Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Helgi segir Útvarp Sögu leika á lögregluna léttilega: Segja „glóbalistar“ en meina gyðingar

Helgi segir Útvarp Sögu leika á lögregluna léttilega: Segja „glóbalistar“ en meina gyðingar
Helgi Hrafn Gunn­ars­son.

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, hraunar yfir Útvarp Sögu í nokkuð löngu máli á Facebook í dag. Hann seg­ist hafa fengið haus­verk við að hlusta heimsku­legar sam­ræður á stöð­innni fyrr í dag. Hann segir að stöðin sé eitt besta dæmið um hvers vegna hat­urs­orð­ræðu­lög­gjöf Íslands sé mein­gölluð, þrátt fyrir heimsku þá kom­ast þau fram­hjá lög­gjöf­inni auð­veld­lega.

Helgi skrifar: „Stundum fæ ég lík­am­legan haus­verk af því að hlusta á Útvarp Sögu. Asnaðist til þess núna fyrir hádegi. Þar sátu for­sprakkar rás­ar­innar tveir ásamt ytri við­mæl­anda og espuðu hvort annað upp í heimsku­legar sam­sær­is­kenn­ingar með því að kasta á milli sín sífellt heimsku­legri full­yrð­ingum byggðri á sífellt blöskr­un­ar­legri van­þekk­ingu á bók­staf­lega öllu sem ég heyrði þau tala um. Það er ekki bara að þetta hafi verið ein og ein stað­reynda­villa, heldur var þetta því­líkt flóð af kjaftæði að manni fannst eins og leð­ur­blaka með hunda­æði væri að sleikja innra eyrað á manni. Sem veldur haus­verk.

Og á köflum er orð­ræðan þannig að hún veldur ekki haus­verk fyrir að vera svona heimsku­leg, heldur maga­verk fyrir ótt­ann og hat­rið sem hún miðar að því að espa upp.

Svo ég fór að pæla aðeins í fyr­ir­bær­inu hat­ursá­róðri, sem hefur mér reyndar verið hug­leikið lengi.“

Hann segir lög­gjöf­ina gegn haturá­róðri á Íslandi von­lausa. „Nú er hat­urs­orð­ræðu­lög­gjöfin á Íslandi í besta falli óskilj­an­leg. Ef maður les hæsta­rétt­ar­dómana um hvernig henni hefur verið beitt, verður hún ennþá óskilj­an­legri. Hún er ófyr­ir­sjá­an­leg, óná­kvæm, og virð­ist henni ekki bara ætlað að fyr­ir­byggja hatur, ofbeldi og rétt­inda­missi jað­ar­hópa, heldur líka til að verja fólk gegn allt öðrum hlutum, eins og móðg­unum. Fyrir vikið er sú lög­gjöf í skásta falli mest­megnis gagns­laus, ef ekki stundum hrein­lega skað­leg. Í lög­gjöf er það ekki hug­ur­inn sem gildir, heldur afleið­ing­arnar, og þessi lög­gjöf er að sjálf­sögðu sett af góðum hug, en hún þarf að vera gerð af ein­hverri alúð. Fólk sem vill eitt­hvað rök­ræða þetta við mig skal fyrst hafa lesið a.m.k. einn hæsta­rétt­ar­dóm um þetta, því ég er ekki að mót­mæla til­vist hat­urs­orð­ræðu­greinar – ég aðhyllist að hafa slíka – en hún má ekki vera gagns­laus og enn síður skað­leg mark­mið­inu sem við erum að reyna að ná,“ segir Helgi.

Hann segir marga núans á þessu þó. „Okkur hættir til að rétt­læta vondar lausnir með því að tala enda­laust um vanda­málið. En þetta er tvennt ólíkt. Það er hægt að vera sam­mála um vanda­málið en ósam­mála um lausn­ina. Því miður er lít­ill grein­ar­munur almennt gerður á þessu í íslenskri orð­ræðu­hefð. Það hefur aldrei verið mikið pláss fyrir núansa, en upp­lifun mín er alla­vega sú að plássið minnki jafnt og þétt.

En við Íslend­ingar dettum enn­fremur alltof oft í laga­hyggju þegar kemur að nokkru sem varðar tján­ing­ar­frelsið. Hvað sé í sam­ræmi við Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Hvað stand­ist stjórn­ar­skrána. Hvernig lög­fræði virki. Og gott og vel, það er alveg gagn­legt, en það er hins­vegar ekki það sem þetta snýst um.“

Svo beinir hann aftur sjónum að Útvarp Sögu og hvernig þau leika á lög­regl­una. „Eftir stendur nefni­lega, að fólk getur espað upp ótta og hatur í hvoru öðru, án þess að segja neitt dóna­legt, og reyndar jafn­vel án þess að nota stað­reynda­villur, ef bara heimskan er næg, útúr­snún­ing­ur­inn nógu ein­beittur eða til­finn­ing­arnar eru nógu frum­stæðar. Þetta er nákvæm­lega staðan á Útvarpi Sögu. Stað­reynda­villur eru reyndar frekar algengar þar, en aðal­lega er það álykt­an­irnar sem eru dregnar sem eru út úr kú, í sam­bland við snældust­url­aða heims­mynd, þar sem svarið er alltaf ein­feldn­ings­leg­asta útgáfan af ein­hvers konar sam­særi „þeirra“ sem ætla að taka allt frá „okkur“.

Það væri reyndar áhuga­vert að heyra hvernig fólki lit­ist á Útvarp Sögu ef skipt væri út orð­inu „gló­balistar“ fyrir orðið „gyð­ingar“. Auðvitað mættu þau það ekk­ert, en vit­iði hvað, það er ekk­ert mál að nota þá bara eitt­hvað annað orð. Ég veit að það er fullt af fólki sem túlkar „gló­balistar“ ein­fald­lega sem gyð­inga, vegna þess að ég hef talað við það fólk.“

Hann reynir svo að herma eftir umræð­unni á stöð­inni. „Það eru útlend­ing­arnir sem vilja taka auð­lind­irnar okkar, sam­kvæmt þeim, en síðan er til ennþá verri hópur: Íslend­ingar sem vilja það, í stað þess að verja landið. Íslenskir svik­arar. Svo voru glæstir dag­arnir þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn barð­ist fyrir sjálf­stæði, áður en gló­balist­arnir neyddu okkur til að afsala okkur auð­lindum til sín í leitan sinni að heims­yf­ir­ráðum. Þetta er bara nið­ur­soðna útgáfan af þessu þver­stæðu­kennda kjaftæði sem ég heyrði áðan, en það þarf að hlusta á efnið beint, og þekkja til orð­ræðu aktúal fas­ista (sem skamm­ast sín ekki þegar þeir eru kall­aðir það), til að öðl­ast skýra mynd af því hversu ógeðs­leg orð­ræðan þarna raun­veru­lega er.“

Nið­ur­staðan sé að það er barna­leikur að dul­búa hat­urs­orð­ræðu á Íslandi. „En hér er vand­inn. Þau sögðu ekk­ert sem væri hægt að ákæra fyrir hat­urs­orð­ræðu. Það er nefni­lega algjör barna­leikur að dul­búa við­bjóðs­legan mál­stað með orða­gjálfri sem segir aldrei beint út hvaða hóp um ræðir, og notar engin fúk­yrði. Það er ekk­ert mál að snúa út úr stað­reyndum og búa þannig til ótta úr bábiljum. Það eina sem þarf til að spúa út tauga­veiklun og hatri, er rétt sam­blanda af heimsku og frum­stæðum til­finn­ingum.

Það er von­andi aug­ljóst að heimska og frum­stæðar til­finn­ingar verða ekki upp­rættar með því að banna þær. Það bara virkar ekki, sama hversu mikið við myndum vilja. Alveg eins og að það hefur ekki virkað að banna dóp. Það þýðir ekki að dóp sé gott, það bara virkar samt ekki. Og er ekki að virka, hvorki hér, né í Þýska­landi né ann­ars staðar.“

Að lokum seg­ist hann telja að besta leiðin til að draga úr áhrifum Útvarp Sögu væri ein­fald­lega með sam­keppni. Eins og er þá sé hún með ein­okun á spjall-útvarpi. „Það er óhugs­andi í mínum huga að við þessu verði brugð­ist með lög­gjöf. Jafnvel með lög­gjöf sem gengi svo langt að hún möl­bryti í bága við stjórn­ar­skrána og Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Það verður að takast á við þetta með upp­lýs­ingu, þ.e. með því að koma réttum upp­lýs­ingum, réttri rök­fræði og smá full­orð­ins yfir­vegun til fólks sem ann­ars étur þetta upp hrátt. Á útvarps­mark­aði á Íslandi er vand­inn sá, að Útvarp Saga er eina almenna, raun­veru­lega spjall-útvarpið. Ef þig langar að heyra spjall hvenær sem er dags­ins, á meðan þú ert að keyra (leigu­bíl – just sayin’), eða taka til í garð­inum, eða vaska upp, eða hvað­eina, þá er þetta það eina sem er í boði.

Það versta sem gæti komið fyrir Útvarp Sögu, væri virk og almenni­leg sam­keppni á þeim mark­aði. Sam­keppni við þátta­stjórn­endur sem geta drull­ast til að kynna sér það sem þeir eru að þvaðra um.

En jafn­vel ef það tæk­ist, þá væri það bara útvarpið. En vand­inn er langt frá því að vera allur þar.

Eftir stendur þetta hel­vítis inter­net, sem er orðin gróðr­ar­stía hat­urs og and­legs ofbeldis af allri sort og úr mörgum áttum. Berg­máls­hell­irnir stjórna heim­inum, hvar sem maður stendur. Það er mögu­legt að stíga út fyrir þá, en það krefst frum­kvæðis sem flest fólk hefur ekki, og er reyndar erfitt jafn­vel þá, vegna þess að gervi­greindin er farin að draga álykt­anir um hvað eigi að bjóða okkur, út frá eig­indum okkar sem við erum ekki einu sinni með­vituð um.“

Helgi segir heimsku vera rót vand­ans. „Þannig að ef ein­hverjum hérna finnst ég vera að gera lítið úr vand­anum, þá er við­kom­andi ekki að hlusta. Vandinn er miklu, miklu, miklu stærri og alvar­legri heldur en fólk heldur. Sum mik­il­væg­ustu nágranna­ríkin okkar eru á hraðri leið í átt að vald­hyggju, og næstu árin í bæði austri og vestri munu hafa úrslita­á­hrif á hvort við eigum ein­hvern séns á að sníða fram­hjá því sjálf. Og þegar fólk heldur að það sé að leysa eitt­hvað með hat­urs­orð­ræðu­lög­gjöf, þá er það auð­vitað að reyna að gera eitt­hvað gott, en aftur: vand­inn er mun stærri en að ein­hver móðg­ist eða til­finn­ingar sær­ist, heldur líka brotin rök­fræði og rangar álykt­anir, sem án allra móðgana eða kær­an­legra orða­sam­setn­inga, espir upp ótta og hatur, rétt­lætir stríð og dregur úr til­trú á bæði frelsið og lýð­ræðið.

Bensínið á þessa orð­ræðu eru krist­al­tær heimska og ger­ræði frum­stæðra til­finn­inga, í stað yfir­veg­aðrar og heið­ar­legrar sann­leiks­leitar. Ef hat­urs­orð­ræðu­lög­gjöf er helsta vopnið sem við höfum, þá erum við í meg­in­at­riðum vopn­laus og þetta stríð, eða hvað sem þetta er, er þegar tapað.

Veit ekki með ykkur, en mig langar ekk­ert til að tapa því.

En þá þarf að ráð­ast á rót vand­ans, og rót vand­ans er botn­laus heimskan sem ræður ríkjum í mann­legu sam­fé­lagi. Að vinna bug á slíku vanda­máli er óþægi­legt, erfitt og flókið, en við komumst ekki hjá því að gera það. Í því verk­efni reynir ekki bara á Alþingi heldur á sam­fé­lagið sjálft, og sam­fé­lagið allt. Líka þig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina