Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hollywood-stjarna tapaði skák fyrir þernu á Keflavíkuflugvelli – „Hann lét rútuna bara bíða.“

Hollywood-stjarna tapaði skák fyrir þernu á Keflavíkuflugvelli – „Hann lét rútuna bara bíða.“
Charlton Heston

„Það var snjó­fjúk úti á Park Lane þegar ég vakn­aði snemma síð­asta dag­inn minn í London við hófa­slátt er líf­verðir drottn­ing­ar­innar voru á leið heim í her­búði­mar í morg­un­rof­anum. Ég mætti á réttum tíma út á Heathrow en flug­vél­inni minni seink­aði um klukku­stund. Síðan bil­aði einn hreyf­ill hennar yfir Skotlandi og loks lentum við á Íslandi í heim­skautsnótt­inni. Ég sat í held­ri­manna­stof­unni í kaldri flug­stöð­inni þar til gert hafði verið við vél­ina. Á meðan tefldi ég skák við glæsi­lega íslenska þernu sem var allt of góð fyrir mig (þ.e. í skák),“ skrif­aði Charlton Heston, leik­ari, í ævi­sögu sinni In The Arena.

Bruce Dern og Charlton Heston árið 1969

Margir muna eflaust eftir leik­ar­anum sem er hvað þekkt­astur fyrir leik sinn í kvik­mynd­unum Ben-Hur, El Cid og The ten commandments, en var hann til­nefndur til Golden globe verð­launa fyrir hlut­verk sitt í þeirri síð­ustu. Ævisaga Charlton var gefin út árið 1995 og var þar sutt frá­sögn leik­ar­ans um heim­sókn hans til Íslands. Frá­sögnin vakti athygli og reyndi DV að hafa uppi á þern­unni, sem tókst þó ekki. Þrátt fyrir það fannst við­tal við Charlton frá árinu 1968, sem tekið var á Hótel Sögu, þar sem hann var gestur á meðan dvöl­inni stóð. Jón Birgir Pét­urs­son, þáver­andi frétta­stjóri Vísis, tók við­talið við stór­leik­ar­ann og sagði í sam­tali við DV að hann hafi munað vel eftir deg­inum.

Charlton með fjöl­skyldu sinni

„Ég man að þetta var á laug­ar­degi og ég fór eldsnemma á sunnu­dags­morgn­inum með Braga Guð­munds­syni, sem þá var ljós­mynd­ari, á Hótel Sögu. Við fórum upp í Grill og þar sat Charlton Heston með áhöfn­inni af þot­unni,“ sagði Jón Birgir og bætti við að þrátt fyrir að leik­ar­inn hafi verið að und­ir­búa sig undir heim­ferð­ina, hafi hann samt tekið við­tal­inu vel og gefið sér tíma. „Við töl­uðum saman í lobbí­inu og far­þeg­arnir voru komnir út í rútu en það var greini­lega eng­inn asi á honum. Hann lét rút­una bara bíða.“

Jón sagði það greini­legt að Charlton vissi sitt hvað um land og þjóð og spurði hann leik­ar­ann því hvers vegna íslend­inga­sög­urnar væru ekki gerðar að kvik­myndum. Sagðist hann oft hafa velt því fyrir sér og haft þá Leif heppna í huga. „Mynd um hann(Leif heppna) gæti orðið stór­brotið verk en mjög erfitt að vinna það og dýrt,“ sagði stór­stjarnan á Íslandi en Jón Birgir lýsti kapp­anum sem kátum, bráð­hressum og alþýðu­legum.

Heim­ildir: Tímarit.is – DV

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina