Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Brynjar tjáir sig loks um Namibíufundinn: „Þáðu þau boðið og úr varð fundur“

Brynjar tjáir sig loks um Namibíufundinn: „Þáðu þau boðið og úr varð fundur“
Brynjar Níelsson.

Brynjar skýtur föstum skotum að Sam­fylk­ing­unni þar sem hann fer laus­lega yfir fund sem hann átti við namibíska emb­ætt­is­menn.

Brynjar Níelsson, fyrrum þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og núver­andi aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra hefur nú loks­ins sagt nánar frá fundi sem hann átti með emb­ætt­is­mönnum frá Namibíu. Gerir hann það á Facebook en í færsl­unni skýtur hann bylm­ings­fast á Sam­fylk­ing­una og þá sér í lagi Helgu Völu Helga­dóttur.

„Nú er aðal­frétta­efnið stóri fundur aðstoð­ar­manns dóms­mála­ráð­herra með aðstoð­ar­manni for­sæt­is­ráð­herra Namíbíu og ein­hverjum emb­ætt­is­mönnum í fylgd­ar­liði hans. Kannski var hann aðstoð­ar­for­sæt­is­ráð­herra, ég man það ekki. Og auð­vitað var það þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sem reynir að þyrla upp mold­viðri út af engu. Alltaf verið að setja upp leik­rit enda sumir þar mennt­aðir í slíkum fræðum.“

Því næst fer Brynjar yfir rit­deilur sem hann átti í við Andra Snæ Magnason og Svein Andra Sveins­son um fund­inn dul­ar­fulla.

„Upphafið að umræðu um þennan fund var að rit­höf­und­ur­inn úti í bæ var að hneyksl­ast á mér emb­ætt­is­mann­inum. Ég upp­lýsti rit­höf­und­inn úti í bæ að ég væri ekki emb­ætt­is­maður. Þá kom inn í umræð­una stjörnu­lög­mað­ur­inn og upp­lýs­inga­full­trúi Við­reisnar á sam­fé­lags­miðlum og vildi meina að maður sem ætti fund með namib­íu­mönnum sem voru hér í emb­ætt­is­er­indum hlyti að vera ein­hvers konar emb­ætt­is­maður. Ég mald­aði í móinn og sagði að þetta fólk hafi ekki verið í emb­ætt­is­er­indum hér á landi enda bankað upp á si sona og eng­inn vissi af þeim. Síðan þusum við eitt­hvað um hvort þessi fundur hafi verið í emb­ætt­is­er­indum.“

Næst fer Brynjar yfir for­sögu fund­ar­ins og gerir lítið úr vanga­veltum Sam­fylk­ing­ar­innar. Virðist aðstoða­mað­ur­inn ekki vita fyrir víst hverslags fundur þetta hafi verið.

„Forsaga þessa fundar var að þetta ágæta fólk mun hafa verið hér í tvo daga og heim­sótt hina ýmsu ferða­manna­staði. Enginn vissi af þeim þegar þeir bönk­uðu upp á hjá for­sæt­is­ráð­herra og ósk­uðu eftir fundi um til að ræða stöðu Sam­herj­a­máls­ins. For­sæt­is­ráð­herra hafi þá bent á dóms­mála­ráð­herra enda heyrði mála­flokk­ur­inn undir hann. Var haft sam­bandi við dóms­mála­ráðu­neytið en þeim tjáð að ráð­herr­ann væri ekki við­lát­inn. Þau gætu talað við aðstoð­ar­mann hans ef þau vildi. Þáðu þau boðið og úr varð fundur.Það má vel vera að namíb­íu­menn­irnir hafi litið svo á að þessi fundur væri í emb­ætt­is­er­indum. Langein­fald­ast er þá fyrir Sam­fylk­ing­ar­fólk og þau í Viðreisn að spyrja bara þetta fólk frá Namíbíu út í það og hvað fór fram á fund­inum. Ég mun ekki segja frá hvað gerð­ist á fund­inum enda veit ég ekki fyrir víst í hvort þau voru í emb­ætt­is­er­indum eða litu á þetta sem óform­legan fund. En ég skal fyrstur segja frá fund­inum og efni hans ef namíb­íu­menn­irnir eru sáttir við það. Ég hef engan áhuga á að leyna frétta­menn og almenn­ing upp­lýs­ingum.“

Í loka­orðum færsl­unnar getur Brynjar ekki neitað sér um að skjóta á Helgu Völu.

„Sjálfur held ég að það sé nán­ast óþekkt að fólk í emb­ætt­is­er­indum banki upp á í stjórn­ar­ráð­inu nýkomið frá Gull­fossi og Geysi og reiknar með að fá fund með ráð­herra. Í besta falli er hægt að kalla slíka fundi óform­lega. En ég bíð spenntur eftir hvað vel mennt­uðu leik­ar­arnir í Sam­fylk­ing­unni nái að spinna langt leik­rit úr þessum fundi.“

Þess má geta að enn hefur dóms­mála­ráðu­neytið ekki svarað spurn­ingum Mannlífs um inni­hald fund­ar­ins og hvort minni­blað sé til um hann. 

Sjá einnig: Dóms­mála­ráðu­neytið svarar ekki spurn­ingum um leyni­fund Brynjars og sak­sókn­ara Namibíu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina