Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Ég gæti verið dáinn núna“ – Páll Óskar segir mistök að fresta göngunni – Hinsegin fólk í sárum

„Það er hræði­legt að horfa upp á svona atburði. Ég sendi sam­úð­ar­kveðjur til aðstand­enda þeirra látnu og ann­ars fólks sem þessi hroða­verk snerta sér­stak­lega. Ég vil hvetja allt hinsegin fólk til að standa saman á svona tímum. Haldið hvert utan um annað, leitið til vina ykkar og haldið áfram að vera stolt. Það er sorg­ar­dagur í dag og sorgin er í aðal­hlut­verki en styrkur okkar, kjarkur og stolt mun ekki þverra á kostnað ótta. Við erum sterkt sam­fé­lag ef við stöndum saman.“

Þetta skrifar Álfur Birkir Bjarna­son, for­maður Sam­tak­anna 78, á Facebook um voða­verkin sem framin voru í Noregi í nótt. Tveir létu lífið og yfir 20 særð­ust í skotárásinni í Osló. Í morgun hefur fjöldi hinsegin Íslend­inga vottað Norð­mönnum samúð sína enda fólk harmi slegið vegna frétta af hryðju­verkum svo nærri okkur. Þó sorgin sé mikil þá er bar­áttu­andi mik­ill meðal margra. Skotárásin sýni enn og aftur mik­il­vægi mann­rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks.

„Osló – hug­ur­inn hjá fórn­ar­lömbum og aðstand­endum, hinsegin sam­fé­lag­inu og allri norsku þjóð­inni vegna þess­arar hræði­legu skotárásar. Enn og aftur sann­ast að full þörf er á að halda mann­rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks áfram,“ skrifar Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra.

Alex­andra Briem, borg­ar­full­trúi Pírata, ótt­ast að sá minni­hluti almenn­ings sem stendur gegn hinsegin fólki sé að verða örvænt­ing­ar­fyllri.

„Það er ljóst að bakslag gegn frjáls­lyndi og frelsi, og sér­stak­lega gegn rétt­indum hinsegin fólks, er orðið að veru­leika. […] Vissu­lega er meiri­hluti fólks ekki búinn að snú­ast á sveif með þessum öfgum. En reiði minni­hluta­hóp­ur­inn sem er á móti okkur, sem er á móti frelsi og jafn­rétti, er orð­inn örvænt­ing­ar­fyllri. Þau upp­lifa að þau séu í raun búin að tapa slagnum um almenn­ings­á­litið, svo í stað­inn svífast þau einskis í að mis­nota regl­urnar til að ná sínu fram þar sem þau geta og ráð­ast fram með ofbeldi þar sem þau sjá ekki fram á að ná sínu fram. Það er ljóst að það er viss hópur sem ætlar sér ekki að una því að við fáum að vera til í friði og njóta jafn­réttis á við önnur. Og ein­hver hluti þeirra vill frekar myrða okkur en taka á hættu að við gætum verið ham­ingju­söm og frjáls.“

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­kona Við­reisnar, er sömu­leiðis hugsi yfir þessu bakslagi. „Þetta eru þungir og erf­iðir dagar. Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna afnemur stjórn­ar­skrár­var­inn rétt kvenna til þung­un­ar­rofs. Afleið­ing­arnar eiga eftir að verða skelfi­legar, auð­vitað fyrst og fremst fyrir konur þar í landi, en þessi óskilj­an­lega afstaða mun efla kven­fjand­sam­leg við­horf og aðgerðir víða um heim­inn. Hat­ursárás í Osló gegn hinsegin sam­fé­lag­inu. Því miður ekk­ert nýtt, nema að því leyti að þessi hryll­ingur ger­ist í Noregi. Í nor­rænu vel­ferð­ar­ríki. Hvað næst? Hvar? Þegar vegið er að mann­rétt­indum eru engin óhult. Þetta bakslag kemur okkur öllum við. Við verðum að hætta að skemmta skratt­anum. Þetta er dauð­ans alvara.“ skrifar hún.

Eig­in­kona hennar, Ragn­hildur Sverr­is­dóttir upp­lýs­inga­full­trúi, tjáir sig einnig og skrifar ein­fald­lega: „Ég er orð­laus. Sorgmædd. Hrædd. Reið.“

Gleði­ganga Norð­manna átti að fara fram í dag en henni hefur verið aflýst. Sumir telja það mis­tök, til að mynda, Einar Þór Jónsson, fram­kvæmda­stjóri HIV-sam­tak­anna á Íslandi. Hann skrifar: „Árásin á London Pub. Svo ótrú­lega sorg­leg. Missum aldrei trú á ást­ina og lífið. Gleði­gangan hefði átt að eiga sér stað í dag, ekki fella niður. Ekki gef­ast upp fyrir hatr­inu.“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir leik­kona veltir þessu atriði fyrir sér á Facebook. Hún skrifar:

„Frelsið er dýr­mætt. Hefðu norsk stjórn­völd átt að halda gleði­göng­unni til streitu þrátt fyrir þessa árás? Auðvitað ekki ef talið er að fólki sé hætta búin og frekara ofbeldi í vændum en ef þetta var árás eins brjál­aðs manns þá hefði kannski verið sterk­ari leikur að sýna hatr­inu í tvo heim­ana og standa með kær­leik­anum þrátt fyrir árás­ina. Ég veit það ekki, velti þessu bara fyrir mér. Hvað sem öðru líður þá eru allir hat­urs­glæpir við­bjóðs­legir. Þetta er hræði­lega sorg­legur heimur sem við búum í. Ástin er merki­leg­asta aflið í heim­inum. Allt annað er drasl.“

Sig­ur­steinn Másson fjöl­miðla­maður tekur undir með henni. Hann segir í athuga­semd við færslu Stein­unar: „Ég hef verið að hugsa um það sama í morgun. Af örygg­is­á­stæðum, á meðan verið er að ganga úr skugga um að það eru ekki fleiri með honum í hat­urs­glæpnum, þá er lík­lega rétt­ast að halda ekki hátíð­ina. Hefði þó verið rétt­ara, held ég, að fresta Pride um óákveð­inn tíma í stað þess að aflýsa.“

Páll Óskar er á sama máli en hann skrifar á Facebook: „Ég hef tvisvar troðið upp á Oslo Pride og London Pub. Þetta stendur mér svo nærri, að fyrir mér gæti þessi frétt alveg eins verið um Spotlight eða Kiki. Þetta hefði auð­veld­lega getað verið ég. Ég gæti verið dáinn núna. Let that sink in.

Ég skil mæta vel að norsku Gleði­göng­unni sé frestað á meðan verið er að athuga hvort þessi hryðju­verka­maður hafi verið í vit­orði með fleirum. En þar sem það er engu lík­ara en að hér sé ein brotin sál að verki, (sam­kvæmt þess­ari frétt) þá myndi ég per­sónu­lega alls ekki fresta göng­unni. Nú er einmitt rík ástæða til að fara í til­finn­inga­þrungna og kraft­mikla göngu. Ég vona að þau fresti um viku, í mesta lagi, og kýli svo á það.

Það eina sem maður lærir af þessum ógeðs­legu fréttum vik­unnar, hinsegin fólk drepið í Noregi – og skertur réttur kvenna til þung­un­ar­rofs í Banda­rík­unum – er að þessi bar­átta milli hat­urs og kær­leika verður ALDREI BÚIN. ALDREI BÚIN. ALDREI.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina