Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Séra Gísli Gunnarsson, nýkjörinn vígslubiskup á Hólum: „Sorgin gleymir engum“

Séra Gísli Gunnarsson, nýkjörinn vígslubiskup á Hólum: „Sorgin gleymir engum“

„Í haust mun ég ásamt konu minni, Þuríði Kr. Þor­bergs­dóttur, flytja heim að Hólum þar sem við verðum búsett og þaðan mun ég sinna starf­inu; við erum svo sem ekki að flytja neitt burt úr Skaga­firði. Við erum bara að færa okkur til,“ segir séra Gísli Gunn­ars­son, sókn­ar­prestur í Glaumbæ í Skaga­firði, sem nýlega var kjör­inn vígslu­biskup að Hólum. „Vissu­lega verður tölu­verð breyt­ing á starf­inu þar sem ég hætti að vera sókn­ar­prestur og tek við störfum vígslu­bisk­ups sem eru með nokkru öðrum hætti heldur en prests­starfið.“

Séra Gísli segir að helstu verk­efni vígslu­bisk­ups að Hólum felist í að sjá um þá starf­semi sem er á Hólum í Hjalta­dal og vera kirkju­legur tals­maður stað­ar­ins og sjá einnig um þá dag­skrá sem þar fer fram til dæmis á sumrin þar sem er messað á hverjum sunnu­degi. Þá hafa verið haldnir þar tón­leikar og aðrir menn­ing­ar­við­burðir aðal­lega á sumrin. „Hólastifti er land­svæðið frá Hrúta­firði að vestan og austur að Álfta­firði þannig að þetta er tölu­vert stórt svæði og vígslu­biskup á að hafa yfir­um­sjón með kirkju­legu starfi á svæð­inu og vera til halds og trausts fyrir starfs­fólkið og einnig að heim­sækja söfn­uð­ina og sinna þeim verk­efnum sem til falla. Svo fylgja þessu emb­ætti líka ýmsar skyldur varð­andi nefnd­ar­störf innan stjórn­sýslu kirkj­unnar eins og til dæmis bisk­upa­fundir. Ég mun líka sjá um að messa í Hóla­dóm­kirkju í sam­starfi við sókn­ar­prest­inn sem býr á Hofsósi.“

Jón Arason og Guðbrandur Þorláksson

Vígslu­biskup að Hólum. Upp í hug­ann koma gengnir bisk­upar. Sagan. Í lista yfir Hóla­bisk­upa má meðal ann­ars finna þá sem voru í kaþ­ólskum sið svo sem Jón Ögmunds­son (1106-1121), Guðmund góða Arason (1203-1237)  og svo var það Jón Arason (1524 – 1550). Að lúth­erskum sið má meðal ann­ars nefna Guðbrand Þor­láks­son (1571-1627). Hvaða máli skiptir það fyrir séra Gísla að verða vígslu­biskup á þessum sögu­fræga stað?

„Það skiptir miklu máli. Þarna var settur á stofn bisk­ups­stóll árið 1106 þannig að sagan er orðin mjög löng og eins hefur verið skóla­starf þarna í gegnum ald­irnar og er enn. Nú er háskóli á Hólum. Og auð­vitað er þarna mikil saga. Manni finnst það dálítið skrýtið að vera hlekkur í þeirri keðju sem þarna er. Ein kirkjan sem ég þjóna er Víði­mýr­ar­kirkja og á sínum tíma varð prestur þar biskup að Hólum og það var Guð­mundur góði. Þannig að þetta er alla­vega í annað sinn sem prestur sem þjónar á Víðimýri verður biskup að Hólum.“

Séra Gísli er spurður hvern af fyr­ir­renn­urum hans hann líti mest upp til. „Saga Jóns Arasonar er vissu­lega ákaf­lega merki­leg; hann var síð­asti kaþ­ólski bisk­upinn. Og turn­inn á Hólum var einmitt reistur til minn­ingar um hann. En ætli maður myndi ekki samt nefna Guðbrand Þor­láks­son sem gaf út fyrstu Biblíuna á Íslandi, Guð­brands­biblíu.“

Séra Gísli fetar þannig í fót­spor merkra manna.

„Já, reyndar hefur þetta emb­ætti í seinni tíð verið með öðru sniði en var á öldum áður. En engu að síður þá má segja að maður sé að taka þátt í þess­ari sögu með því að vera kom­inn til Hóla.“

Það sem ég vil helst leggja áherslu á er að efla þjóð­kirkj­una og þá þarf að ná til unga fólks­ins.

Hvernig vill séra Gísli að fólk minn­ist hans sem vígslu­bisk­ups að Hólum; hvaða fingraför vill hann skilja eftir á þessum sögu­fræga stað? „Það er alveg ljóst að ég er ekk­ert ung­lamb og mun ekki vera þarna í mjög mörg ár. En það sem ég vil helst leggja áherslu á er að efla þjóð­kirkj­una og þá þarf að ná til unga fólks­ins; efla barna- og æsku­lýðs­starf. Ég hef mik­inn áhuga á að styðja við það góða starf sem víða er unnið í því og eins varð­andi sál­gæslu – að kirkjan bjóði upp á sál­gæslu fyrir alla og þá er ég ekk­ert að tala endi­lega bara um trú­ar­lega sál­gæslu heldur það að starfs­fólk kirkj­unnar sem margt hefur góða menntun á þessu sviði nái betur til fólks sem er í ein­hvers konar erf­ið­leikum.“

Trúin í daglega lífinu

Hvað er trúin í huga prests­ins og til­von­andi vígslu­bisk­ups?

Ég er ekk­ert að pæla endi­lega í því hvernig hann var get­inn.

„Trúin skiptir miklu máli í líf­inu; í dag­legu lífi. Að geta treyst á það að æðri máttur sé til; æðri máttur sem hægt er að nálg­ast í bæn­inni til dæmis og lestri, íhugun og hug­leiðslu. Það skiptir miklu máli því oft er það þannig í líf­inu að maður ræður ekki við alla hluti og hefur ekki stjórn á öllu og þá er gott að geta treyst því að æðri máttur sé til sem hægt er að fela þá hluti sem maður ræður ekki við. Og hvíla í því; hvíla í þeirri trú. Og fyrir mér er trúin ekki ein­hver upp­hafn­ing heldur hluti af dag­legu lífi; að fólk geti falið áhyggjur sínar og erf­ið­leika æðri mætti sem í huga krist­ins fólks er Guð. Hver er hug­mynd séra Gísla varð­andi það hvort Jesús hafi verið ein­get­inn? „Þetta er mjög guð­fræði­leg spurn­ing. Og hvað þýðir það að vera ein­get­inn? Fyrir mér þýðir það að Jesús hafi verið sendur frá Guði og ég er ekk­ert að pæla endi­lega í því hvernig hann var get­inn. Það er ekk­ert trú­ar­legt vanda­mál í mínum huga.“

Þrír bræður látnir

Margir leita til sókn­ar­prests­ins síns á sorg­ar­stundum og hann huggar fólk. Gefur því ráð. Sjálfur hefur séra Gísli upp­lifað sorg­ina.

Allir lenda á ein­hvern hátt í sorg­inni.

„Ég missti á síð­asta ári tvo bræður mína úr krabba­meini og áður hafði ég misst þann þriðja. Þannig að auð­vitað kemst eng­inn frá því að kveðja þá sem þeim þykir vænt um og allir lenda á ein­hvern hátt í sorg­inni. Sorgin gleymir engum. Og þá hefur það reynst mér vel að eiga trú og geta notað bæn­ina.“

Að hvaða leyti hjálp­aði trúin séra Gísla í sorg­inni? Hann segir að það felist meðal ann­ars í að biðja fyrir við­kom­andi og trúa því að dauð­inn sé ekki endir alls. „Ég trúi því að við eigum líf að loknu þessu lífi og það huggar líka þó það sé erfitt að kveðja. Og líka að þakka fyrir það sem maður hefur átt með við­kom­andi. Aðkoma kirkj­unnar í tengslum við and­lát og útför veitir einnig huggun og líkn.“

Ekki neinar tilviljanir

Sumir segja að hinir látnu séu hjá okkur og sumir segj­ast kom­ast í sam­band við þá. Hver er skoðun séra Gísla á þessu?  “Jesús var ekk­ert að lýsa því hvernig lífið væri eftir dauð­ann. Hann bara benti okkur á að þetta líf héldi áfram hjá Guði. Ég ætla ekki að setja mig í dóm­ara­sæti varð­andi fólk sem hefur reynslu af því að finna fyrir ein­hverju varð­andi sálir þeirra sem eru látnir en sjálfur hef ég ekki farið til miðla og hvet fólk ekki til þess. En ég er heldur ekk­ert að dæma fólk sem gerir það.“

Hins vegar er ýmis­legt sem ger­ist sem erfitt er að útskýra.

Hefur séra Gísli ein­hvern tím­ann upp­lifað eitt­hvað óút­skýr­an­legt? „Nei. Ég sjálfur er ekk­ert næmur á slíkt og hef ekki reynslu af því. Hins vegar er ýmis­legt sem ger­ist sem erfitt er að útskýra. Ég trúi því að ýmis­legt ger­ist í lífi manns sem getur verið bæna­svar jafn­vel þótt maður sjái það ekki akkúrat þegar það ger­ist en upp­götvar seinna að þetta var manni til góðs eða leiddi mann eitt­hvað lengra en maður ætl­aði.“

Bæn Frans frá Assisi

Hvaða áhrif getur bænin haft? Hversu sterk er hún?

„Bænin getur verið hug­leiðsla. Fólk getur til dæmis að kvöldi til farið yfir í hug­anum eitt­hvað sem gerð­ist um dag­inn og sem við­kom­andi líður kannski illa yfir. Það er líka hægt að þakka fyrir eitt­hvað sem gerð­ist sem við­kom­andi er þakk­látur fyrir. Fólk biður stundum um eitt­hvað ákveðið en stundum getur bæna­svarið verið á annan veg en við ætl­uðum. Lífið er oft ekk­ert rétt­látt og ég held að það sé ekki gott að reyna að útskýra alla hluti. Okkur er ekki ætlað að skilja allt. Sumt er eitt­hvað sem við skiljum ekki og við leggjum það þá í hendur þess sem öllu ræður og við­ur­kennum að við ráðum ekki við eða skiljum ekki alla hluti. Þannig að það bara.“

Á til­von­andi vígslu­biskup að Hólum upp­á­halds­bæn?

„Gömlu bæna­versin sem maður lærði sem barn eru alltaf rík í huga svo sem „Vertu yfir og allt um kring”. Fað­ir­vorið er aðal­bænin sem maður fer alltaf með og mér finnst bæn Frans frá Assisi fal­leg og sterk. Einnig má nefna AA-bæn­ina.“

Séra Gísli nefndi bæn Frans frá Assisi. „Hann er að biðja um að vera ljós í myrkr­inu og koma með kær­leika þar sem hat­rið ríkir.“

Bæn heilags Frans frá Assisi

Drottinn, lát mig vera verk­færi friðar þíns.

Hjálpa mér til að leiða inn kær­leika,

þar sem hatur ríkir,

trú, þar sem efinn ræður,

von, þar sem örvænt­ingin drottnar

Hjálpa mér að fyr­ir­gefa, þar sem

rangs­leitni er höfð í frammi,

að skapa ein­drægni þar sem sundr­ung ríkir

að dreifa ljósi þar sem myrkur grúfir

og flytja fögnuð þar sem sorgin býr.

Meistari, hjálpa mér að kapp­kosta ekki

svo mjög að vera hugg­aður sem að hugga,

ekki svo mjög að vera skil­inn sem að skilja,

ekki svo mjög að vera elsk­aður sem að elska.

Því að það er með því að gefa að vér þiggjum

með því að fyr­ir­gefa að oss verður fyr­ir­gefið

með því að týna lífi voru að vér vinnum það.

Það er með því að deyja að vér

upp­rísum til eilífs lífs.

AMEN

(Í þýð­ingu sr. Sig­ur­jóns Guð­jóns­sonar.)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina