Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hilma fékk símtal sem ekkert foreldri vill fá: „Ég var búin að gráta stans­laust“

Hilma fékk símtal sem ekkert foreldri vill fá: „Ég var búin að gráta stans­laust“
Hilma Dögg. Samsett mynd

„Ég og bróðir minn vor­um á róló, akkúrat að borða nesti þegar það kom kona og tal­aði við fóstr­una og okk­ur var sagt að fara inn í bíl. Við þekkt­um þessa konu ekki og ég man að ég spurði hvort ég mætti klára að borða, hef alltaf verið mat­argat. Þenn­an dag fór­um við í fóst­ur á Blönduós og fór­um ekki aft­ur heim til for­eldra okk­ar.“ Hún er fædd á Ak­ur­eyri en þegar hún var fjög­urra ára var hún send í fóst­ur seg­ir Hilma Dögg í hlað­varp­inu Sterk sam­an í umsjón Tinnu Guðrúnar Bark­ar­dóttur.

Hilma seg­ist hafa verið hepp­in með fóst­ur­for­eldra sem end­uðu á því að ætt­leiða hana. Hilma hefur átt í tölu­verðum erf­ið­leik­um með vímu­efni í gegnum tíð­ina, en hef­ur verið í bata frá óreglu í tólf ár. „Í dag er son­ur minn að verða 18 ára og á sjálf­ur í erf­iðum vímu­efna­vanda, sá vandi byrj­aði þegar hann var 12 ára gam­all.“ 

Síðasta ár er búið að vera erfitt

Hilma er ný­lega skil­in við föður yngsta son­ar síns. „Þetta síð­asta ár er búið að vera erfitt, ég viður­kenni það, lífið ger­ist þó maður sé edrú,“ seg­ir hún og bæt­ir við:

„Ég á tvo fyr­ir­bura, dótt­ir mín kom níu vik­um fyr­ir tím­ann og svo kom yngsti fjór­tán vik­um fyr­ir og er með CP, svo það eru ýmis verk­efn­in. Þó svo ég eigi fatlað barn þýðir samt ekki að vanda­mál ann­arra sé eitt­hvað minna skil­urðu.“

Aðspurð hvernig hún hafi náð utan um allt þetta, segir hún: „Ég var kom­in með pill­uglas heim og far­in að horfa ofan í það. Ég var að skilja, ein með krakk­ana, í námi, áhyggj­ur af elsta strákn­um mín­um al­veg að fara með mig, hann hvarf reglu­lega en ég mátti ekki láta neinn sjá að það væri eitt­hvað að.“ 

Reyndi að flýja sársaukann með drykkju

Hilma seg­ist hafa verið erf­iður krakki og oft mjög reið. Þegar hún var 16 ára byrj­aði hún að drekka áfengi, sem hafi fljót­lega undið upp á sig. Þegar hún er um 17 ára var hún beitt kyn­ferðis­legu of­beldi og áfeng­is­neyslan jókst til muna. Hún seg­ist hafi reynt að flýja sárs­auk­ann með drykkju.

Í dag er Hilma 41 árs þriggja barna móðir og seg­ir að líf án vímu­efna hafi verið upp og niður. Hún hefur klárað einka­þjálf­ara­námið og finnur að lífið sé að verða betra.

Kynntist barnsföðurinum í meðferð

„Ég fór ung í með­ferð, þar kynnt­ist ég nýju fólki, ég sá að ég ætti fullt eft­ir. Ég fór í marg­ar með­ferðir og í einni þeirra kynnt­ist ég fyrsta barns­föður mín­um. Það er ekki mælt með því en á þeim tíma var það gott fyr­ir mig, það leið ekki á löngu þar til ég varð ólétt.“ 

Hilma náði að vera edrú um tíma, en féll inn á milli, þegar son­ur henn­ar var ung­ur. Hún hélt á þeim tíma að það væri nóg að hætta neyslu en að hún þyrfti ekki að vinna í líðan sinni á sama tíma.

Sonur minn er í neyslu

„Í dag er son­ur minn að verða 18 ára og á sjálf­ur í erf­iðum vímu­efna­vanda, sá vandi byrj­aði þegar hann var 12 ára gam­all,“ seg­ir hún. 

Aðspurð seg­ir Hilma mun erf­ið­ara að vera aðstand­andi og vita af barn­inu sínu úti í neyslu. 

„Ég fæ aðstoð frá kerf­inu núna en bara þar til hann verður 18 ára. Ég er samt hepp­in með hann, hann skil­ur mörk­in sem ég set og verð að setja því ég er með tvö önn­ur börn á heim­il­inu og því er ekki í boði að hafa ein­stak­ling í virkri neyslu þar.“

Fær símtal sem ekkert foreldri vill fá

Hilmu var farið að líða mjög illa þegar hún leit­aði til í vin­konu sinnar eftir hjálp. Vinkonu hennar var brugðið þegar hún heyrði í henni og fór með hana beint á bráða­mót­tök­una. 

„Ég var búin að gráta stans­laust og gat ekki hætt. Mér fannst samt erfitt að fara á geð­deild því ég var ekki fall­in en sam­þykkti á end­an­um að leggj­ast inn, sem bet­ur fer.“ Hilma var inn á geð­deild í tvær vik­ur og var búin að ná upp styrk. Hún ákveður að fara norður til fjöl­skyldu sinnar rétt fyrir páska, þegar hún fær sím­tal sem ekk­ert for­eldri vill fá.

„Ég var kom­in norður þegar ég fæ sím­tal frá gjör­gæsl­unni að son­ur minn sé þar og ekk­ert sé vitað hvernig það fari. Ég sest aft­ur upp í bíl og keyri í bæ­inn, sit við hlið­ina á hon­um í viku og klára verk­efn­in í skól­an­um og læri fyr­ir próf.“  

HÉR er hægt að hlusta ein­lægt og fal­legt við­tal við Hilmu í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina