Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þekkt þöggun Þjóðkirkjunnar vegna máls Ólafs Skúlasonar: „Ég kalla þetta tilraun til nauðgunar“

Þekkt þöggun Þjóðkirkjunnar vegna máls Ólafs Skúlasonar: „Ég kalla þetta tilraun til nauðgunar“
Fjöldi kvenna bar Ólaf Skúlason þungum sökum.

Fyrri part árs­ins 1996 varð eitt mesta fjöl­miðla­fár síð­ari tíma þegar biskup Íslands, Ólafur Skúlason, var bor­inn þeim sökum að hafa áreitt nokkrar konur þegar hann var prestur í Bústaða­kirkju. Í for­síðu­við­tali við DV í mars 1996 sagði ein þeirra, Sigrún Pálína Ingv­ars­dóttir, sögu sína í fyrsta sinn undir nafni.

Upphaf umfjöll­un­ar­innar má rekja til þess að Sigrún Pálína kærði séra Vigfús Þór Árnason, sókn­ar­prest í Graf­ar­vogi, til siða­nefndar Presta­fé­lags Íslands fyrir að hafa brugð­ist sér. Sigrún Pálína hafði trúað bisk­upi fyrir því að séra Ólafur Skúlason hefði áreitt sig. Vildi hún að Vigfús tæki málið upp við aðra presta. Það gerði hann ekki. DV komst á snoðir um kæruna. Gísli Krist­jáns­son blaða­maður fjall­aði um hana í blað­inu. Þar með fór af stað umfjöllun sem átti eftir að standa til árs­ins 2010 með stuttum hléum.

Fleiri meint fórn­ar­lömb bisk­ups­ins sögðu svip­aða sögu. Biskup Íslands þvertók fyrir að fram­burður Sigrúnar Pálínu og ann­arra vitna væri sann­leik­anum sam­kvæmt. Sann­kallað fjöl­miðla­fár upp­hófst í fram­hald­inu. Í fyll­ingu tím­ans hrökkl­að­ist bisk­upinn úr emb­ætti.

Hjónabandserfiðleikar

Í við­tal­inu við Sigrúnu Pálínu Ingv­ars­dóttir kom fram að Ólafur hefði gefið hana og  fyrr­ver­andi eig­in­mann hennar saman. Þegar hún lenti í hjóna­bandserf­ið­leikum leit­aði hún til prests­ins sem sálu­sorg­ara. „… Ég hitti hann fjórum sinnum og hann virk­aði á mig sem góður maður og það var gott að tala við hann …,“ sagði Sigrún Pálína um atburða­rás­ina 17 árum fyrr þegar hún, þá 22 ára, leit­aði ásjár prests­ins.

Skellti í lás

Hún seg­ist hafa trúað honum fyrir því að hún hefði lent í kyn­ferð­is­legri áreitni sem barn. Þau áttu nokkra fundi um erf­ið­leik­ana. Á fjórða fund­inum, sem var að kvöldi til, lýsti Sigrún Pálína því að bisk­upinn hefði látið til skarar skríða. „Þá stakk hann upp á því að sýna mér skrúð­húsið þar sem hann sýndi mér messu­klæðin,“ sagði Sigrún Pálína við DV. Þaðan lá leið bisk­ups og sókn­ar­barns inn á skrif­stofu prests­ins. „… Í sömu andrá skellti hann í lás og ég sá að ég var stödd inni í læstu, glugga­lausu her­bergi. Að sinni ætla ég ekki að lýsa því hvað gerð­ist þarna,“ sagði hún og vildi ekki útskýra í smá­at­riðum hvað hefði gerst.  „Ég ræði málið núna fyrst og fremst til að svara þeim ósann­indum sem Ólafur Skúlason kom fram með í sjón­varp­inu,“ sagði Sigrún Pálína árið 1996.

– Var þetta kyn­ferð­is­leg áreitni? spurði blaða­mað­ur­inn. „Ég kalla þetta til­raun til nauðg­unar. Þegar við­kom­andi neytir afls­munar til að koma fram vilja sínum og fórn­ar­lambið þarf að beita afli til að kom­ast undan er farið yfir mörkin á milli kyn­ferð­is­legrar áreitni og nauðg­un­ar­til­raunar,“ sagði hún.

Áfall

Sigrún Pálína seg­ist hafa orðið fyrir miklu áfalli við þennan atburð. „Ég komst út úr kirkj­unni, fór heim og brotn­aði alveg niður. Ég skalf og grét alla nótt­ina. Ég sagði minum nán­ustu frá þessu en það var alls staðar sama svarið: „Þú getur ekk­ert gert, þetta er orð á móti orði.““

Eftir að DV opn­aði málið var það til umfjöll­unar í öllum fjöl­miðlum. En kirkjan þverskall­að­ist við að gera eitt­hvað í mál­inu. Málið reynd­ist Sigrúnu Pálínu erfitt og hún flutti til Dan­merkur. Hún virt­ist hafa tapað fyrir bisk­upi.

Eftir mikið fjöl­miðla­fár árið 1996 minnk­aði áhugi almenn­ings. Ólafur biskup hætti síðar án þess að við­ur­kenna sök og Karl Sig­ur­björns­son varð biskup. Það er kald­hæðni örlag­anna að Karl hafði komið að máli for­vera síns á frum­stigi og var sak­aður um þöggun. Og málið átti eftir að reyn­ast honum dýr­keypt.

Guðrún Ebba stígur fram

Fjórtán árum eftir að DV tók málið upp kom það upp aftur. Dóttir Ólafs Skúla­sonar, Guðrún Ebba, hafði leitað á náðir kirkj­unnar og lýst því að faðir hennar hefði áreitt hana.

Saga Guðrúnar Ebbu var skráð. Þar komu fram ásak­anir á föður hennar.

Erindi hennar var ekki sinnt. Hún hafði ritað kirkj­unni bréf sem var ósvarað mán­uðum saman. Loks óskaði hún eftir fundi með Karli Sig­ur­björns­syni. Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir blaða­maður fékk þetta stað­fest. DV birti for­síðu­frétt árið 2010, tveimur árum eftir and­lát Ólafs Skúla­sonar, og annað fjöl­miðla­fár hófst.

Þá varð nið­ur­staðan sú að kirkjan setti af stað rann­sókn­ar­nefnd. Nið­ur­staðan nefnd­ar­innar varð til þess að kirkjan greiddi kon­unum bætur ára­tugum eftir að meint brot áttu sér stað. Karl hætti sem biskup árið 2012.

Óhætt er að full­yrða að málið varð Þjóð­kirkj­unni dýr­keypt. Mikill fjöldi hafði sagt sig úr kirkj­unni sem var um tíma trausti rúin og hefur enn ekki rétt úr kútnum.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst á Mannlíf þann 13. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina