Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sonja er enn með innilokunarkennd eftir vistina á Upptökuheimilinu: „Ég fæ ennþá martraðir“

Sonja er enn með innilokunarkennd eftir vistina á Upptökuheimilinu: „Ég fæ ennþá martraðir“
Mynd úr mynda­banka Mynd: Shutterstock

Sonja Ingva­dóttir var ein þeirra stúlkna sem vistaðar voru á stúlkna­heim­il­inu Bjargi á árunum 1965 til 1967. Hún var 14 ára gömul þegar hún var send á heim­ilið og er ein þeirra stúlkna sem hefur sakað for­svars­menn og starfs­konur heim­il­is­ins um harð­ræði og ofbeldi.

Sonja var ein þeirra sem stóð að kæru á hendur Bjargi árið 1967. Á end­anum var málið láta niður falla því ekki þóttu nægar sann­anir fyrir hendi til þess að höfða opin­bert mál. Bjarg varð seinna eitt þeirra vist­heim­ila sem ríkið greiddi sann­girn­is­bætur vegna og þótti senni­legt að stúlk­urnar sem þar voru vistaðar hefðu þurft að þola ófor­svar­an­lega með­ferð þeirra sem þar stjórn­uðu og störf­uðu.

Sonja og fleiri konur sem dvöldu á Bjargi hafa borið séra Auði Eiri Vil­hjálms­dóttur þungum sökum, en hún átti frum­kvæði að opnun Bjargs og starf­aði þar þann tíma sem heim­ilið var opið. Hún er meðal ann­ars sökuð um and­legt ofbeldi og að hafa vitað upp á hár hvers konar með­ferð við­gekkst á Bjargi. Hún er sömu­leiðis sögð hafa fyr­ir­skipað ein­angrun og harka­lega með­ferð stúlkn­anna á Upp­töku­heim­il­inu í Kópavogi, þar sem þær hafi verið vistaðar fyrir veru sína á Bjargi og sendar á ef þær óhlýðn­uð­ust.

Sonja segir sögu sína í fyrsta sinn opin­ber­lega í ítar­legu við­tali í nýjasta tíma­riti Mannlífs.

Sótt í lögreglubíl

Sonja bjó hjá móður sinni og stjúp­föður áður en hún var send á Bjarg.

„Ég reifst við móður mína og stjúpi minn vildi ekki hafa mig, hann vildi losna við mig. Elsta dóttir kon­unnar sem fæddi mig var farin að heiman og ég var eftir. Hann var búinn að eign­ast tvö börn með móður minni.

Ég var fjórtán ára – sýndu mér þann fjórtán ára ein­stak­ling sem ekki rífst við for­eldra sína eða er ósam­mála þeim. Þetta er svona þegar maður byrjar að fara inn í full­orð­ins­heim­inn, með því að rífa sig frá for­eldrum sínum – vera ósam­mála.“

Sonja seg­ist hafa verið í mat heima hjá vin­konu sinni þegar lög­reglu­bíll kom þar að og henni var gert að fara með lög­reglu­þjón­unum. Leiðin lá á Upp­töku­heim­ilið í Kópavogi.

„Ég fæ ennþá martraðir – 57 árum síðar. Ég var keyrð á heim­ilið í Kópavogi og lokuð inni í tólf fer­metra, grænu her­bergi, með járn­rúmi. Það var eng­inn gluggi – ég sá ekki sól­ina. Það voru tveir ljótir, stórir lög­reglu­þjónar þarna og læknir sem átti að rann­saka mig.“ Sonja útskýrir að þarna hafi átt að skoða kyn­færa­svæði hennar.

„Ég neit­aði því og þá spurði hún hvort hún ætti að láta lögg­urnar klæða mig úr. Það vildi ég ekki. Svo hún rann­sak­aði mig og sagði að þarna væri ekk­ert að sjá – enda hafði ég aldrei verið við karl­mann kennd. Ég var lokuð þarna inni í eina viku.“ Hún seg­ist á end­anum hafa verið orðin svo illa haldin að hún fékk blóð­nasir og féll í yfir­lið.

„Ég fæ ennþá martraðir – 57 árum síðar“

Sonja segir eina konu sem starf­aði á Upp­töku­heim­il­inu hafa reynt að hjálpa henni. „Hún leyfði mér að fara í bað og á bað­her­berg­inu var gluggi, sem ég reyndi að kíkja út um, til þess að sjá him­in­inn.“

Sonja þarf að hætta frá­sögn­inni stutta stund.

„Ég er með inni­lok­un­ar­kennd eftir þetta. Ég get ekki verið í her­bergi án glugga.“

Bjarg

Send á Bjarg

Sonja segir kon­una á Upp­töku­heim­il­inu, sem reyndi að hjálpa henni, hafa rætt við séra Auði Eiri Vil­hjálms­dóttur, sem kom að opnun stúlkna­heim­il­is­ins Bjargs, átti raunar frum­kvæði að því, og vann þar á meðan heim­ilið var starf­rækt. Séra Auður Eir var lög­reglu­kona á þessum tíma. Konan hafi sagt Auði Eiri að ekki gengi að hafa Sonju á Upp­töku­heim­il­inu lengur, þar sem henni liði afar illa.

„Eftir það var ég send á Bjarg. Þetta var viku áður en heim­ilið var opnað. Þau héldu mér þar í viku án þess að segja frá því. Þegar þau sögðu mér að ég ætti að fara á Bjarg sagði Auður Eir mér að ég ætti ekk­ert að vera að hugsa um móður mína, því hún væri búin að segja að henni þætti ekk­ert vænt um mig lengur og væri farin til Spánar.

Svona er þegar verið er að heila­þvo börn. „For­eldrar þínir elska þig ekki lengur.“

Ég man alveg að þegar hún var að segja þetta við mig stóð lög­reglu­kona hjá og horfði for­viða á hana.

Ég held að stjúpi minn, sem ég vil samt ekki kalla það – mað­ur­inn sem gift­ist móður minni – hafi farið til Auðar Eirar og beðið um að þær tækju við mér. Því hann vildi fara til Spánar með fjöl­skyldu sína og losna við mig.“

Viðtalið við Sonju má lesa í heild sinni í nýjasta tíma­riti Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina