Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Brian Pilkinton fékk Covid í afmælisgjöf: „Þetta er búið að vera ansi slæmt“

Brian Pilkinton fékk Covid í afmælisgjöf: „Þetta er búið að vera ansi slæmt“
Brian Pilk­ington Mynd: flyovericeland.com

Brian Pilk­ington er nafn sem flestir ef ekki allir Íslend­ingar þekkja. Brian á afmæli í dag og því ber að fagna. Eru nú liðin 72 ár frá fæð­ingu hans.

Brian er ensk-íslenskur mynd­lista­maður sem er fæddur og upp­al­inn í Liverpool, Englandi. Er hann með BA-gráðu í teikn­ingum frá Háskól­anum í Leicester. Árið 1974 flutti Brian til Íslands eftir að hafa heill­ast af landi og þjóð á ferða­lagi og hóf störf í aug­lýs­inga­brans­anum. Árið 1981 kom út bók Guðrúnar Helga­dóttur, Ást­ar­sögur úr fjöll­unum með mynd­skreyt­ingum Brians Pilk­ington og þá var ekki aftur snúið. Í gegnum ára­tug­ina hefur Brian mynd­skreytt fjöldan allan af bókum sem byggja á íslenskum þjóð­sögum og þá hefur hann aukreitis samið þó nokkrar vin­sælar barna­bækur í gegnum tíð­ina. Brian hefur hlotið til­nefn­ingar og verð­laun fyrir mynd­skreyt­ingar sínar en 2003 hlaut hann Dimmalimm –  mynd­skreyt­inga­verð­launin fyrir bók­ina Mána­steinar í vas­anum.

Jóla­svein­arnir hans Brian Pilk­ington eru stór­kost­legir

Mannlíf hafði sam­band við Brian og spurði hann hvort og þá hvernig hann hyggð­ist halda upp á dag­inn.

„Ég held upp á hann með Covid. Ég kom frá Frakk­landi fyrir um viku síðan og þetta er búið að vera ansi slæmt en ég er aðeins að kom­ast yfir þetta.“ Aðspurður hvort hann fengi ekki einu sinni afmælisköku sagði Brian að kona hans ætl­aði að baka handa honum köku seinna í dag.

En hvað er framundan hjá Brian?
„Ég er að teikna alls­konar og ég er með barna­bók sem kemur kannski ekki út á þessu ári en þá á því næsta. Svo er ég með sýn­ingu í sept­em­ber þar sem ég sýni abstrakt-mál­verk.“

Mannlíf óskar Brian Pilk­ington inni­lega til ham­ingju með dag­inn og vonar að hann hristi Covid af sér sem fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina