Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Halldór Hafdal féll útbyrðis og óttaðist um ófædd börn sín: „Ég rankaði við mér á bólakafi“

Halldór Hafdal féll útbyrðis og óttaðist um ófædd börn sín: „Ég rankaði við mér á bólakafi“

„Hvað ber hæst í sjó­mennsk­unni?“ spyr Reynir Trausta­son Halldór Hafdal Hall­dórs­son, skála­vörð á Horn­bjargsvita og starfs­mann Ferða­fé­lags Íslands í hlað­varp­inu Sjó­ar­anum. „Það er af ýmsu að taka eftir langan tíma. And­skot­inn, ég man það ekki.“

Þetta er langur fer­ill og góður. 30 ár.

Hvað með sjáv­ar­háska?

Ég hef eflaust ekki farið djúpt.

„Það var allur and­skot­inn sem gekk á. Ég lenti ekki oft í ein­hverjum sjáv­ar­háska þannig en þó; ég lenti einu sinni í sjónum og synti á eftir bátnum úti við Eldey. Þá var ég á Hafern­inum frá Keflavík. Á snur­voð. Við vorum að láta voð­ina fara út við eyju og ég var aftur á rass­gati og var að henda út voð­inni. Eitthvað gerð­ist; ég hef aldrei áttað mig á hvað. Það sá þetta eng­inn þannig að það var eng­inn til frá­sagnar. Ég rank­aði við mér á bólakafi. Ég man ekki neitt. Ég hlýt að hafa rot­ast; ábyggi­lega lent í gálg­anum. Og lík­leg­ast hefur tógið skot­ist undir rass­inn á mér þegar það strekkti á því og bara þeytt mér fyrir borð. Ég opn­aði augun og það var allt grænt í kringum mig. Ég byrj­aði að synda og kom nú fljót­lega upp. Ég hef eflaust ekki farið djúpt. Ég sá bát­inn stíma í burtu og ég hugs­aði með sjálfum mér: „Hver djöf­ull­inn, nú er þetta búið“. En svo vakn­aði eitt­hvað. Þetta var merki­legt. Jú, ég var reyndar í sam­bandi við konu en barn­laus. En þegar ég var að koma upp og sá bát­inn fara í burtu og ég var við það að gef­ast upp þá kom eitt­hvað upp í koll­inn á mér: „Heyrðu, þú átt eftir að ala upp börnin þín.“ En ég átti engin börn. Og það var ekk­ert svo­leiðis á leið­inni.

Ég tók á honum stóra mínum. Ég var í sjó­galla, lopa­peysu og stíg­vélum og ég fór að synda. Ég tók strauið á eftir bátnum. Og þá sá ég mann á dekk­inu. Ég fór að öskra en hann varð ekk­ert var við mig. Svo í seinna öskr­inu leit hann á mig; ég hugsa að hann hafi ekki heyrt í mér. Hann var við hlið­ina á brúnni þar sem var hel­vítis hávaði og læti. En hann sá mig og sá mig veifa og stopp­aði bát­inn og þeir sneru við og komu. Þetta var kokk­ur­inn. Ég skulda honum líf­gjöf­ina. Svo komu þeir stím­andi á fullri ferð. Þá fyrst varð ég hræddur því mér fannst þeir koma svo hratt að mér. Ég synti í burtu og var svo hífður inn. Svo var skipt um galla og haldið áfram.“

Það var ekk­ert verið að pústa.

„Nei, það var ekk­ert verið að pústa.“

Þetta var í jan­úar. Halldór varð svo faðir í des­em­ber.

Lyfti um 200 kílóa keri

Halldór Hafdal Hall­dórs­son er spurður hvort þetta sé í eina skipti sem hann komst í sjáv­ar­háska. Hann nefnir annað atvik.

„Þetta var rétt fyrir jól.“ Þá var hann skip­stjór­inn um borð. Karlinn í brúnni. „Við vorum á línu frá Sand­gerði á trillu­horni sem Árni Vik­ars­son átti. Það var búin að vera djöf­uls­ins brælu­tíð og ekk­ert fiskerí. Ég sagði að það kæmi skot­veiði og við fórum bara með tvö­falt.

Og hann var orð­inn lunn­ing­ar­fullur af sjó.

Við fórum eitt­hvað út, um 30-40 mílur frá Sand­gerði. Og lentum í þessu fína fiskeríi. Það voru 100-150 kíló á balann og það var kom­inn kjaft­fullur bátur og meira til og það var kom­inn fiskur á dekk. En við náðum að draga upp lín­una og svo var stímt í land. Ég var að tala við útgerð­ar­mann­inn í sím­anum og þá fann ég að það dró niður í bátnum. Ég sagði við hann „djöf­ull­inn, það er eitt­hvað að ger­ast; það er að drep­ast á hjá mér“. Og bara hætti að tala og fór út að kíkja. Og þá var bara bát­ur­inn að sökkva. Þá hafði farið fiskur úr kari sem var á dekk­inu fyrir len­sport þannig að sjór­inn sem kom inn á dekk komst ekk­ert út aftur. Og hann var orð­inn lunn­ing­ar­fullur af sjó. Við vorum með beit­inga­vél og þá var línan í pokum og ég fór að henda pok­unum fram á til þess að létta á honum að aftan og ekk­ert gerð­ist. Ég sló af og þá byrj­aði bát­ur­inn að kantera. Hann var sem sagt að fara yfir.“

Annar skip­verji öskr­aði að þeir yrðu að henda lín­unni en Halldór sagði svo ekki vera. „Við hendum ekki hel­vítis lín­unni,“ seg­ist hann hafa sagt. „Það síð­asta sem maður gerir er að henda veið­ar­færum. En hann hlust­aði ekk­ert á mig og fór að henda lín­unni í sjó­inn og ég var nú ekki glaður með þetta en það breytti engu. Hann hélt áfram að kantera, bát­ur­inn. Hann fór af bak­borðs­hlið­inni og við vorum búnir að henda yfir í stjóra og þá fór hann bara yfir á þá hlið­ina. Ég fór inn í stýr­is­hús og kúp­l­aði saman og reyndi að keyra hann upp og þá hélst hann nokkuð beinn á sjónum. En við náðum ekk­ert að losa af honum. Hann var bara fullur. Ég sá ekki ástæð­una fyrir þessu því það var fiskikar fyrir len­sport­inu sem lok­aði.

En þarna kom ein­hver fít­ons­kraftur.

Ég fór út á dekk og það voru góð ráð dýr. Þetta var ekki að ganga. Ég veit ekki hvað kom yfir mig. Ég leik þetta aldrei aftur. Það var dallur sem tekur 200 kíló af fiski sem var úti í annarri síð­unni sem ég sá að var vanda­málið og ég tók í sitt­hvort hornið á honum og jafn­henti honum upp og henti honum í sjó­inn. 200 kílóum! Maður sem ræður ekki við 50 kíló að öllu jöfnu. En þarna kom ein­hver fít­ons­kraftur. Það varð til þess að leysa málið. Þá var komið pláss á dekk­inu og við gátum séð hvað var og þegar ég sá að það voru stífluð len­sport þá nátt­úr­lega hreins­aði bát­ur­inn sig og við í land. Og jól­unum var reddað.“

Molnaði í tætlur

Halldór seg­ist einu sinni hafa verið svo frægur að hafa dregið jaxl úr manni úti á sjó.

„Það var alveg skelfi­legt. Ég var á honum Helga frá Keflavík sem var ansi mik­ill barkur, stór neta­bátur. Ætli ég hafi verið nema svona tví­tugur. Það var einn, Gústi hét hann, og hann var með alveg hrika­lega tann­pínu. Og það mátti ekk­ert fara í land. Það var ekk­ert verið að ves­en­ast í því. Það var farið að skoða hvað ætti að gera. Hann var búinn að bryðja allar töflur sem til voru í skip­inu og ekk­ert dugði. Og við fórum að skoða apó­tekið og þar var ein­hver töng til að draga úr tennur. Ég hélt að þetta væri nú ekki neitt vanda­mál og sagði „ég dreg bara úr honum“. Og hann var til í það til að losna við verk­inn. Það var sjúkra­her­bergi í þessum báti; hann var svo­lítið á undan sinni sam­tíð með sjúkra­her­bergi, sauna­baði og öllum græjum. Nema það að mað­ur­inn fór á bekk­inn og ég var með töng­ina uppi í honum og tók á tönn­inni og hún var svo illa skemmd að hún moln­aði í tætlur. Þetta end­aði með því að það þurfti að sprauta kapp­ann með mor­fíni og síðan að stíma með hann í land til að ná rest­inni. En menn voru ekk­ert að víla svona aðgerðir fyrir sér.“

Fundu lík

Halldór var á ver­tíð­ar­bátum. „Fyrstu árin á neta­bátum frá Keflavík og Sand­gerði. Ég var síðan margar ver­tíðir í Vest­manna­eyjum með frændum mínum úr Bakka­vík­inni. Það er nú saga að segja frá því. Við vorum fimm frændur um borð og skip­stjór­inn var elstur; hann hefur verið rétt rúm­lega tví­tugur. Ætli hann hafi ekki verið 21 árs. Við rerum þarna á trolli frá Eyjum. Okkur gekk and­skoti vel. Nema svo vorum við ein­hvern tím­ann á land­leið; við vorum að veiða í Háfa­dýp­inu og þetta var um vetur. Hann hét Þórður þessi frændi minn sem var með bát­inn. Hann kall­aði út á dekk: „Strákar, það er að koma bræla, við skulum bara hífa og fara í land“. Og við gerðum það. Þetta var óvænt. Við áttum ekk­ert von á þessu. Og þegar við vorum úti á dekki þá sáum við tvö ljós á undan okkur; ein­hverjir sem voru á land­leið líka. En svo hættum við að sjá þetta ljós og vorum ekk­ert að spá í þetta.“ Svo fóru menn­irnir að sjá ýmis­legt í sjónum. Fyrst var það fiski­kassi. Svo fljót­andi fiskur. Og ýmis­legt annað. „Og þá var nú farið að líta í kringum sig; það hafði eitt­hvað gerst. Svo sáum við pínu­litla týru og við sigldum að henni og þá var það bjarg­bátur; og í honum voru tveir menn ger­sam­lega að nið­ur­lotum komnir. Þeim var svo kalt. Þetta var um vetur og það var frost. Við náðum þeim um borð og þá var þetta skip­stjór­inn sem var í bátnum og einn háseti. Mig minnir að bát­ur­inn hafi heitið Ver. Ver frá Vest­manna­eyjum. Og þeir höfðu farið niður. Það voru sex menn um borð en það voru bara tveir í gúmmí­bátnum. Við fórum að leita og það var nátt­úr­lega kallað út og allir bátar á svæð­inu komu og það var farið að leita. Við vorum ekki búnir að leita lengi þegar við sáum einn sem mar­aði í kafi; það var bara rass­inn upp úr. Við náðum honum og tókum hann inn og ég var á hak­anum til þess að haka í hann. Ég ætl­aði að krækja í belt­ist­megin á honum en þegar ég tók í beltið þá fann ég að þetta var ekki beltið. Ég hafði tekið í hold. Ég fann þegar hakið fór í gegnum og það kom straumur upp hak­ann. Þetta er held ég það versta sem ég hef lent í. Það þýddi ekk­ert að spá í það. Maðurinn var í sjónum og það þurfti bara að redda þessu og upp með hann. Hann var nátt­úr­lega drukkn­aður. Við fórum að ves­en­ast eitt­hvað í honum og settum hann á bakið að reyna að ná úr honum sjó og annað og eng­inn kunni neitt. Við vorum bara guttar.

Ég var að blása í hann og annar sem var þarna fór að gefa honum hjarta­hnoð. Hann kunni ekki neitt frekar en ég. Við djöfl­uð­umst á honum þangað til komið var í land og þá kom læknir. Ég var miður mín að við skyldum ekki ná honum af stað en hann sagði að við hefðum aldrei þurft að reyna.“

Það var nátt­úr­lega engin áfalla­hjálp eða neitt.

Þetta var búið.

„Þetta var löngu búið.

Eftir þetta; ég var kannski aldrei beint hræddur en þegar ég var í koju og bát­ur­inn tók dýfu eins og ger­ist á stímum og svona þá vakn­aði ég alltaf með hjart­slátt. Svona var þetta í nokkur ár. Það var nátt­úr­lega engin áfalla­hjálp eða neitt.“

Allir fór­ust af sex manna áhöfn nema menn­irnir tveir sem voru í björg­un­ar­bátnum. Og þetta eina lík.

Halldór var löngu síðar á loðnu. „Þá fórst olíu­skip ein­hvers staðar fyrir Suð­ur­landi. Það voru menn um allan sjó.“

Þetta var á fyrri hluta níunda ára­tugar síð­ustu aldar.

Þið komuð þarna að.

„Já, við vorum á veiðum þarna. Loðnu­flot­inn. Þannig að það var fjöld­inn allur af bátum sem var að leita. Ég var frammi á bakka að kíkja; á útkíkki að leita. Og þá kom þetta upp í koll­inn á mér löngu seinna og ég bað til Guðs: „Ekki láta okkur finna neinn.“ Það var alveg ótrú­legt. Þeir voru allir dánir. Þeir köfn­uðu af olíu. Það var svo mikil svart­olía í sjónum. Þó þeir hefðu lifað þá stífl­uð­ust öll vit.“

Halldór við Horn­bjargsvita sem Ferða­fé­lag Íslands rekur.

Myrkfælinn draugur

Halldór hætti á sjónum.

„Ég hafði alltaf sett mér það að þegar ég yrði fer­tugur þá myndi ég hætta. Ég var búinn að taka eftir því að full­orðnir sjó­menn fengu enga vinnu.“

Þú kemur í land eins og hver annar jóla­sveinn í júní.

„Ég reyndar hætti nú ekki alveg þá. En þegar ég kynnt­ist þess­ari konu minni, henni Dagmar, og við eign­uð­umst þetta barn sem ég hugs­aði til þegar ég var í sjónum – það var í jan­úar sem ég fór í sjó­inn en ég eign­að­ist barnið í des­em­ber – þá fór ég svo til í land. Þá fór ég að róa á þessum trillum. Og þá var þetta orðið dag­róðrar eða næt­ur­róðrar og ég var mikið heima.“ Halldór seg­ist hafa róið fyrir annan mann í ein­hver ár en síðan átt reyndar sína báta sjálfur.

„En þetta var ekk­ert hægt á þessum tíma. Ég seldi. Ég átti orðið tvo báta. Og ein­hvern tím­ann tvo róðra í röð þurfti ég að borga beitn­ing­ar­mann­inum úr eigin vasa því að kvóta­leigan var orðin miklu dýr­ari en maður fékk á mark­aðnum. Þetta var ekk­ert hægt. Ég var bara að fara á haus­inn.

Ég átti svo­lít­inn ýsu­kvóta; maður var að elt­ast við ýsu en þú ræður ekk­ert hvað bítur á krók­ana og þá þurfti að leigja fyrir þorsk­inum því að ég henti aldrei fiski.“

Halldór er spurður hvort hann hafi svo hætt alveg á sjónum þegar leigu­liða­sy­stemið hent­aði honum ekki.

Í stað­inn fyrir að berj­ast við ein­hverja brim­skafla þá er maður að berj­ast við ein­hverjar ár uppi á fjöllum.

„Já, þá byrj­aði ég hjá ferða­fé­lag­inu (Ferða­fé­lagi Íslands). Þar raun­veru­lega fékk ég allt sem ég fékk út úr sjó­mennsk­unni. Því að ég hef aldrei átt hobbí. Ég hef bara haft gaman af vinn­unni minni. Og þegar ég fór í þessa fjalla­mennsku þá full­nægði það öllum mínum hvötum: Adrena­línið við að berj­ast við nátt­úru­öflin en í stað­inn fyrir að berj­ast við ein­hverja brim­skafla þá er maður að berj­ast við ein­hverjar ár uppi á fjöllum.“

Og drauga.

„Og drauga.“

Þú hefur verið í Land­manna­laugum einn um hávetur og ert hinn ánægð­asti nema þú hefur stundum orðið var við eitt­hvað, sér­stak­lega í Hvít­ár­nesi.

„Það er ansi mikið á sveimi þar. Það er ýmis­legt þar. Við erum búin að vera að gera upp þennan skála þannig að ég er búinn að vera ansi mikið þarna und­an­farin þrjú ár. Ég vakna stundum upp við það að það er eitt­hvað ofan á mér. Eitthvað þungt og kalt og ég er bara skelf­ingu lost­inn. Þegar ég fór að hugsa um þetta eftir á þá útskýrir þetta orðið „martröð“. Það liggur eitt­hvað eins og mara yfir manni. Svo þegar maður nær að vakna þá er allt í góðu nema í fyrra vorum við búnir þarna og vorum að leggja okkur,“ segir Halldór og seg­ist hafa verið í svefn­rof­unum. „Það lagð­ist eitt­hvað yfir mig og ég var að reyna að snúa mér. Ég var að reyna að vakna og þá klapp­aði konan mín á rass­inn á mér og hvísl­aði „þetta er allt í lagi, vinur“. Og við þetta vakn­aði ég og sneri mér við en konan mér var ekk­ert með.

„Hún verndar þig.“

Ég fór að tala um þetta við Vigdísi, vin­konu mína sem er drauga­bani ferða­fé­lags­ins, og hún sagði að nú væri þetta í lagi og nú yrði ég lát­inn í friði. „Hún verndar þig.“ Og þá er þetta þessi ein­henta sem þeir tala um. Það eru þarna tveir draugar; það er hún og síðan karl­inn. Hún er ekk­ert að vilja illa. Hún þarf bara stundum að labba í gegnum þig því þú ert fyrir þegar hún þarf að sækja sér vatn. Og þá kemur hrollur yfir þig. En karl­inn er illur og sagan segir að hann hafi drepið hana.“

Hann er ill­skeyttur.

„Já, það er hann sem er búinn að vera að pirra mig. En henni líkar ágæt­lega við mig.“

Þú trúir þessu.

„Já, það er ekk­ert hægt að neita þessu.“

Halldór seg­ist ekki vera myrk­fæl­inn. „Ég væri ekk­ert í þessu sem ég er að gera – að vera einn uppi í Land­manna­laugum í fleiri daga – ef ég væri eitt­hvað smeykur. En maður veit að þetta er þarna og býður góða kvöldið. Það er draugur sem er myrk­fæl­inn. Ég held reyndar að Vigdís sé búin að skemma þetta fyrir mér og sé búin að kveða hann niður. Ég varð ekk­ert var við hann í vetur.“

Myrk­fæl­inn draugur í Land­manna­laugum.

„Einhvern tím­ann var ég úti í glugga að tann­bursta mig. Maður sér skál­ann í myrkr­inu og þá tók ég eftir því að það var ljós í skál­anum; ég var í skála­varð­ar­bú­staðnum sem er í 100-150 metra frá hús­inu. og það var eng­inn á svæð­inu nema ég. Ég dreif mig í buxur og peysu og fór út í skála því að það voru komnir gestir. Ég ætl­aði að sjá hvað væri í gangi. Ég kom út og það var eng­inn í skál­anum. Bara allt upp­ljó­mað. Það þarf að ýta á stofn­takka til að kveikja á ljós­unum þannig að ég hugs­aði sem svo að það væri eitt­hvað skamm­hlaup í raf­magn­inu og sló öllu út í töfl­unni og fór svo yfir til mín og fór að sofa.

Tveimur kvöldum seinna gerð­ist þetta aftur en dag­inn eftir að þetta gerð­ist fór ég í gegnum raf­magnið til að sjá hvort það væri ekki allt í lagi. Og ég var alveg sann­færður um að það væri allt í lagi þarna. Svo gerð­ist þetta aftur, það kveikn­aði á ljós­inu. Ég fór út í skála með hálfum hug og kall­aði en það var eng­inn þar. Svo skrif­aði ég í dag­bók­ina að það sé ein­hver bilun í ljósa­töfl­unni; það hafi kveiknað ljós og engin skýr­ing á því og ég sé búinn að yfir­færa allt og sjái ekk­ert athuga­vert. Þarna var ég að leysa af stelpu sem var þarna allan vet­ur­inn. Alveg merki­legt. Það er eitt að vera þarna einn í 15 daga en að vera í fjóra eða fimm mán­uði! Hún þoldi það alveg og kunni bara vel við þetta. Ég vissi ekk­ert hver þessi stelpa var. Hafði aldrei séð hana. Svo hitt­umst við á ein­hverju slútti eða skralli hjá ferða­fé­lag­inu. Þá sagði hún þegar hún heyrði hver ég var „varst það þú sem skrif­aðir í dag­bók­ina um ljósið?“. Hún sagði að þetta væri alltaf að ger­ast. Þá vorum við sam­mála um að þetta væri draugur. Og hann er myrk­fæl­inn.“

Einn

Halldór er núna á Horn­bjargi á sumrin. Skála­vörður.

Fiski­boll­urnar hans eru frægar. „Það er leyni­upp­skrift frá pabba gamla,“ segir hann og bætir við að upp­skriftin hafi komið í þýska mat­reiðslu­bók.

Hvernig er að vera við ysta haf? Horn­bjarg? Þetta er langt frá byggðu bóli. Er ekki ein­mana­legt að vera þarna?

„Nei, maður er aldrei einn þarna. Ég er búinn að vera við­loð­andi á Horn­bjargi í 10-11 ár. Ég kom þarna fyrst 2010. Það eru komin 12 ár. Og fyrstu árin var sonur minn alltaf með mér, Ketill. Hann hefur held ég alltaf verið með mér. Það er ekki ger­andi að vera einn þarna að þvæl­ast algjör­lega bjarg­ar­laus ef eitt­hvað kemur upp á; það þarf ein­hver að vera með manni. Allavega þegar maður er að þvæl­ast á sjónum og taka á móti fólki úr bátnum og fara út að fiska og ganga frá.“ Það er far­þega­bát­ur­inn sem fer frá Norð­ur­firði.

Horn­bjargsviti er sögu­frægur staður. Þetta var aflagt.

„1995 hætti komm­inn þarna, Óli,“ segir Halldór en Ólafur Þ. Jónsson var lengi vita­vörður í Horn­bjargsvita. „Þá var eng­inn í hús­inu. Og það var í nið­ur­níðslu í 10-11 ár og þá kom þarna góður maður sem var á ein­hverju ferða­lagi og þekkti eitt­hvað aðeins til hjá Sigl­inga­stofnun og fengu lánað húsið. Fengu að sofa í því. Ég held það hafi varla verið hægt að sofa í því; þetta var bara orð­inn hjallur. En úr varð að þeir leigðu húsið af stofn­un­inni og komu á fót gist­ingu og þau voru þarna í þó nokkuð mörg ár.“

Hvaða fólk var þetta?

„Ævar heitir hann.“

Halldór er spurður hvort ein­mana­leik­inn nagi hann aldrei; þarna er oft þoka, kalt og hann einn í hús­inu.

„Nei.“

Þér er sama?

„Já, mér líður best einum ein­hvers staðar.“

Hér má horfa á við­talið við Halldór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við