Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Berglind Hilmarsdóttir, miðill og heilari: Að geta verið þetta millistykki er mér heiður

Berglind Hilmarsdóttir, miðill og heilari: Að geta verið þetta millistykki er mér heiður
Berglind Hilm­ars­dóttir

„Til­gangur nám­skeiðs­ins er að fræða fólk um erki­engl­ana og englana, að þau kynn­ist þeim og taki þá inn í dag­legt líf sitt, læri að tengj­ast þeim og geti kallað þá til sín,“ segir Berglind Hilm­ars­dóttir, mið­ill og heil­ari, sem heldur bráð­lega nám­skeið í engla­fræði. Samkvæmt lýs­ingu munu þátt­tak­endur fræð­ast um erki­engl­ana 15, störf þeirra og hvað þeir geta hjálpað fólki með, krist­all­ana sem hægt er að nota í sam­vinnu með englunum og fólk mun tengja sig inn á hvern þeirra.

Berglind Hilm­ars­dóttir

Fyrir mér eru englarnir ljós­verur sem aðstoða að öllu leyti í líf­inu í ljósi og kær­leika, umhyggju og heilun. Englarnir birt­ast okkur oft í þeirri mynd sem við þurfum. Ef það er til dæmis styrkur, hug­rekki, heilun, von, þraut­segja, gleði og ham­ingja fáum við það ef við erum til­búin til þess að taka á móti því því þeir mega ekki taka fram fyrir okkar frjálsa vilja. En ef við viljum hjálp­ina fáum við hana marg­falt.“

Ég sé þá skýrt og greini­lega.

Berglind seg­ist vinna mikið með englunum, miðla frá englunum skila­boðum og heila fólk með englunum. „Ég sé þá skýrt og greini­lega. Og eitt af því sem ég kenni öllum mínum nem­endum er hversu auð­velt er að tengj­ast og finna fyrir þeim.“

Margir heimar

Berglind seg­ist hafa verið mjög ung þegar hún fór að sjá og upp­lifa ýmis­legt í kringum sig og að hún hafi haft vit á að þau sem hún sá og skynj­aði vildu hjálpa.

„Hins vegar á ein­hverjum tíma­punkti lét móðir mín heitin „loka á þetta hjá mér“ þar sem hún hefur eflaust talið að þetta væri orðið of mikið fyrir barns­sál­ina í mér. Horfandi til baka lok­að­ist aldrei alveg á þetta og fyrir mér var mjög auð­velt að opna á þetta „aftur“.“

Ég sé þá sem eru farnir, ég sé aðrir víddir svo sem englana.

Berglind segir að þessi hæfi­leiki fylgi sér í sínu dag­lega lífi. „Dóttir mín hefur hins vegar alltaf talað um að mamma vissi ALLTAF ALLT. Ég vissi alltaf hvort kynið bræður mínir áttu von á þegar von var á barni. Ég var mjög ber­dreymin en verð að við­ur­kenna að það gat verið heldur óþægi­legt. Að sjá þá að handan er mitt dag­lega líf en ég að sjálf­sögðu hef fulla stjórn á hvenær og hvort ég vilji sjá þá. Ég sé þá sem eru farnir, ég sé aðrir víddir svo sem englana og ég sé, skynja og nem nátt­úru­verur.“

Hún seg­ist sem barn hafa séð konu í ruggustól sem hræddi sig en að ann­ars hræði sig lítið.

„Það sem gefur mér mest er að tengja aðra við ljósið, englana og vernd­ara sína. Og það að gefa fólki svör sem það hefur jafn­vel leit­ast eftir lengi, von eða vissu. Það gefur mér mest. Að geta verið þetta milli­stykki er mér heiður sem ég tek ekki sem sjálf­sögðum hlut og met mik­ils.“

Hefur þessi hæfi­leiki tekið eitt­hvað frá Berg­lindi? „Ég myndi ekki segja að þetta hafi tekið neitt frá mér nema stundum orku.“

Dauðinn fyrir mér eru enda­lok eins kafla.

Hún segir að fyrir sér séu þetta margir heimar, margar víddir, og fari það eftir aðstæðum í hvert og eitt skipti inn á hvað hún stilli sig. „Og það er eins og að það séu engin tak­mörk hvað við getum fengið að sjá, skynja og nema ef við viljum og erum  til­búin til.“

Hvað er dauð­inn í huga Berg­lindar?

„Dauðinn fyrir mér eru enda­lok eins kafla, þess­arar jarð­vistar, og við tekur ljósið, kær­leik­ur­inn og allt þetta fal­lega.“

Yfirþyrmandi sorg

Hvað hefur mótað Berg­lindi mest í líf­inu ótengt þessum hæfi­leika?

„Það var þegar ég eign­að­ist dóttur mína og síðar þegar að ég gerð­ist þre­föld amma. Það er fátt sem mótar mann jafn­mikið á jafn­fal­legan hátt og þegar nýtt líf kviknar og hvað þá þegar það veitir manni nýtt hlut­verk.

Ást­vina­missir hefur svo að sjálf­sögðu sett sín spor og er það eitt­hvað sem mótar mann og maður tekur með sér áfram í lífið. En þá getur líka verið kostur að geta tengst þeim, séð og fundið hvað þau eru á fal­legum stað og hvað þeim líður vel.“

Hins vegar hefur það hjálpað mér alveg gríð­ar­lega að vita af þeim á góðum stað.

Berglind segir að erf­ið­asta lífs­reynsla sem hún hefur gengið í gegnum sé þegar hún missti for­eldra sína og tvö systk­ini. „Það er erfitt með orðum að lýsa hvernig það hefur haft áhrif á mig og líf mitt, enda yfir­þyrm­andi sorg sem ekki er hægt að lýsa. Hins vegar hefur það hjálpað mér alveg gríð­ar­lega að vita af þeim á góðum stað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina