Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þórólfur ráðleggur fólki að fara varlega: „Ljóst að þetta afbrigði er meira smitandi“

Þórólfur ráðleggur fólki að fara varlega: „Ljóst að þetta afbrigði er meira smitandi“
Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir. Mynd/skjá­skot: RÚV

Ný und­ir­af­brigði omicron-afbrigðis kór­ónu­veirunnar, omicron BA.4 og BA.5, hafa á stuttum tíma orðið útbreidd­ustu afbrigðin í nýjum smitum víða um heim. Ísland er engin und­an­tekn­ing, en BA.5-afbrigðið ber nú ábyrgð á meiri­hluta smita hér á landi, sem hefur fjölgað tals­vert und­an­farnar vikur. Hin nýju afbrigði virð­ast meira smit­andi en fyrri afbrigði, auk þess sem það lítur út fyrir að þau eigi greið­ari leið fram­hjá vörnum bólu­setn­inga og fyrri sýk­inga. Sótt­varna­læknir segir ástæðu til þess að fólk fari var­lega, til að mynda í marg­menni, skerpi á ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum og hvetur alla til þess að þiggja örv­un­ar­skammt af bólu­efni.

Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, segir í sam­tali við Mannlíf að BA.4-afbrigðið sé ekki algengt hér á landi en að BA.5 hafi verið í miklum vexti. Hann segir að líkt og víð­ast hvar ann­ars­staðar beri það afbrigði ábyrgð á meiri­hluta greindra smita á land­inu und­an­farið.

„Það er nokkuð ljóst að þetta afbrigði er meira smit­andi en fyrri afbrigði,“ segir Þórólfur. Hann segir sífellt virð­ast bæt­ast í flóru afbrigð­anna og eðli­lega nái þau mestri útbreiðslu sem séu mest smit­andi.

Hann segir afbrigðið ekki virð­ast valda meiri veik­indum en fyrri afbrigði omicron, sem voru mest áber­andi á fyrri hluta árs. „Það er ekki að sjá að svo sé.“

Bólusetningar og örvunarskammtur skipta miklu

„Það er rétt að afbrigðið er að smokra sér undan vernd bólu­efn­anna, en við vitum þó að bólu­setn­ingin er ekk­ert sér­stak­lega góð til þess að koma í veg fyrir smit en er ennþá góð til að koma í veg fyrir alvar­leg veik­indi. Þannig að það er eftir miklu að slægj­ast í því að láta bólu­setja sig og fá þennan örv­un­ar­skammt,“ segir Þórólfur.

Hann segir að eftir að BA.5-afbrigðið fór að dreifa sér um sam­fé­lagið hafi farið að bera meira á aukn­ingu í end­ursmitum. „Hjá þeim sem hafa sýkst áður. Þeir eru svona lík­legri til þess að fara að smit­ast aftur.“ Hann segir það þó algeng­ara meðal þeirra sem smit­uð­ust af Covid-19 áður en omicron-afbrigðið kom til sög­unnar, í byrjun des­em­ber síð­ast­liðnum. „Það getur líka verið tím­inn; því lengri tími sem líður, því meira dvín verndin.“

Mynd/skjá­skot RÚV

Getur svipað til fyrstu afbrigða

Erlendis hefur eitt­hvað verið fjallað um að ein­kenni hinna nýju afbrigða geti jafn­vel svipað meira til ein­kenna sem fylgdu fyrstu afbrigðum Covid-19, í upp­hafi far­ald­urs­ins. Þórólfur kann­ast við að hafa séð það, en það sjá­ist þó aðal­lega hjá þeim sem séu óbólu­settir eða illa bólu­settir. „Þeir eru að veikj­ast alvar­legar og með ein­kenni sem eru svipuð og sáust þarna í upp­hafi far­ald­urs­ins. Þannig að það er klárt að bólu­setn­ingin er að draga veru­lega úr alvar­leika smit­anna. Þannig að ég held að alvar­leiki afbrigð­is­ins sem slíks sé í raun og veru kannski ekk­ert minni en í fyrstu afbrigð­unum, við erum bara komin með betra ónæmi í sam­fé­lagið. Bæði út af bólu­setn­ingum og fyrri smitum, sem eru að dempa þetta niður. Samt erum við að sjá svona mikið af sýk­ingum.“

Sér ekki ástæðu til aðgerða en fólk ætti að fara varlega

Aðspurður seg­ist Þórólfur ekki sjá ástæðu til þess að gripið verði til sér­stakra aðgerða eða tak­mark­ana vegna útbreiðslu smita. „Hins vegar höfum við verið að hvetja fólk, sér­stak­lega þá sem eru óbólu­settir eða illa bólu­settir, hafa ekki fengið Covid, fólk sem er eitt­hvað við­kvæmt fyrir; eldra fólk, fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, að fara var­lega. Nota grímur og gæta vel að hand­þvotti, fjar­lægð­ar­mörkum og þessu sem allir þekkja nú. Þær ráð­legg­ingar eru ennþá í gildi.

Svo getur maður líka hvatt almenn­ing til að gæta vel að sínum grunn­sótt­vörnum alla daga. Það er hand­þvottur, kannski að forð­ast fjöl­menni og svo­leiðis. En þetta eru bara svona almennar ráð­legg­ingar sem við erum að koma með – mér sýn­ist nú fólk kannski ekk­ert vera að passa sig neitt sér­stak­lega vel svona upp til hópa. En þetta eru aðal­lega þeir sem eru við­kvæmir fyrir; eldra fólk og fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, vegna þess að við vitum að það fólk getur farið illa út úr sýk­ing­unni, jafn­vel þótt það sé bólu­sett. Þannig að það er um að gera að það fólk passi sig.“

Þórólfur segir útbreiðslu smita eflaust hafa mikið að gera með tíðar sam­komur þessa dag­ana. „Það eru alls konar veislur í gangi, útskriftir, ferm­ingar og slíkt. Það spilar klár­lega meg­in­rull­una, plús það hvað þetta er smit­andi afbrigði.“

Þórólfur segir ein­dregið mælt með því að fólk fái örv­un­ar­skammt, óháð því hvort það hafi smit­ast af Covid eftir að hafa fengið fyrri og seinni skammt bólu­efnis. „Við vitum auð­vitað að það er vernd falin í því að fá Covid, en við vitum ekki nákvæm­lega hversu góð hún er og ég held að það sé full ástæða til þess að hvetja fólk til að vernda sig bara sem best. Þannig að við erum að mæla með þessum örv­un­ar­skammti fyrir alla, nema börnin.“ Hann seg­ist því tví­mæla­laust leggja það til við hrausta ein­stak­linga sem hafi fengið fyrri og seinni skammt bólu­efnis, auk sýk­ingar, að ná sér í þriðju spraut­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina