Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Séra Auður Eir rengir rétt vistheimilanefndar: „Fólk hefur svo gaman af þessu“

​​Blaða­maður hitti séra Auði Eiri Vil­hjálms­dóttur til þess að fal­ast eftir svörum hennar við þeim ásök­unum sem á hana, Bjarg og starfs­konur heim­il­is­ins hafa verið bornar í gegnum tíð­ina. Meðal þeirra ásak­ana eru þær sem koma fram í við­tali við Sonju Ingva­dóttur í nýjasta tölu­blaði Mannlífs, en hún er ein þeirra sem vistuð var á Bjargi á sínum tíma.

Hér fyrir neðan er brot af svörum séra Auðar Eirar sem birt­ust í blað­inu, en við­talið við hana verður birt í heild sinni á vefnum innan tíðar.

Segist engu hafa ráðið 

Þegar blaða­maður hefur á orði að margir hafi talað um að hún sjálf hafi haft tölu­vert um rekstur Bjargs að segja, segir hún það ekki rétt.

„Þessu var stjórnað af þeim starfs­konum sem þarna voru og svo yfir­stjórn Hjálp­ræð­is­hers­ins. Ég var ekki í yfir­stjórn Hjálp­ræð­is­hers­ins. Ég var í stjórn heim­il­is­ins,“ segir hún þegar hún er beðin um að lýsa stjórn­ar­fyr­ir­komu­lag­inu.

„Ég réð svosem ekki neinu. Ekki þannig.“

Menntamálaráðherra og barnaverndarnefnd

Talið berst að því ekki hafi verið höfðað form­legt mál á hendur Bjargi í kjöl­far kærunnar á sínum tíma, vegna ónógra sann­ana. Mennta­mála­ráðu­neytið var yfir vist­heim­ilum og átti þátt í þeirri ákvörðun, enda fór málið meðal ann­ars inn í ráðu­neytið þegar það var rann­sakað og fór á milli emb­ætta.

Og mennta­mála­ráð­herra á þessum tíma er föð­ur­bróðir þinn. 

„Já.“

Blaða­maður bendir á að fólk hafi velt fyrir sér þessum tengslum. Hvort þau hafi eitt­hvað haft um málið að segja. Aðspurð hvað henni finn­ist um það svarar séra Auður Eir:

„Ekkert. Það hefur áreið­an­lega ekki neitt að segja. Engan veg­inn. Þó ekki væri. Því svona mál verða bara að hafa sinn gang. Það verður að reka svona mál til þrautar, allra aðila vegna. Þannig að það er úti­lokað. Þetta er bara þannig.“

Málið fór á sínum tíma í gegnum barna­vernd, hvar móð­ur­bróðir séra Auðar Eirar, séra Gunnar Árnason sat.

Aðspurð um mat hennar á því hvort menn­irnir tveir hafi verið til þess fallnir að gæta hlut­leysis í störfum sínum, vegna þess að hún hafi verið náfrænka þeirra, segir hún:

„Ég segi að það sé áreið­an­legt og ég er full­viss um að þeir hafi ekki beitt sér á nokkurn ein­asta máta til þess að hlífa frænku sinni, enda ekki nokkur ein­asta ástæða til þess. Það hefði verið bara skelfi­legt. Skelfi­legt fyrir mig og skelfi­legt fyrir þá, held ég. Svona mál verða að ganga fyrir sig.“

Hún seg­ist glöð yfir því að málið hafi gengið sinn gang og fengið þessa nið­ur­stöðu; hún sé viss um að nið­ur­staðan hafi verið rétt.

„Og ég er svona að velta því fyrir mér af hverju er alltaf verið að taka þetta upp aftur.“

Hvað heldur þú? 

Séra Auður Eir lækkar róm­inn. „Fólk hefur svo gaman að þessu.“

Hún vill vita hvort blaða­maður treysti ekki dóms­nið­ur­stöð­unni.

Blaða­maður bendir séra Auði Eiri á, sem hún veit, að vist­heim­ila­nefnd taldi í skýrslu sinni, eftir úttekt, rann­sóknir og við­töl, að lík­legra en ekki hafi verið að stúlk­urnar á Bjargi hafi mátt þola ofbeldi og illa með­ferð meðan þær dvöldu þar. Séra Auður Eir spyr hvaðan sú setn­ing komi, sem blaða­maður svarar sem er, að komi úr skýrslu vist­heim­ila­nefndar.

„Já, frá Róbert Spanó. Já. Takk fyrir að segja þetta.“

Blaða­maður furðar sig á þökk­unum.

Hvað áttu við?

„Vegna þess að fyrir mér er þetta svo lög­fræði­leg spurn­ing, hvort vist­heim­ila­nefnd hefur lög­fræði­legan rétt til að vefengja nið­ur­stöðu dóms. Þetta er lög­fræði­leg spurn­ing. Gíf­ur­lega alvar­leg spurn­ing. Ég bara þakka þér hjart­an­lega fyrir að segja þetta.“

Blaða­maður bendir á rann­sókn­ar­vinnu vist­heim­ila­nefndar og það að tekin hafi verið við­töl við máls­að­ila; for­stöðu­kon­una á Upp­töku­heim­il­inu, starfs­fólk, séra Auði Eiri sjálfa, við konur sem dvöldu á Bjargi.

„Þetta er frelsi.“

Séra Auður Eir brosir allt í einu breitt.

„Takk.“

Hún teygir hand­legg­ina út hvorn í sína átt­ina á borð­inu sem við sitjum við og hallar höfð­inu aftur á bak. Hún hleypir út and­ar­drætti, eins og hún sé fegin. Svo lítur hún aftur á blaða­mann og klappar hönd­unum saman.

Hún segir það allt í lagi að blaða­maður viti ekki hvers vegna hún þakki honum fyrir með slíkum til­þrifum.

„Ég er að þakka þér fyrir það að hafa trú á vist­heim­ila­nefnd, frekar heldur en dómi hér­aðs­dóms.“

Hún flissar.

Blaða­maður bendir séra Auði Eiri á, þótt lík­lega sé það óþarfi, að hægt sé að taka mál upp aftur síðar ef rök­studd ástæða þyki til þess.

„Fínt, fínt, fínt. Ég þarf ekki… Þetta er bara fínt, takk fyrir bara. Ég segi bara takk inni­lega fyrir.“

„Þær eru allar að segja ósatt“

Blaða­maður ber það upp við séra Auði Eiri að kon­urnar haldi ásök­unum sínum til streitu, öllum þessum árum síðar.

Eru þær allar að segja ósatt?

„Þessar ásak­anir sem þú last fyrir mig eru rangar.“

Þannig að þær eru allar að segja ósatt?

„Þær eru allar að segja ósatt.“

Aðspurð hvort hún sjái eftir ein­hverju segir hún svo ekki vera.

„Nei. Það held ég ekki. Ég gæti nú kannski ekki alveg sungið eins og Edith Piaf, „Non, je ne regrette rien“. “

Viðtalið, ásamt frá­sögn Sonju af Bjargi, má finna í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina