Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Björn Bjarnason: Aðildarumsóknin er viðvörun fyrir allar nágrannaþjóðir Rússa

Björn Bjarnason: Aðildarumsóknin er viðvörun fyrir allar nágrannaþjóðir Rússa
Björn Bjarna­son

„Þegar litið er til stefnu þess­ara þjóða í öryggis- og varn­ar­málum frá lokum ann­arrar heims­styrj­ald­ar­innar er í raun um gíf­ur­lega sögu­legt skref að ræða þegar þjóð­irnar tvær ganga í NATO,“ segir Björn Bjarna­son um sýn sína á umsókn Svía og Finna í NATO. „Þótt umræður hafi verið um NATO-aðild í lönd­unum um nokk­urt ára­bil var litið á hana sem fjar­lægan og næsta óhugs­andi kost. Síðan varð stefnu­breyt­ing á fáeinum vikum eða kannski frekar sól­ar­hringum eftir að Pútin sendi rúss­neska her­inn inn í Úkraínu. Það segir í raun mest um hætt­una sem ráða­menn Finna og Svía telja stafa frá óút­reikn­an­legum og stríðsóðum Pútin. Aðild­ar­um­sóknin er því við­vörun fyrir allar nágranna­þjóðir Rússa og ábend­ing um nauð­syn þess að gera allt til að fæla þá frá árás með traustum vörnum í sam­vinnu við aðra. Enginn vett­vangur er betri til þess en NATO. Með því að draga þannig úr líkum á átökum í Norður-Evrópu hafa Finnar og Svíar aukið öryggi okkar Íslend­inga, nú og til fram­búðar.“

Heims­myndin er sífellt að breyt­ast og nú fær­ist þetta nær okkur vegna stríðs­ins í Úkraínu.

Hann svífst á hinn bóg­inn einskis.

„Undir stjórn Pútins hefur Rúss­landi ekki vegnað vel og staða hans heima fyrir veikst. Hann svífst á hinn bóg­inn einskis og hefur aldrei gert til að ná auði og völdum og halda þeim. Þar hafa hern­að­ar­á­tök gagn­ast honum. Hann hélt að svo yrði einnig nú og sér yrði fagnað með blómum í Úkraínu sem stað­festir aðeins firr­ingu hans. Á meðan þetta ástand varir og Rússland lýtur stjórn manns sem þannig kemur fram gagn­vart frið­samri nágranna­þjóð, algjör­lega að til­efn­is­lausu, er ástæða til að hafa áhyggjur af þróun heims­mála.“

Ríkir hættu­legt ástand á meg­in­landi Evrópu og áhrifa þess verður vart á Norður-Atl­ants­hafi.

Hver er staða Íslands hvað varðar örygg­is­mál?

„Íslend­ingar verða að taka mið af því sem ger­ist í kringum þá eins og allir aðrir. Miðað við það sem ég hef sagt hér áður ríkir hættu­legt ástand á meg­in­landi Evrópu og áhrifa þess verður vart á Norður-Atl­ants­hafi.

Það er rangt sem haldið var fram að inn­rásar Pútins í Úkraínu yrði ekki hern­að­ar­lega vart hér á Norður-Atl­ants­hafi og ekki þyrfti að huga að örygg­is­málum Íslands á nýjan hátt í ljósi hennar. Mik­il­vægi rúss­neska Norð­ur­flot­ans sem sækir út á Atl­ants­haf frá Kóla­skag­anum fyrir austan Noreg eykst eftir því sem styrkur land­hers Rússa minnkar. Sýnir Pútin vald sitt með þessum flota? Enginn getur svarað þeirri spurn­ingu. Ferðum rúss­neskra kaf­báta í nágrenni Íslands fjölgar. Mik­il­vægi GIUK-hliðs­ins eykst.

Til marks um aukna áherslu á varnir og kaf­báta­leit á Norður-Atl­ants­hafi má nefna að sunnu­dag­inn 19. júní birt­ist á bresku vef­síð­unni The Tel­egraph frá­sögn um nauð­syn þess að auka enn kaf­báta­eft­ir­lit breska flug­hers­ins og flot­ans. Utan­rík­is­mála­nefnd danska þings­ins sam­þykkti 23. júní að senda frei­gátu sem fylgd­ar­skip með banda­rísku flug­móð­ur­skipi sem verður sent á vett­vang til að auka fæl­ing­ar­mátt á Norður-Atl­ants­hafi. Nágranna­þjóðir sem ráða yfir eigin her­afla grípa til ráð­staf­ana. Við þurfum einnig að líta í eigin barm.“

Ferðum vél­anna hefur fjölgað og þeim fylgja her­menn.

Hvað með umsvif banda­ríska hers­ins hér á landi og við landið?

„Hér er um umsvif að ræða með flug­vélum frá aðstöðu á Kefla­vík­ur­flug­velli sem lýtur dag­legri umsjá Land­helg­is­gæslu Íslands. Hingað koma eft­ir­lits­flug­vélar í leit að kaf­bátum, orr­ustu­þotur og sprengju­vélar. Ferðum vél­anna hefur fjölgað og þeim fylgja her­menn sem dvelj­ast hér tíma­bundið. Þetta er eðli­legt í ljósi þró­unar öryggis- og varn­ar­mál­anna. Það er spurn­ing hvort ekki eigi einnig að skapa betri hafn­ar­að­stöðu hér fyrir her­skip Banda­ríkja­manna og ann­arra banda­manna okkar.“

Herða landamæraeftirlit

Notkun skot­vopna eykst hér­lendis. Af hverju stafar þessi stað­reynd; þessi ógn og hvað þarf að gera að mati Björns?

„Mesta hættan fyrir almenn­ing af mis­notkun skot­vopna stafar af þeim sem fara einir út á meðal fólks til að myrða í þeim eina til­gangi að svala eigin geð­þótta eða ná sér niðri á sam­fé­lag­inu, til dæmis vegna öfga­skoð­ana. Fjöldi vopna segir ekki allt þótt hann skipti vissu­lega máli. Greining og eft­irilit, for­varn­ar­að­gerðir, skipta mestu til að minnka hætt­una á að „ein­mana úlfar“ láti að sér kveða hér og ann­ars staðar.

Besta úrræðið til að ná tökum á þeirri hættu er að herða landamæra­eft­ir­lit.

Annars konar hætta stafar af vopnum í höndum skipu­lagðra glæpa­hópa eða hryðju­verka­manna. Besta úrræðið til að ná tökum á þeirri hættu er að herða landamæra­eft­ir­lit og efla lög­gæslu almennt svo að hún hafi sem besta sýn yfir þessa glæp­a­starf­semi þar sem menn hika ekki við að grípa til vopna í inn­byrðis upp­gjöri eins og dæmin sanna.“

Varðberg

Varðberg – sam­tök um vest­ræna sam­vinnu og alþjóða­mál er félag sem stofnað var á fjöl­mennum fundi á Hótel Sögu fimmtu­dag­inn 9. des­em­ber árið 2010. Með félag­inu runnu tvö félög saman í eitt: Samtök um vest­ræna sam­vinnu og Varðberg.

Til­gangur Varð­bergs er:

  1. Að beita sér fyrir umræðum og kynn­ingu á alþjóða­málum, einkum þeim þáttum þeirra sem snúa að öryggis- og varn­ar­málum á norð­ur­hveli jarðar.
  2. Að efla skiln­ing á gildi lýð­ræð­is­legra stjórn­ar­hátta.
  3. Að vinna að kynn­ingu á sam­starfi og menn­ingu þjóða, sér­stak­lega störfum og stefnu Atl­ants­hafs­banda­lags­ins.
  4. Að hafa sam­starf við hlið­stæð félög erlendis, eftir nán­ari ákvörðun stjórnar sam­tak­anna.

„Ég var for­maður Varð­bergs í 10 ár en þá tók Njáll Trausti Frið­berts­son alþing­is­maður við for­mennsk­unni.

Frá árinu 2015 hef ég haldið úti vef­síð­unni vardberg.is en þar er að finna gíf­ur­legt magn upp­lýs­inga um þróun örygg­is­mála í okkar heims­hluta og einkum á norð­ur­slóðum. Síðan er opin öllum og ætti að vera þeim gagna­banki sem vilja fylgj­ast með fram­vindu örygg­is­mála frá íslenskum sjón­ar­hóli við mat á alþjóð­legum fréttum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina