Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Katrín um launamistökin: „Finnst sann­gjarnt að við endurgreiðum það“

Katrín um launamistökin: „Finnst sann­gjarnt að við endurgreiðum það“
Katrín Jak­obs­dóttir Mynd: RÚV

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, telur eðli­legt að þeir emb­ætt­is­menn sem fengu ofgreidd laun frá rík­inu síð­ustu þrjú árin end­ur­greiði hluta þeirra. Hún bendir á að um sé að ræða hvað hæst laun­uðu ein­stak­ling­ana hjá hinu opin­bera. Þetta kemur fram á Vísi.

Und­an­farið hefur verið fjallað um ofgreiðslu launa ákveð­inna starfs­manna rík­is­ins, sem höfðu fengið launa­hækk­anir. Fjár­sýsla rík­is­ins komst að þeirri nið­ur­stöðu á dög­unum að mis­tök hafi verið gerð í útreikn­ingum launa­hækk­an­anna og því hafi þessir aðilar fengið ofgreidd laun síð­ustu þrjú ár. Um er að ræða ýmsa emb­ætt­is­menn, ráð­herra og for­seta Íslands.

Dómarar til­heyra þessum hópi og hefur mik­illar óánægju gætt úr her­búðum þeirra. Þeir hafa til að mynda sagt aðgerð­ina ólög­mæta og að þeir muni leita réttar síns í mál­inu.

„Ákvörð­unin er í and­stöðu við gild­andi lög um launa­kjör dóm­ara og með henni er vegið að rétti borg­ar­anna til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir sjálf­stæðum og óvil­höllum dóm­stóli. Aðgerð­irnar fela í sér atlögu fram­kvæmda­valds­ins að dóms­vald­inu sem ekki á sér hlið­stæðu í íslenskri rétt­ar­sögu,“ segir til að mynda í yfir­lýs­ingu Dóm­ara­fé­lags Íslands vegna máls­ins.

Bjarni Bene­dikts­son. Mynd / Hákon Davíð Björns­son.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, furð­aði sig á orðum félags­ins. „Mál­staður þeirra sem mót­mæla því að nú eigi að leið­rétta ofgreidd laun er býsna aumur. Ég vænti þess að þeir vilji bera fyrir sig að hafa tekið við of háum launum und­an­farin ár í góðri trú,“ skrif­aði hann til að mynda á Facebook eftir að Dóm­ara­fé­lagið gaf frá sér sína yfir­lýs­ingu.

Kjartan Bjarni Björg­vins­son. Mynd/skjá­skot RÚV

Kjartan Bjarni Björg­vins­son, for­maður Dóm­ara­fé­lags­ins, sagði á Facebook að málið sner­ist um rétt­láta máls­með­ferð. Hann sagði að ef fjár­mála­ráð­herra fengi leyfi til þess að grípa inn í og lækka laun dóm­ara myndi það stefna sjálf­stæði dóm­stól­anna í hættu.

„Það snýst miklu frekar um þetta: Fólkið í land­inu ætti ekki að þurfa að hlusta á að það sé flókið fyrir efsta lag rík­is­ins, æðstu emb­ætt­is­menn­ina, að skila því sem ofgreitt var úr opin­berum sjóðum. Annað væri hrika­legt for­dæmi og er ekk­ert minna en sið­ferð­is­brestur,“ sagði fjár­mála­ráð­herra.

Alls voru það 260 emb­ætt­is­menn sem fengu ofgreidd laun á tíma­bil­inu. 215 gegna enn starfi sínu og verða krafðir um end­ur­greiðslu á mis­mun­inum milli ofgreiddu laun­anna og hinna réttu. Það mega þeir gera yfir tólf mán­aða tíma­bil.

Katrín Jak­obs­dóttir,

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, telur sann­gjarnt að emb­ætt­is­menn end­ur­greiði launin. Hún er sjálf meðal þeirra, auk fjár­mála­ráð­herra.

„Þegar í ljós kemur að þessi laun hafa verið of­greidd þá finnst mér sann­gjarnt að við endur­greiðum það þó að mis­tökin séu ekki okkar heldur þeirra sem greiða út launin, þá finnst mér það sann­gjarnt,“ segir hún í sam­tali við Vísi.

Hún bendir einnig á að um sé að ræða æðstu emb­ætt­is­menn þjóð­fé­lags­ins, sem hafi hæstu launin.

Ofgreiddu launin sem um ræðir nema sam­tals um 105 millj­ónum króna yfir þetta þriggja ára tíma­bil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina