Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Kampavíns-Kalli – Reyndi að kúga fé út úr meðlimi bresku konungsfjölskyldunnar

Kampavíns-Kalli – Reyndi að kúga fé út úr meðlimi bresku konungsfjölskyldunnar
Kampa­víns-Kalli

Paul Adal­steins­son lifði ekki til­breyt­ing­ar­snauðu lífi – Reyndi að kúga fé út úr með­limi bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar – Var sagður vera Kampa­víns-Kalli – Gekk undir fjöl­mörgum nöfnum.

Maður er nefndur Paul Adal­steins­son. Paul var af íslenskum ættum, en afi hans hét Páll Aðal­steins­son. Páll flutt­ist búferlum frá Íslandi til Grimsby á Englandi á fyrri hluta 20. aldar og var þar meðal ann­ars skip­stjóri. Paul fædd­ist árið 1976 í Aberdeen í Skotlandi. For­eldrar hans skildu árið 1985, þegar Paul var níu ára, en hann ákvað þá að taka upp ætt­ar­nafn breskrar móður sinnar, Elizabeth Strachan, og gekk þaðan í frá undir nafn­inu Ian Strachan. En allt um það.

Barst mikið á

Af ævi Ians segir fátt fyrr en hann komst í fréttir árið 2005. Um þær mundir gekk hann undir nafn­inu Charles Gold­stein og gaf sig út fyrir að vera umsvifa­mik­ill fast­eigna­sali og skreytti sig að auki með lög­mannstitli. Þetta gerði honum kleift að dand­al­ast eitt­hvað með elít­unni þar og þá.

Allt í fari hans bar þess merki að honum vegn­aði vel; fötin voru klæð­skera­saumuð og hann virt­ist lifa lífi þar sem kampa­vín og kav­íar komu mikið við sögu. Vinum sínum sagði hann að hann hefði erft fúlgur fjár eftir ömmu sína og ekki voru bestu vinir hans neitt slor. Þeirra á meðal voru, að hans sögn, prins­arnir og bræð­urnir William og Harry.

Bjó heima hjá mömmu

Ian var háður lyf­seð­ils­skyldum lyfjum og var sagður bryðja þau eins og sæl­gæti. Til að verða sér úti um þau not­aði hann ýmis nöfn; Ian Strachan, Paul Adal­steins­son, Charlie Gold­stein og Paul Stein.

Sögur af vel­gengni Ians voru veru­lega ýktar, svo ekki sé tekið dýpra í árinni, og reyndin allt önnur. Ian hafði fátt til að guma sig af; hann hafði gef­ist upp á háskóla­námi og bjó heima hjá mömmu sinni. Í Daily Record sagði að fjöl­skylda Ians, sem hann hafði þá fjar­lægst, hefði gert gys að full­yrð­ingum um elítu­lífs­stíl Ians; hann væri svo sann­ar­lega eng­inn „Kampa­víns-Kalli (e. champagne Charlie)“, eins og lög­fræð­ingur hans síðar meir kall­aði hann. Frændi Ians, hót­el­eig­andi í Aberdeen, sagði: „Mér er til efs að hann eigi skyrt­una sem hann klæð­ist.“

Þannig var nú það.

Svæsið myndband

Árið 2005 fékk Ian frá­bæra hug­mynd til að hagn­ast veru­lega, eða svo hélt hann. Ian og maður að nafni Sean McGuigan hugð­ust verða sér úti um 50.000 sterl­ingspund með fjár­kúgun. Þeir réð­ust ekki á garð­inn þar sem hann var lægstur, því fórn­ar­lambið til­heyrði bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unni.

Félag­arnir sögð­ust hafa í fórum sínum mynd­skeið sem sýndi helsta aðstoð­ar­mann, „right hand man“, þess kon­ung­borna sniffa kókaín af miklum móð og nota við athöfn­ina kredit­kort frá Harrods. Harrods-kort ku víst vera afar fáséð og ekki á hvers manns færi að kom­ast yfir slíkt.

Það var þó ekki allt, því einnig átti mynd­bandið að sýna aðstoð­ar­mann­inn og þann kon­ung­borna stunda kyn­líf saman á meðan nekt­ar­dans­mey frá Stringfellow-klúbbnum horfði á, sú hét Cindy.

Einhver annar kon­ung­bor­inn er einnig nefndur til sög­unnar, en sá dingl­aði kyn­færum sínum að Ian; „waved his willy“, eins og segir á vef­síðu Daily Mail.

Hægt er að lesa alla frá­sögn­ina um Kampa­víns-Kalla í nýjasta blaði Mannlífs, nákvæm­lega hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina