Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þórdís Jónsdóttir bróderar blóm í púða og myndir: „Ég leyfi mér að fara út af sporinu“

Þórdís Jónsdóttir bróderar blóm í púða og myndir: „Ég leyfi mér að fara út af sporinu“
Þórdís Jóns­dóttir

„Þegar ég var stelpa var ég í skát­unum og þar var teng­ing við nátt­úr­una meðal ann­ars fólgin í alls kyns úti­veru; göngu­ferðum og úti­legum allt árið um kring og þar var okkur kennt að bera virð­ingu fyrir nátt­úr­unni og vera vak­andi fyrir feg­urð lands­ins og breyti­leika. Í upp­vext­inum voru for­eldrar okkar dug­legir að fara með okkur systk­inin í bíl­ferðir og feg­urð lands­ins skoðuð. Ég minn­ist þess að ég átti litlar bækur, en ég tíndi villt blóm og press­aði og þurrk­aði þau í bók­inni og lagði á minnið hvað blómin hétu. Kannski það hafi verið upp­hafið að blóma­á­huga mínum, því síðar fór ég að bródera blóm í púða og myndir,“ segir Þórdís Jóns­dóttir sem í mörg ár hefur vakið athygli fyrir gull­fal­lega púða sem hún hannar og saumar og nú á lengsta degi árs­ins blómstra blómin í nátt­úr­unni sem og á púð­unum hennar.

„Þegar grunn­skóla­göngu minni lauk var ég svo guðslif­andi fegin að þeim kafla í lífi mínu væri lokið og ég gat ekki hugsað mér að halda áfram á þeim vegi svo ég réð mig til starfa í blóma­búð og að vera innan um ilm­andi blóm þótti mér gleði­legt. Að ganga inn á vinnu­stað­inn að morgni og finna ilm­inn af afskornu blómunum er ljós­lif­andi minn­ing. Ég hugs­aði stundum um það á þessum tíma mínum í blóma­búð­inni að það gæti verið gaman að læra blóma­skreyt­ingar, en það að þurfa að setj­ast aftur á skóla­bekk ýtti þess­ari hug­mynd út af borð­inu. Þannig að nú bródera ég blóm; þó ekki ilm­andi, en lit­fögur og svei mér ef ég kannski bara finn ekki ilm­inn af þeim þegar ég sit í eigin heimi og sé þau spretta í róleg­heit­unum, spor eftir spor, þar til full­vaxið blóm er komið á textíl.“

Þórdís segir að hug­mynd­irnar komi úr öllum áttum. „Ég er kannski að hjóla úti í nátt­úr­unni og þá fer hug­ur­inn á flug um hvað verði næsta verk­efni og þá er bara spenn­andi að koma heim og setj­ast við verkið.“

Á gráum rign­ing­ar­dögum er til dæmis gaman að hafa glaða liti á nál­inni.

Hvað með lita­val?

„Lita­valið í verkin mín ræðst stundum bara þegar ég er búin að teikna mynstrið. Á gráum rign­ing­ar­dögum er til dæmis gaman að hafa glaða liti á nál­inni. Annars finnst mér allir litir fal­legir og gefa mér góða orku.“

Meira líf

Þórdís Jóns­dóttir á ekki langt að sækja áhug­ann á útsaumi, en þess má geta að systur hennar eru Margrét Jóns­dóttir, leir­lista­kona á Akureyri, og María Jóns­dóttir list­mál­ari en við­tal við hana birt­ist á mann­lif.is 20. júní.

„Ömmur mínar voru miklar handa­vinnu­konur og móð­ur­amma mín bjó í næsta húsi við fjöl­skyld­una þannig að mér þótti svo gott að fara til ömmu og sitja hjá henni og sjá hvað hún var að gera í hönd­unum. Stundum hlust­aði hún á tón­list eða síð­deg­is­sög­una í útvarp­inu og það var alltaf eitt­hvað svo góð ró yfir. Svo fór ég að fá að sauma út líka og þannig held ég að þessi kunn­átta mín hafi síast inn ómeð­vitað því að ég hef aldrei farið og sótt mér kunn­áttu í útsaum í formi nám­skeiða eða skóla.

Það fyrsta sem ég byrj­aði að bródera og selja voru litlar myndir, en svo um 1998 fórum við mág­kona mín í sam­starf við að fram­leiða flís­fatnað á börn og svo seinna bættum við full­orð­inspeysum og sjölum fyrir konur inn í lín­una okkar. Verka­skipt­ingin var þannig að ég sá um útsaum­inn og mág­kona mín meira um hönnun á sniðum og vél­saum­inn. Þetta var skemmti­legur tími og enn þann dag í dag erum við að sjá þessar flíkur í notkun, sem gleður okkur og segir okkur líka að við vorum með gæða­vöru. En svo kom að því að við snerum okkur báðar að öðrum verk­efnum, en hver veit nema við eigum eftir að gera eitt­hvað saman í fram­tíð­inni.

Svo var það 2007 sem að ég byrj­aði á púða­saumnum. Þá saum­aði ég nokkra púða fyrir veit­inga­stað sem var verið að opna á Akureyri, en þá óraði mig ekki fyrir hvað bolt­inn á þessu sviði ætti eftir að rúlla. Ég hef eig­in­lega ekki lagt frá mér nál­ina síðan ef svo má segja. Ég átt­aði mig alls ekki á því lengi vel að ég væri að gera eitt­hvað sem alls ekki allir gætu gert. Mér fannst eins og allir kynnu að bródera en ég hef áttað mig á því núna að ég fékk þessa góðu vöggu­gjöf sem ekki er öllum gefin og ætla aldeilis að nýta mér hana áfram. Og það er gaman að sjá hve margir lista­menn eru farnir á grípa í útsaum í verkum sínum. Auðvitað tek ég mér pásur, en það er alltaf eft­ir­spurn; fólki finnst gaman að færa blómin inn í híbýli sín í formi púða eða mynda og þessi blóm standa um ókomna tíð. Ég hef reynt að velja gæða­efni í verkin mín svo þau haldi sér vel og stand­ist tím­ans tönn og mér finnst gott þegar ég heyri að púð­arnir frá mér séu alltaf eins og nýir. Ég nefni­lega segi oft við fólk að auð­vitað eigum við að nota púð­ana sem stuðn­ing við bakið, hrista þá svo bara til eftir notkun og þá eru þeir eins og nýir. Hvað er betra en leggja höf­uðið á útsaum­aðan púða og láta sig dreyma?“

Útsaum­ur­inn er meðal ann­ars kannski orð­inn frjáls­ari.

Hvernig hafa verkin þró­ast?

„Mynstur hafa þró­ast í áranna rás og útsaum­ur­inn er meðal ann­ars kannski orð­inn frjáls­ari. Ég leyfi mér meira að fara út af spor­inu og þá finnst mér ég ná meira lífi í verkin.“

Handverksmaður ársins

Hvað gefur sauma­skap­ur­inn Þórdísi?

„Það að velja grunnefnið, ákveða mynstrið og svo lita­sam­setn­ing­una veitir mér mikla gleði og ég er alltaf jafn spennt að byrja á nýju verk­efni. En stundum legg ég af stað í verkið, en finn að ég ætti kannski að hafa eitt­hvað öðru­vísi og þá er bara að finna aðra liti og láta sköp­un­ar­kraft­inn ráða ferð­inni. Það þarf stundum ekki nema nokkra þræði af öðrum lit til að breyta og ná meiri dýpt. Auðvitað hætti ég ekki fyrr en ég er full­kom­lega sátt við útkom­una og ég get stolt látið verkin mín af hendi á nýtt heim­ili.“

Ég fékk eitt árið útnefn­ing­una „hand­verks­maður árs­ins“ og annað ár fékk ég Hvatn­ing­ar­verð­laun árs­ins.

Þórdís selur ekki verkin sín í neinum versl­unum. „Það hefur gefið mér mest að taka þátt í sýn­ingum, meðal ann­ars á vegum Hand­verks og hönn­unar sem hefur verið haldin í Ráðhúsi Reykja­víkur og einnig á Hand­verks­há­tíð­inni í Eyja­fjarð­ar­sveit þar sem ég fékk eitt árið útnefn­ing­una „hand­verks­maður árs­ins“ og annað ár fékk ég Hvatn­ing­ar­verð­laun árs­ins. Svona útnefn­ingar gleðja og hvetja mann til að halda áfram því sem ég hef verið að gera. Ég hef eign­ast góðar vin­konur sem eru að vinna við hönnun og hand­verk og höfum við haldið nokkra hönn­unar- og hand­verks­mark­aði á Eyja­fjarð­ar­svæð­inu og hafa þeir við­burðir verið vel sóttir. Við hitt­umst reglu­lega og skipt­umst á hug­myndum og hvetjum hver aðra áfram í því sem við erum að vinna að. Það er góð vin­átta sem hefur mynd­ast hjá okkur.“

Gömlu útsaumshefðirnar

Þórdís seg­ist yfir­leitt vinna að einum púða í einu. „Mér hefur fund­ist það henta mér best. En meðan ég vinn þann púða þá vakna yfir­leitt hug­myndir að þeim næsta og jafn­vel þeim sem kæmi þar á eftir og lita­vali og mynstri sem ég hef í huga. En hug­ur­inn vinnur hraðar en hend­urnar og þegar maður hefur bara tvær hendur til að vinna þetta verk þá er bara um að gera að njóta hvers spors. Því það er þannig með útsaum­inn að það er ekk­ert hægt að flýta sér, þetta tekur sinn tíma og ég nýt hvers spors sem ég sting niður og sem fetar sig í átt að full­sprottnum blómum. Ég teikna öll mín mynstur sjálf; ég hef þó aldrei verið góð að teikna en blómum og mynstrum hefur mér tek­ist að skila frá mér. Ég er held ég bara betri að teikna með nál og þræði. Mynstrin í íslenska kven­bún­ingnum hafa heillað mig og ég hef unnið nokkuð út frá þeim mynstrum. Svo fæ ég hug­myndir að mynstrum úti í nátt­úr­unni og víða svo sem af öðrum útsaums­verkum. Ég reyni að halda í gömlu útsaums­hefð­irnar en þó með mínum hætti til að gera hvert verk að mínu.“

Fallegir litir hafa góð áhrif á mig.

Þórdís segir að útsaums­þræðir hennar liggi til for­tíðar. „Hand­verks­hefðir for­mæðr­anna eru mér ofar­lega í huga þegar ég þræði nál­ina og byrja á nýju verki. Það að sjá lit­skrúðug blóm verða til við hvert spor sem ég sting niður nál­inni með lit­fögru garni veitir mér lífs­gleði. Fallegir litir hafa góð áhrif á mig og ég fæ aldrei leiða á að sitja og bródera. Það sem kannski er verst er að stundum er vinn­u­gleðin svo mikil að ég gleymi mér og átta mig ekki á því hvað ég hef setið lengi; fyrr en ég ætla að standa upp en þá er smá­stífni í baki og herðum sem þarf að mýkja upp.“

Algerlega í núinu

Þórdís situr heima og saumar og hún segir sér líða vel að vera heima hjá sér með sínu góða fólki.

„Ég er svo heppin að ég á góða fjöl­skyldu sem ég nýt að hafa nálægt mér. Við hjónin eigum þrjú upp­komin börn og fimm barna­börn og allar sam­veru­stundir með þeim eru kær­komnar. Svo kem ég úr stórum systk­ina­hópi; við erum sex systk­inin og erum mjög sam­rýmd og góðir vinir þannig að sam­vera með stór­fjöl­skyld­unni er alltaf gleði­leg.“

Þessi hreyf­ing tel ég að geri það að verkum að ég hef getað sinnt útsaumnum eins lengi og mikið og ég geri.

Hver eru áhuga­mál kon­unnar sem situr svo oft með nál­ina og býr til lista­verk?

„Hjól­reiðar á sumrin eiga hug okkar hjóna; það er gott að eiga áhuga­mál með maka sínum. Við förum bæði í stuttar og lengri ferðir á hjól­unum. Stundum bara við tvö en svo eigum við góða vini sem við ferð­umst með og þá eru hjólin tekin með og landið skoðað frá öðrum víddum því að það er allt annað að skoða landið úr bíl eða á hjóli. Þegar maður hjólar þá sér maður landið í öðru ljósi og finnur ilm­inn af nýslegnu grasi, blóma­angan og lykt­ina af hest­unum á tún­inu sem hjólað er fram hjá og heyrir hnegg og jarm og allur fugla­söng­ur­inn fyllir mann ótrú­legri gleði. Þetta eru ynd­is­legar stundir. Á þessum stundum er maður algjör­lega í núinu og nýtur lífs­ins til fulls. Með þessu áhuga­máli hefur vina­hópur okkar stækkað til muna og und­an­farin ár höfum við farið erlendis að hjóla með stórum hópi og er fyr­ir­huguð ferð í lok ágúst til Króatíu og er til­hlökk­unin mikil. Svo á vet­urna tek ég fram göngu­skíðin og fer í rækt­ina. Þessi hreyf­ing tel ég að geri það að verkum að ég hef getað sinnt útsaumnum eins lengi og mikið og ég geri. Svo eigum við sum­ar­bú­stað með tengda­fjöl­skyld­unni. Hann er í sælu­reit í Fnjóska­dalnum og þangað er gott að koma og njóta nátt­úr­unnar og feg­urðar dals­ins en þar er feg­urð allt árið um kring.“

Tekur á

Þórdís hitti ást­ina í lífi sínu, Sigurð Sig­urðs­son, þegar hún var 16 ára og hann 17 ára.

„Saman höfum við gengið lífs­ins veg og náð að þroskast saman og erum góð tvenna. Við vinnum vel saman að því sem þarf að gera og njótum þess að vera saman. Við eign­uð­umst eldri son okkar ung, ég nítján og hann tví­tugur, og mér fannst ég svo algjör­lega full­kom­lega til­búin í móð­ur­hlut­verkið, enda hafa börn alltaf átt stóran stað í hjarta mínu. Ég pass­aði mikið krakka þegar ég var stelpa og fannst ég alveg til­búin að verða móðir þegar að því kom þótt ung væri. Svo seinna eign­uð­umst við dóttur og annan son. Þannig að við erum rík og stolt af þeim og þeirra fjöl­skyldum og því sem þau hafa tekið sér fyrir hendur. Ég er svo heppin að lífið hefur verið mér gott og ég vakna alla daga þakk­lát fyrir það. Ég er lífs­glöð kona og held að allir þessir lit­ríku litir sem ég vinn með hjálpi bara við að halda við gleð­inni.“

Hvað er það erf­ið­asta sem Þórdís hefur gengið í gegnum?

„Móðir mín greind­ist með Alzheimer og tekur það sann­ar­lega á að sjá sjúk­dóm­inn vera að ná henni inn í annan heim þar sem ekki er rúm fyrir okkur, ást­vini hennar. Við erum samt heppin að enn þá þekkir mamma okkur og gleðst þegar við heim­sækjum hana þó svo að orð­unum fækki en ást­úðin og hlýjan í aug­unum hennar gefur manni mikið. En þá kemur aftur að því hvað gott er að eiga góða stór­fjöl­skyldu sem hjálp­ast að og við styðjum við hvert annað og reynum að styðja við pabba okkar sem hefur staðið sig svo vel í þess­ari erf­iðu stöðu.“

Maður hefur þurft að horfa á eftir ást­vinum fara allt of fljótt.

Hverjir eru draum­arnir varð­andi bæði lífið og list­ina?

„Lífið hefur kennt manni að það er ekki sjálf­gefið að fá að eld­ast. Maður hefur þurft að horfa á eftir ást­vinum fara allt of fljótt. Tengda­mamma mín lést úr krabba­meini rúm­lega sex­tug og mikið vildi ég að við hefðum fengið að hafa hana í lífi okkar mikið lengur. Ég á mér þann draum og ósk að maður verði svo hepp­inn að hafa góða heilsu og ham­ingju sem ferða­fé­laga ásamt öllum þeim sem ég elska. Hvað list­ina varðar þá vona ég að ég haldi áfram að þró­ast og njóta áfram að gera það sem mér finnst gaman.“

Hefur Þórdísi dreymt púða?

„Mig hefur ekki dreymt púða í svefni en dagdraumar eru góðir og þá fæð­ast oft góðar hug­myndir sem ég fylgi svo eftir þegar ég sest niður til að bródera.“

https://www.facebook.com/Handbr%C3%B3dera%C3%B0ir-p%C3%BA%C3%B0ar-%C3%9E%C3%B3rd%C3%ADs-J%C3%B3nsd%C3%B3ttir-274758459224705/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina