Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jólasveinninn mætir á „Jól í júlí“ hjá Hjálpræðishernum

Jólasveinninn mætir á „Jól í júlí“ hjá Hjálpræðishernum
Hlynur hjá Hjálp­ræð­is­hernum

„Jól í júlí verður haldið í fyrsta skipti hér á Íslandi núna í ár en her­ferðin á sér þó fyr­ir­mynd hjá Hjálp­ræð­is­hernum erlendis,“ segir Hlynur, starfs­maður Hjálp­ræð­is­hers­ins. „Her­ferðin vakti mikla lukku erlendis og það er okkur sönn ánægja að halda jól í júlí enda jólin æðis­leg.

Aðal­á­herslu­at­riðin eru að eyða tíma saman og vekja athygli á starf­semi Hjálp­ræð­is­hers­ins sem er allan árs­ins hring og afla fjárs fyrir því starfi sem við erum að vinna svo að við getum gert það af þeim krafti sem við viljum vinna fyrir sam­fé­lagið okkar.

Jóla­sveinn sem lík­leg­ast verður með strand­pokan sinn fullan af nammi og góð­gæti fyrir krakk­ana.

Við komum saman og eyðum tíma saman, húsið okkar, Herkastal­inn, býður upp á mikið pláss til þess að vera með alls konar hluti í gangi í einu og þar á meðal verður jóla­sveinn sem lík­leg­ast verður með strand­pokan sinn fullan af nammi og góð­gæti fyrir krakk­ana. Hann hvísl­aði að okkur að hann lang­aði til þess að læra að dansa Tiktok-dans og ætlar að fá aðstoð krakk­anna í Compass og þeirra sem mæta til þess að kenna sér ein­hver spor.“

Skapa öruggt samfélag

Hjálp­ræð­is­her­inn tekur á móti 200-300 manns dag­lega í opið hús og er opið hús opið í hádeg­inu á virkum dögum. „Á opnu húsi getur efna­m­inna og jað­ar­sett fólk fengið mál­tíðir end­ur­gjalds­laust og þeir sem borga fyrir sína mál­tíð eru í raun að greiða fyrir sig og ein­hvern annan sem hefur ekki tök á því að gera það. Máltíðin kostar litlar 1700 krónur og er elduð á staðnum. Mat­seð­ill vik­unnar er aðgengi­legur á her­inn.is  Ásamt því erum við með Kast­ala­kaffi sem er kaffi­hús í Herkast­al­anum sem er með sann­gjörn verð og góm­sætar kökur og tertur. Svo er leikja­nám­skeið fyrir börn á aldr­inum 6-12 ára. Á nám­skeið­inu er mest unnið með frjálsan leik, úti og inni, ásamt föndri og stuttum ferðum. Lagt er upp með að börnin njóti sín sem best og að nám­skeiðið efli vin­áttu- og sam­skipta­færni. Inni­falið er hafra­grautur að morgni, heitur matur í hádegi og síð­deg­is­hress­ing.“

Við erum að skapa öruggt sam­fé­lag þar sem fólk getur komið saman og notið sín.

Hlynur segir að opið hús og Hertex-kort úthlut­anir séu með stærri verk­efnum sem Herkastal­inn sé með í gangi. „Það má samt ekki gleyma að allir okkar dag­skráliðir eru gerðir til þess að þjóna sam­fé­lag­inu og eru þeir allir mik­il­vægir á sinn hátt. Við erum að skapa öruggt sam­fé­lag þar sem fólk getur komið saman og notið sín.“

Markmið Hjálp­ræð­is­hers­ins segir Hlynur vera að skapa sam­fé­lag þar sem öllum finn­ist þeir vera vel­komnir og rétta fram hjálp­ar­hendi til þeirra sem þurfa það hvað mest í sam­fé­lag­inu.

Hjálp­ræð­is­her­inn flutti fyrr á þessu ári í nýtt hús­næði við Suð­ur­lands­braut. „Húsið er gríð­ar­lega mik­il­vægt og var það hannað með okkar starf­semi í huga þannig að það gæti hentað starf­semi Hjálp­ræð­is­hers­ins. Það voru margir sem höfðu áhyggjur af því að þetta væri of stórt en síðan við fluttum í Herkast­al­ann hér á Suð­ur­lands­braut­inni hefur starf­semin vaxið svo mikið að húsið er í fullri nýt­ingu allan árs­ins hring.“

Ómetanlegt

Þegar starfið skiptir miklu máli fyrir stóran hóp í sam­fé­lag­inu.

Hlynur seg­ist vinna hjá Hjál­ræð­is­hernum vegna þess að hann telji að starf sitt stuðli að því að fleira fólki sé hjálpað í nær­sam­fé­lagi sínu. „Ég hef ekki þegið neina hjálp hjá Hjálp­ræð­is­hernum. Það er hins vegar gríð­ar­lega gef­andi að vinna hjá vinnu­veit­anda sem er að láta gott af sér leiða dag­lega; þegar starfið skiptir miklu máli fyrir stóran hóp í sam­fé­lag­inu. Það að vera partur af slíku starfi er ómet­an­legt. Ásamt því er starfs­fólkið sem vinnur hjá Hjálp­ræð­is­hernum bara ótrú­lega skemmti­legt og kær­leiks­ríkt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina