Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Gistiheimili lætur fúkyrðin dynja á Rakel: „Ég þarf bara að skoða þetta“

Gistiheimili lætur fúkyrðin dynja á Rakel: „Ég þarf bara að skoða þetta“

Rakel Garð­ars­dóttir, fram­leið­andi hjá leik­hópnum Vest­ur­port og stofn­andi og fram­kvæmda­stýra sam­tak­anna Vakandi, lenti í ansi und­ar­legum orða­skiptum við, að því er virð­ist, for­svars­menn gisti­heim­ilis á Tálkna­firði, undir færslu sem hún birti á Facebook.

Færslan Rakelar sner­ist um lax­eldi, en hún deildi frétt þar sem finnskur leik­ari lýsti yfir furðu sinni á heim­ildum til lax­eldis hér á landi. „En það er alveg ó­skiljan­legt að ís­lenskir stjórn­mála­menn hafi opnað dyrnar fyrir norskum millj­arða­mær­ingum og leyft þeim að koma og eyði­leggja firð­ina ykkar, vist­kerfið, ó­spillta nátt­úru og ó­spilltan laxa­stofn. Ég meina, það er svo ó­trú­legt að ég get ekki varist því að velta því fyrir mér hver sé að hagn­ast á þessu og hvort hér sé á ferð spill­ing. Því að á meðan svo rosa­lega strangar reglur eru í gildi á Ís­landi til að vernda hinar ýmsu teg­undir þá eru allt í einu engar reglur til að vernda lax­inn fyrir þessum erfða­breytta eldis­stofni,“ sagði hinn finnski Jasper Pääkkönen í sam­tali við Vísi, en hann var staddur hér á landi að vinna við gerð heim­ild­ar­myndar um Norður-Atl­ants­haf­s­lax­inn og þær hættur sem steðja að teg­und­inni.

Facebook-síða undir nafn­inu Gisti­heim­ilið Bjarma­land skrif­aði athuga­semd við færslu Rakelar:

„Fólk á Vest­fjörðum þarf líka atvinnu og upp­bygg­ingu íslenskt fyri­tæki keypti 38.9 % hlut í ArticFich alltaf jafn furðu­legt hvernig fólk úr 101 Reykja­vík hugsar – þessi Finnski stór­leik­ari væri með adra hugsun ef hann hefði alist upp á bóndabæ í Arn­ar­firði á Vest­fjörðum.“

Rakel svarar gisti­heim­il­inu og skrifar að það hljóti að mega skapa atvinnu án þess að það komi niður á líf­ríki jarðar.

„Þessi starf­semi skapar sárafá störf & skilar í ofaná­lag ósköp litlu til sam­fé­lags­ins. Borga enga skatta. Sýnist ljóst að þarna er meiri hags­munum fórnað fyrir miklu minni. Kveðja úr Dýra­firði,“ skrifar Borgar í svari við athuga­semd gisti­heim­il­is­ins. Fleiri svara á svip­uðum nótum.

Sá sem sér um Facebook-aðgang Gisti­heim­il­is­ins Bjarma­lands skrifar þá aðra athuga­semd, ívið harka­legri:

„Ég held ad Rakel Garð­ars­dóttir ætti að gæta syn hvern hún er að drulla yfir – Jón Ívar Hall­dórs­son faðir goggl­aðu þad googlaðu svo Afa þinn sem stofn­aði nauðg­un­ar­heim­ilið Breiðu­vik. Þar sem drengjum var mis­þyrmt flottur afi þinn. Merki­legt þetta 101 pakk sem hefur aldrei mýgid í saltan sjó.“

Gisti­heim­ilið lætur ekki þar við sitja og skrifar aðra athuga­semd:

„Rakel Garð­ars­dóttir og vest­ur­port ætti ad líta í eigin barm áður enn þad ber lyga­sögu a borð fyrir Íslend­inga Eg er dóttir Jóns Ívars Hall­dórs­son skip­stjóra þid eruð hálvitar Rakel Garð­ars­dóttir Punktur.“

Eftir þessar athuga­semdir virð­ist fólki vera nóg um og fara sumir að velta fyrir sér und­ar­lega frá­hrind­andi mark­aðs­setn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

„Ekki vildi ég gista á þessu orð­ljóta gisti­heim­ili,“ segir Sonja til að mynda, og Guðrún skrifar:

„Ekki mun ég heldur gera það – ummæli þessar ves­an­lings mann­eskju á Bjarma­landi sýna að hún gengur ekki heil til skógar – og að reyna að sverta mann­orð fólks sökum þess hvað afi þess gerði !!!!“

Rakel leggur þá sjálf orð í belg og svarar orðum þess sem skrifar fyrir tálkn­firska gisti­heim­ilið:

„Ég þekki ekki til þess afa… þú hlýtur að fara manna­villt.“

„Frábær mark­aðs­setn­ing hjá þér… Spurning um að nota eigin prófíl frekar til að básúna dóna­skap þinn og van­still­ingu á net­inu í gegnum fyr­ir­tækið þitt. Þú ert sjálfri þér og Tálkn­firð­ingum til skammar,“ skrifar Ársæll.

Rakel skrif­aði síðan aðra færslu þar sem hún birti skjá­skot af athuga­semdum gisti­heim­ils­ins.

„Get ekki annað en varað ykkur vini mína við að gista á þessu orð­ljóta gisti­húsi…. skil ekki hvað er málið – en gvuð forði okkur frá því. ps. kom útaf umræðu um finnskan leik­ara og sjó­eldi…. hver þessi Jón er og hver þessi afi minn veit ég ekk­ert um … svo bý ég í 105 svo e-jar stað­reyndir komi fram,“ skrifar Rakel.

Telur eiginkonu sína hafa skrifað athugasemdirnar

Líkt og áður sagði er gisti­heim­ilið stað­sett á Tálkna­firði. Skráður stjórn­ar­for­maður þess er Gísli Matth­í­as­son. Mannlíf reyndi ítrekað að ná í gisti­heim­ilið við vinnslu frétt­ar­innar, án árang­urs. Blaða­maður náði hins vegar sam­bandi við Gísla og spurði hann út í ummælin, skrifuð í nafni fyr­ir­tæk­is­ins.

Í fyrstu kann­að­ist Gísli ekki við athuga­semdir sem skrif­aðar hefðu verið í nafni Gisti­heim­il­is­ins Bjarma­lands. Hann kann­að­ist ekki heldur við Rakel.

Þegar blaða­maður útskýrði málið nánar sagði hann: „Ég hef eitt­hvað heyrt en ég er ekki búinn að sjá þetta og veit ekk­ert um þetta.“

Blaða­maður spurði þá hver væri með Facebook-aðgang gisti­heim­il­is­ins.

„Það er konan mín sem er með það.“

Þannig að hún skrifar þessar athuga­semdir?

„Já, það held ég að hljóti að vera.“

Gísli sagð­ist ekki hafa rætt málið við kon­una sína og gat ekki gefið blaða­manni sam­band við hana.

„Ég þarf bara að skoða þetta. Ég vil ekki segja neitt um þetta, ekki nokkurn skap­aðan hlut,“ sagði Gísli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina