Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ekki gleyma ættingjum með Alzheimer „Besti tími dagsins þegar ég bíð eftir að Ellý sjái mig“

Ekki gleyma ættingjum með Alzheimer „Besti tími dagsins þegar ég bíð eftir að Ellý sjái mig“

„Ég vil líka hvetja ykkur til verja tíma með vinum, ætt­ingjum eða kunn­ingjum sem sjúk­dóm­inn snerta. Það eigið þið ekki bara að gera þeirra vegna. Þið eigið líka gera það ykkar vegna. Lífið er fjöl­breyti­legt. Það er erfitt en það er líka fal­legt. Það er þrosk­andi að sjá og taka þátt í fjöl­breyti­leik­anum. Það er sagt að heila­bilun sé löng kveðju­stund. En það má segja það sama um lífið. Verum því ekki of upp­tekin af kveðju­stund­inni og lifum meðan lífið leyfir.“

Þetta eru loka­orð Magnúsa Karls Magn­ús­sonar, pró­fess­ors við Lækna­deild HÍ, í pistli sem hann birtir á Facebook og hefur snert marga. Eig­in­kona hans glímir við Alzheimer-sjúk­dóm­inn ill­víga en Magnús leggur mikla áherslu á að lífið sé ekki búið þrátt fyrir það. Margir hafa und­an­farið deilt á Facebook hug­vekju um Alzheimer-sjúk­dóm­inn. Magnúsi hlýnar um hjarta­rætur við að sjá þá sam­kennd.

Hann seg­ist þó vilja draga úr hræðslu við sjúk­dóm­inn. „Síðustu daga hafa margir sýnt hlýju og sam­kennd með því að deila texta um Alzheimer og aðrar heila­bil­anir. Þetta er gert af mik­illi hjarta­hlýju og mér þykir óskap­lega vænt um þegar ég sé vini og kunn­ingja deila þess­ari hug­vekju. En Alzheimer er þó miklu marg­breyti­legri og líf fólks með þennan sjúk­dóm oft svo miklu inni­halds­rík­ara en sú mynd sem dregin er upp. Ástæða þess að ég vek athygli á þessu er sú mikla hræðsla sem er við þennan sjúk­dóm og með­fylgj­andi for­dómar sem hræðsl­unni fylgja. Sjúk­dóm­ur­inn er vissu­lega mjög erf­iður, en það er margt í líf­inu sem er erfitt. Erf­ið­leikum fylgja líka sigrar og gleði,“ segir Magnús.

Hann seg­ist dást af því hvernig eig­in­kona hans Ellý hefur tek­ist á við sjúk­dóm­inn. „Við Ellý höfum verið í sam­býli við þennan sjúk­dóm í sex ár og ég er alltaf að læra af Ellý minni hvernig maður tekst á við erf­iða hluti. Hún tekst á við sinn sjúk­dóm með reisn, hrein­skilni og gleði. Hún kom út úr skápnum. Hún nýtur lífs­ins. Það er ekki hægt að hafa betri sessu­naut á tón­leikum en Ellý. Gleðin, þakk­lætið og inn­lifunin er ein­læg og smit­andi. Það er líka besti tími dags­ins þegar ég kem á Roðasali, kíki inn í setu­stofu og bíð eftir að Ellý sjái mig. Hún ríkur á fætur og segir glað­lega, “Maggi minn kom­inn!” En það er einnig gaman að hitta ynd­is­legar konur sem búa með Ellý, þær brosa glað­lega þegar Ellý heilsar mann­inum sínum. Starfs­kon­urnar eru líka frá­bærar, and­inn ein­stakur og alltaf gleði. Svona var þetta einnig í Hlíðabæ, þegar Ellý fór þangað dag­lega í dag­þjálfun,“ segir Magnús og bætir við að lokum:

„PS Myndin af okkur hjónum var tekin fyrir rúmri viku þegar við vorum að fara í fimm­tugs­af­mæli hjá vinum og það var sko engin kveðju­stund.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina