Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir RÚV hafi haft sig að fífli: „Verðugt verkefni að fá botn í frásagnir manneskjunnar“

Segir RÚV hafi haft sig að fífli: „Verðugt verkefni að fá botn í frásagnir manneskjunnar“
Vítalía og Arnar.

Sigurður G Guð­jóns­son lög­maður tjáir sig um RÚV og mál Vítalíu Lazarevu á Facebook í dag. Þar full­yrðir hann að Rík­is­sjón­varpið hafi haft sig að fífli í umfjöllun sinni um mál Vítalíu.

„Frétta­stofu RÚV hefur á ein­hver óskilj­an­legan hátt fengið þá ímynd að vera traust frétta­stofa; segja fréttir sem byggj­ast á gildum heim­ildum við­ur­kenndrar blaða- og frétta­mennsku. Svo er alls ekki. Þar skiptir sann­leik­ur­inn litlu falli hann ekki að sög­unni sem segja á. Þess vegna er ekki haft fyrir því að skoða báðar hliðar mála, ef koma má höggi á þá eða þær mann­eskjur sem taldar eru standa höllum fæti þjóð­fé­lags­lega vegna ein­hvers konar ásak­ana.“

Und­an­farið hefur verið fjallað nokkuð í fjöl­miðlum um starfs­lok Eggerts Þór Krist­ó­fes­sonar sem for­stjóra hjá Festi. Fyrir liggur að starfs­lokin voru ekki að hans vilja. Í fréttum sumra fjöl­miðla hafa starfs­lokin verið tengd við hið svo­kall­aða Vítalíu-mál, en Vítalía Lazareva vakti lands­at­hygli snemma á árinu er hún steig fram í við­tali við Eddu Falak og lýsti því hvernig fjórir menn hefðu mis­boðið henni kyn­ferð­is­lega í sum­ar­bú­stað­ar­ferð haustið 2020. Enn­fremur sak­aði hún fjöl­miðla­mann­inn Loga Bergmann um að brot gegn sér á hót­eli ári síðar.

Í gær steig síðan Arnar Grant fram og sagði að frá­sögn Vítalíu væri ekki fjarri lagi, en hann á að hafa verið á staðnum þegar meint brot áttu sér stað í sum­ar­bú­staða­ferð.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sigurður tjáir sig um má Vítalíu, en hann virð­ist hafa verið grip­inn við það að taka myndir af Vítalíu og birta í leyf­is­leysi. Hann sagð­ist þó ekk­ert kann­ast við það.

Honum finnst þó eitt­hvað bogið við frétta­flutn­ing RÚV, en í færslu sinni byrjar hann á að ræða starfs­lok Eggerts Þórs Krist­ó­fers­sonar for­stjóra Festis, en það mál og mál Vítalíu hafa verið tengd saman. Sigurði finnst það sér­stakt.

„Það sem vakti hins vegar athygli við frétt­ina var hvernig frétta­stof­unni tókst að þvæla nafni þjóð­þekktrar mann­eskju inní frétt­ina, og í besta falli óljósum og marg breyttum frá­sögnum hennar af meintum kyn­ferð­is­brotum.

Við þá umfjöllun voru not­aðar myndir af tveimur öðrum mann­eskjum sem eiga hlut í vinnu­veit­and­anum. Mann­eskjan hefur borið sakir á þessar tvær mann­eskjur og fleiri þar á meðal ást­mann­eskju sína.“

Þá hefst sögu­skýr­ing Sigurðar af mál­inu, en hún er eft­ir­far­andi:

„Mann­eskja kom fyrst fram með ásak­anir sínar á sam­fé­lags­miðlum í októ­ber 2021, þegar sam­band hennar og ást­mann­eskj­unnar hafði súrnað. Síðan dró mann­eskjan allt til baka gagn­vart ást­mann­eskjunnu og þau voru sem eitt í atlögum sínum að þremur mann­eskjum og fjöl­skyldum þeirra.

Um jólin 2021 urðu vatna­skil því þá réðst mann­eskjan með hörku að ást­mann­eskj­unni og sak­aði hana um að hafa selt hana man­sali og fjall­aði ítar­lega um það í hlað­varpi.

Mann­eskjan vildi kæra ást­mannesj­una fyrir man­sal og hlaut mikið lof fyrir fram­göngu sína.

Nú hafa á ný orðið vatna­skil mann­eskjan hefur helst áhyggjur af því að ást­mann­eskjan fái ekki að spila golf með þeim sem hún telur að ást­mann­ekjan eigi rétt til að spila golf með. Áður hafði hún haft áhyggjur af ferð ást­mann­eskj­unnar í mann­gert lón með útlendri mann­eskju.

Ást­mann­eskjan er sátt með þennan við­snún­ing og seg­ist ætla að vera vitni þegar og ef mann­eskjan kærir, enda verði hið sanna að koma í ljós. “

Að lokum skorar Sigurður á „alvöru fjöl­miðil“ að kom­ast að botni þess sem átti sér stað í mál­inu.

„Það væri verð­ugt verk­efni ein­hvers alvöru fjöl­mið­ils að reyna að að fá ein­hvern botn í frá­sagnir mann­eskj­unnar og ást­mann­eskj­unnar en ekki láta hafa sig að fíflum umfram það sem orðið er.

Góða fólkið fer von­andi að átta sig á því að sam­fé­lags­miðlar og RÚV eru ekki alltaf bestu heim­ildir sann­leik­ans, frekar en klæð­skeri nakta kon­ungs­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við