Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sonja segir Hjálpræðisherskonur hafa verið grimmar: „Svo rak hún tunguna upp í munninn á mér“

Sonja segir Hjálpræðisherskonur hafa verið grimmar: „Svo rak hún tunguna upp í munninn á mér“

Sonja Ingva­dóttir var ein þeirra stúlkna sem vistaðar voru á stúlkna­heim­il­inu Bjargi á árunum 1965 til 1967. Hún var 14 ára gömul þegar hún var send á heim­ilið og er meðal þeirra sem hefur sakað for­svars­menn og starfs­konur heim­il­is­ins um harð­ræði og ofbeldi.

Sonja var ein þeirra sem stóð að kæru á hendur Bjargi árið 1967. Á end­anum var málið láta niður falla því ekki þóttu nægar sann­anir fyrir hendi til þess að höfða opin­bert mál. Bjarg varð seinna eitt þeirra vist­heim­ila sem ríkið greiddi sann­girn­is­bætur vegna og þótti senni­legt að stúlk­urnar sem þar voru vistaðar hefðu þurft að þola ófor­svar­an­lega með­ferð þeirra sem þar stjórn­uðu og störf­uðu.

Eft­ir­far­andi er brot úr við­tali við Sonju sem birt­ist í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Lífið á Bjargi og Hjálpræðisherinn

Á Bjargi störf­uðu aðal­lega konur frá Hjálp­ræð­is­hernum, sem voru gæslu­konur á heim­il­inu. Sonja lýsir þeim meðal ann­ars sem óheið­ar­legum og grimmum.

„Þær voru líka langt frá því að vera gáf­aðar. En þú ert heldur ekki sér­lega smart ef þú heldur að þú kom­ist til himna með því að ganga í ein­kenn­is­bún­ingi og skrækja sálma úti á götum.“

Sonja seg­ist sjálf ekki hafa verið beitt miklu lík­am­legu ofbeldi, því hún hafi verið hlýðin. Hún hafi snemma séð hvað hún þurfti að gera til þess að lifa af. Auk þess hafi hún verið góður náms­maður, sem hafi hentað for­svars­mönnum Bjargs vel.

„Þær þorðu ekki að hreyfa mig, en ég sá hvernig þær fóru með Marion Grey. Ég sá þær draga hana á hár­inu. Þær reyndu að stela barn­inu hennar. Þær eyðilögðu líf hennar líka. Við vorum allar eyði­lagðar þarna. Ég held að það hafi bara verið ein sem kom vel út. En sú kynnt­ist líka góðum manni, sem ég held að hafi hjálpað henni að byggja sig upp.

Gæslu­kon­urnar voru konur sem áttu aldrei að vera nálægt börnum. Hjálp­ræð­is­her­inn á ekki að vera nálægt börnum.“

„Við vorum allar eyði­lagðar þarna“

Sonja segir að á Bjargi hafi stúlk­urnar þurft að fara í messur hjá Hjálp­ræð­is­hernum að minnsta kosti einu sinni í viku, á sunnu­dögum. „Ég neit­aði því og sagð­ist heldur vilja vera heima. Ég sagði: „Ég er búdd­isti og það er trú­frelsi á Íslandi.“

„Þá sendum við þig í Kópavog,“ sagði for­stöðu­konan. Ég varð kristin eins og skot.“

Þarna vísar Sonja til Upp­töku­heim­il­is­ins í Kópavogi, heim­il­is­ins sem hún hóf vist sína á eftir að hún var sótt með lög­reglu­bílnum; stað­ar­ins með glugga­lausa her­berg­inu. Þangað voru stúlk­urnar reglu­lega sendar í ein­angrun.

Sonja lærði því fljótt að hún þyrfti að gera nákvæm­lega það sem henni var sagt, svo hún yrði ekki send á þann hræði­lega stað aftur.

„Ég sá þær beita hinar lík­am­legu ofbeldi. En ég var hlýðin – nema munn­lega. Ég tók þær með orðum.“

Anna Ona

For­stöðu­konan á Bjargi var hin norska Anna Ona-Hansen og bæði Sonja og aðrar konur sem dvöldu á Bjargi hafa lýst ofbeldi og harð­ræði af hennar hálfu. Sumar þeirra hafa sagt frá kyn­ferð­is­of­beldi.

„Á hverju kvöldi þurftum við að fara úr nær­bux­unum. Við þurftum að vera naktar undir nátt­föt­unum. Svo stóðu þær þarna með rauða fötu, sem við þurftum að setja nær­bux­urnar okkar ofan í. Af því að við myndum ekki strjúka án nær­fatn­aðar, héldu þær,“ rifjar Sonja upp.

„Einu sinni hleyptu þær strákum upp á her­bergin okkar – strákum frá Hjálp­ræð­is­hernum. Þeir áttu að frelsa okkur; fimmtán, sextán ára gamlir strákar. Heldurðu að þeir séu ekki með horm­óna þótt þeir séu í Hjálp­ræð­is­hernum? Þeir fengu ekki leyfi til að snerta mig, guði sé lof. “

Sonja segir frá því að stúlk­urnar hafi alltaf verið látnar sauma í um það bil klukku­tíma áður en þær fóru að sofa á hverju kvöldi. „Á meðan for­stöðu­konan las ein­hverja róm­an­tíska kvasí-bók fyrir okkur. Svo eitt kvöld fórum við upp og vorum að flissa yfir sög­unni. Við þvoðum okkur, burst­uðum tennur, fórum úr nær­bux­unum og settum í föt­una. Svo kom for­stöðu­konan upp og var búin að taka flétt­urnar úr hár­inu. Hún opn­aði dyrnar – það var dimmt inni í her­berg­inu, en ljós á gang­inum. Hún var í gulum nælonn­átt­kjól sem sást í gegnum. Hún kom inn, gekk til mín og ætl­aði að kyssa mig á kinn­ina góða nótt. Svo rak hún tung­una upp í munn­inn á mér. Ég skrækti – og fékk mínus. Fyrsti koss­inn minn var sem sagt frá for­stöðu­kon­unni Önnu Onu. Svo gerði hún þetta við hinar stelp­urnar líka, fliss­aði síðan og hljóp út.“

„Svo rak hún tung­una upp í munn­inn á mér“

Sonja seg­ist þó halda að hún hafi þurft að þola minna lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi, vegna þess að litið hafi verið á hana sem gull­gæs­ina; með sínar góðu ein­kunnir átti hún að fara áfram í mennta­skóla og sýna hvers Bjarg var megn­ugt.

Viðtalið í heild sinni má lesa í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við