Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Stjórnvöld hafna inngripi vegna hækkana – „Verið að grípa til aðgerða allt í kringum okkur“

Stjórnvöld hafna inngripi vegna hækkana – „Verið að grípa til aðgerða allt í kringum okkur“
Mynd/Envato Elements Mynd: Steve Allen Photography

Verð á bens­íni er víða komið yfir 350 kr. á lítr­inn í kjöl­far gegnd­ar­lausra hækk­ana síð­ast­liðna mán­uði. Í sam­tali við Mannlíf segir Runólfur Ólafsson, for­maður FÍB: „Við höfum aldrei séð svona verð áður, þess vegna erum við að sjá þessi við­brögð hjá stjórn­völdum í nágranna­lönd­unum. Það er verið að grípa til aðgerða allt í kringum okkur.“

Í mars síð­ast­liðnum þrýsti Félag íslenskra bif­reiða­eig­anda á stjórn­völd að bregð­ast við með skattaí­viln­unum eða styrkjum. Aðspurður segir Runólfur um svar stjórn­valda: „Þau hafa í raun hafnað, fram að þessu, inn­gripi sem lýtur að því að lækka skatta á elds­neyti – til þess að lina þessar miklu hækk­anir sem eru að lenda á neyt­endum og fyr­ir­tækjum.“

Sjá einnig: Írar og Svíar lækka skatta á elds­neyti – Hækkun á bens­ín­verði kostar Sel­fyss­ing­inn 50 þús­und krónur

Vona enn að ríkið stígi inn

Í flestum nágranna­löndum okkar hafa stjórn­völd stigið inn og gripið til aðgerða til að sporna við því að frek­ari hækk­anir lendi beint á neyt­endum – hvort heldur beinum eða óbeinum. „Þróunin virð­ist vera, því miður, áfram í sömu átt þ.e.a.s. allt er að hækka – en við bindum vonir við að ein­hvern tíma komi að því að þau [stjórn­völd innsk. blm.] grípi til aðgerða. Við sjáum allt í kringum okkur, í nágranna­ríkj­unum, að stjórn­völd hafa verið að grípa til ráð­staf­ana; að lækka skatta í flestum til­vikum, og svo líka til hlið­ar­ráð­staf­ana eins og auka skatta­frá­drátt til þeirra sem hafa um lengri veg að sækja vinnu eða þjón­ustu – en svo höfum við líka séð aðgerðir sem lúta að því að gera allan aðgang og kostnað við almenn­ings­sam­göngur mun minni en áður. Þannig að það er verið að gera ýmis­legt – en svo­lítið bara setið hjá af íslenskum stjórn­völdum,“ segir Runólfur.

Sjá einnig: Bens­ín­verð lækkar í Þýska­landi – Runólfur hjá FÍB: „Hér heyr­ist ekk­ert“

Bitnar mest á þeim sem minna eiga

Aðspurður hvernig hljóðið sé í bif­reiða­eig­endum, segir Runólfur: „Við heyrum að fólk hefur miklar áhyggjur af þess­ari stöðu, enda kemur þetta lang­verst niður á þeim sem hafa minna aflögu.“

Eins og vel er kunn­ugt hafa margir flúið hátt leigu- og fast­eigna­verð höf­uð­borg­ar­innar og flutt í nágranna­sveit­ar­fé­lög, t.d. Akranes, Reykja­nesbæ og Hvera­gerði. Runólfur bætir við: „Við höfum fengið nokkur sím­töl frá fólki sem hálft í hvoru neydd­ist til að flytja frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu til nágranna­sveit­ar­fé­laga, […] og er nú að lenda í því að nú er orð­inn ansi mik­ill auka kostn­aður við að keyra til vinnu. Það eru ekk­ert alltaf ein­hverjir val­kostir, eins og almenn­ings­sam­göngur, svo skilj­an­lega hefur fólk miklar áhyggjur af ástand­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina