Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Einn í gönguhóp Ólínu hvarf í þokunni – Runnu tvær grímur á hana þegar enginn kannaðist við manninn

Einn í gönguhóp Ólínu hvarf í þokunni – Runnu tvær grímur á hana þegar enginn kannaðist við manninn

Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi þing­kona, seg­ist vera meðal þess þriðj­ungs þjóð­ar­innar sem trúir á álfa, líkt og Frétta­blaðið greindi frá í morgun. Ekki nóg með það, þá seg­ist hún hafa séð álf á Horn­ströndum. Einn í göngu­hóp Ólínu hvarf þar í þoku og sást aldrei meir. Síðar kom í ljós að eng­inn hafði séð mann­inn nema Ólína.

Óhætt er að segja að saga hennar sé bæði dul­ar­full og hroll­vek­andi, líkt og flestar sögur af huldu­fólki. „Álfasaga úr eigin reynslu­heimi. Í Frétta­blað­inu í morgun las ég að þriðj­ungur þjóð­ar­innar trúir á álfa. Það er all­nokkuð. Fram kemur að fólk úti á landi sé trú­aðra í þessum efnum en borg­ar­búar. Skilj­an­legt er það, því að fólk úti á landi er í meiri nálægð við nátt­úr­una og kynjar hennar. En, hér kemur sumsé álfasaga úr eigin ranni. Haldið ykkur,“ segir Ólína.

Hún segir þetta hafa skeð við Atla­skarð. „Fyrir fáum árum fór ég sem far­ar­stjóri, einu sinni sem oftar, með göngu­hóp á Horn­strandir. Leiðin lá úr Hlöðuvík um Skála­kamb og inn með Hælavík, undir Atla­skarð og áfram út á Hæla­vík­ur­bjarg einn  sól­ríkan dag. Við fjalla­brúnir er þoku­gjarnt og þennan dag var tví­sýnt um þoku þó að sól skini í  heiði á lág­lendi. Ég lagði því ríkt á við ferða­fé­lag­ana að halda hóp­inn og fara ekki fram úr mér (ég er haldin hálf­gerðri ofsa­hræðslu við þoku, af ástæðum sem ekki verða raktar að sinni),“ skrifar Ólína.

Stuttu síðar veitti hún einum manni sér­stakan gaum. „Jæja, þegar við erum komin upp Skála­kamb­inn sé ég að maður í gulum stakki – nokkuð nýlegum á að líta – og með göngustafi, er álengdar við mig vinstra­megin, kannski 5-10 metra frá mér og gengur örlítið framar. Hann er ákveð­inn í fasi og lítur aldrei upp. Ég geri engar athuga­semdir við þetta en ákveð að hafa auga með honum þegar nær dagi þoku­slæð­unum sem voru farnar að teygja sig upp úr Atla­skarði. Göngum við þannig drjúga stund, ferða­lang­arnir allir í beinni hala­rófu á eftir mér. Siggi minn rak lest­ina eins og hans er vandi (hann passar upp á þá sem eru síð­astir), en þessi náungi var alltaf í sömu afstöðu við hóp­inn,“ segir Ólína.

Hún fór að hafa áhyggjur af þessum manni. „Nú förum við að nálg­ast Atla­skarðið og þar með þoku­slæð­ing­inn svo ég ákveð að hóa í þennan utan­lest­ar­geml­ing. Stoppa og kalla til hans. Ferða­fé­lagar mínir stansa allir sem einn og stara til skipt­ist út í heið­ina og á mig, furðu lostnir á svip. „Ég vil bara ekki týna honum“ segi ég afsak­andi, og kalla aftur – en upp­sker enn stærri augu og furðu­svipi hjá félög­unum. „Hverjum?“ spyr þá sá sem næstur mér stóð. „Nú þessum í gula stakknum“ segi ég í sömu mund og ég sný mér aftur í þá átt­ina. En viti menn! Maðurinn var þá horf­inn. Ekki inn í þok­una þó, því að þoku­bakk­inn var nokkuð langt undan. Þarna var lands­lag með því móti að í raun var ekk­ert sem gat hulið ferða­lang.“

Ólína seg­ist hafa hugsað þetta lengi og reynt að finna eðli­lega skýr­ingu. „Hvað hafði orðið af mann­inum? Ég leit yfir hóp­inn, hélt að hann hefði kannski stokkið inn í hann aftur (þó það hefði verið ólík­leg að honum tæk­ist það á örfáum sek­úndum). Þar var eng­inn gulur stakkur. Maðurinn var ein­fald­lega horf­inn eins og dögg fyrir sólu eftir að hafa fylgt okkur alla leið­ina úr Skála­kambi og inn­undir Atla­skarð.“

Hún gerði lítið úr þessu við fólkið í göngu­hópnum, það væri ekki gæfu­legt að fara­stjór­inn ræddi við ósýni­lega menn. „Ég ætla ekk­ert að reyna að lýsa svipnum á fólk­inu þegar það horfði á mig og hugs­aði sitt um þennan und­ar­lega far­ar­stjóra sem hróp­aði á ósýni­lega veg­far­endur út í loftið. Ég reyndi af veikum mætti að breiða yfir upp­á­kom­una, muldr­aði eitt­hvað um mis­sýn og steina (gula steina?) og þramm­aði svo áfram í von um að þetta myndi gleym­ast.“

Hún segir þetta ekki vera hennar einu reynslu af álfa­fólki, þó þessi saga sé mest krassandi. „Raunar hef ég ein­stöku sinnum upp­lifað eitt­hvað álíka á ferðum um hrjóstur lands­ins. Meðan ég tók leit­ar­út­köll með Skutli mínum (blessuð sé minn­ing hans) kom fyrir, þegar við vorum við leitir í óbyggðum, að ég sá fólk á ferli sem ans­aði mér ekki þegar ég kall­aði til þess og hvarf svo fyrir næsta leiti án þess að birt­ast aftur. Ég veit auð­vitað ekk­ert hvernig á því stóð, og dvaldi svosem ekki við þær hugs­anir. Meira að segja í hamra­belti Úlars­fells í Mos­fellsbæ sá ég eitt sinn tvær mann­eskjur hverfa inn í klett­inn – báðar í nútíma­legum úti­vi­starfatn­aði (engir skinn­skór eða upp­hlutir þar), en inn í klett­inn hurfu þau, annað í gulum stakki, hitt í rauðum,“ segir Ólína en bætir við að hún sé opin fyrir jarð­bundn­ari skýr­ingum.

„Þannski er falin göngu­leið þar á bak við klett­inn? Gaman væri að vita það – ég hef enn ekki lagt á mig að athuga það með því að ganga þangað sjálf. Og á meðan ég hef ekki gert það, læt ég nægja að líta þangað upp í hvert sinn sem ég ek fram­hjá, velta fyrir mér hvernig í ósköp­unum sé hægt að hverfa baki við hamra­beltið. Það bíður sinna skýr­inga – en þessar upp­lif­anir ríma sæmi­lega við nið­ur­stöð­urnar sem kynntar voru í morgun um álfa­trú lands­manna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við