aðeins eitt sem var inni í hest­húsi í Kópavogi sem var ekki nokkur leið að finna út hvernig hafði getað gerst. Og það var algjör­lega opið mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við