Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gillz tók upp hanskann fyrir Árna: „Ekki koma vælandi í alla fjölmiðla á eftir eins og vændiskona.“

Gillz tók upp hanskann fyrir Árna: „Ekki koma vælandi í alla fjölmiðla á eftir eins og vændiskona.“
Hreimur Örn kýldur af Árna Johnsen á Þjóð­há­tíð 2005 Mynd/sam­sett

Sunnu­dag­inn 31. ágúst 2005 var haldið upp á Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum. Á stóra svið­inu stýrði Árni Johnsen brekku­söng og fram kom hljóm­sveitin Land og synir. Í kjöl­farið tjáir Hreimur Örn Heimsson sig að Árni Johnsen hafi kýlt sig í and­litið.

3. ágúst 2005 birt­ist frétt í Dag­blað­inu Vísi þar segir: „Árni Johnsen og Hreimur Örn Heim­is­son eru ekki sam­mála um atburði sunnu­dags­ins á Þjóð­há­tíð. Hreimur Örn segir Árna hafa kýlt sig en Árni seg­ist ein­göngu hafa rek­ist óvilj­andi í hann og beðið hann afsök­unar strax. Vitni segja Árna hafa rekið Hreimi kröft­ugan löðr­ung en Hreimur er þriðji tón­list­ar­mað­ur­inn sem Árni gengur í skrokk á á Þjóð­há­tíð.“

Árni þrætti fyrir þrátt fyrir fjölda vitna

Þá lýsir Árni atburð­inum svo­leiðis: „Þetta er úlf­aldi í mýflugu­mynd,“sagði Árni í sam­tali við DV í áður­nefndri grein. „Ég var að taka saman hljóð­nema á svið­inu þegar ég rakst óvilj­andi utan í hann. Þetta er bara mis­skiln­ingur. Ég bað hann afsök­unar strax og man ekki betur en að við höfum gert út um þetta strax á svið­inu,“ sagði Árni.

Vignir Snær Vign­is­son, gít­ar­leik­ari Írafárs, var á svið­inu þegar umrætt atvik átti sér stað. Hann lýsti atvik­inu þannig: „Hann sló hann utan undir, þetta var kröft­ugur löðr­ungur,“ Hann bætti við að eng­inn þeirra sem var uppi á sviði þegar upp­á­koman átti sér stað hafi viljað gera nokkuð. „Við erum allir rólynd­is­menn. Það var kannski líka eins gott í stöðu eins og þess­ari.“

Þrjár útskýringar Árna

Árni gaf fjöl­miðlum mis­mun­andi útfærslur á atburð­inum og segir Hreimur í við­tali við DV 4. ágúst 2005: „Hann hefur sagt að hann hafi verið að teygja sig í hljóð­nem­ann og
rek­ist í mig, hann hefur sagt að ég hafi gengið á hend­ina á sér til að búa til „tra­gedíu“ og svo hef ég heyrt að hann hafi verið að reyna að grípa mig. Ég stend fastur á mínu enda sáu allir við­staddir að engin af þessum skýr­ingum er nálægt því sem gerð­ist.“

Hótarnir og áreiti í smáskilaboðum

Hreimi barst fjölda hót­ana og varð fyrir tölu­verðu áreiti eftir að málið komst í fjöl­miðla og tjáði sig við DV um nafn­laus smá­skila­boð sem honum barst sím­leiðis. Má frá þeim áætla að heima­menn í Vest­manna­eyjum hafi staðið þétt við bakið á Árna.

  • Þú ættir að skamm­ast þín!
  • Þú ert að koma óorði á fjöl­skyldu hans, hefur hann ekki gengið í gegnum nóg?
  • Hið rétta á eftir að koma í ljós
  • Ég vona að ég hitti aldrei aftur mann eins og þig á lífs­leið­inni!
  • Ég hélt að ég þekkti þig.
  • Þú veist hvað ger­ist þegar þú kemur til Eyja.

Gillzenegger lét málið sig varða

Málið náði flugi í sam­fé­lags­um­ræð­unni og þann 5. ágúst 2005 sagði Egill Gillzenegger frá ferða­sögu sinni á þjóð­há­tíð í pistli í Dag­blað­inu Vísi og hafði þetta um málið að segja:

„En núna er ekki talað um annað en þetta Árna Johnsen mál og Hreim. Mér finnst þetta nokkuð ein­falt. Ef Árni Johnsen löðrangar þig, þá er tvennt i stöð­unni. Ann­að­hvort löðr­ungar þú hann til baka eða heldur fokk­ing kjafti! Ekki koma vælandi í alla fjöl­miðla á eftir eins og vænd­is­kona.“

Egill sýnir Hreimi lít­inn skiln­ing og kallar hann í fram­hald­inu „has-been“.

„Hreimur er búinn að skíta á sig tvisvar núna á stuttum tíma. Kom í DV um dag­inn og sagð­ist vera orðin þreyttur á að vera frægur. Öll „has-beens“ koma í blöðin og segj­ast vera þreyttir á að vera frægir. Hey, Hreimur! Walter Kronkite er með „newsflash“ fyrir þig. „YOU AREN’T!““

Hávær kven­fyr­ir­litn­ing og ger­enda­með­virkni er aug­ljós í pistli Egils sem bendir Hreimi á að versla sér leg­ganga­hreinsi og lýkur pistl­inum á orð­unum: „Það er útsala á dömu­bindum og leg­ganga­hreinsum í Lyfju, snáf­aðu þangað og versl­aðu þér og hættu þessu væli. Getur kannski keypt þér einn sokk í leið­inni og látið hann upp í þig. Sjáumst eftir viku, sælar!“

Afsökunarbeiðni Árna

Árni sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu, 3. ágúst 2005, sem birt­ist á síðum fjöl­miðla. Hreimur tók við afsök­un­ar­beiðn­inni en var ósam­mála lýs­ingu atviks­ins og óskaði eftir mynd­skeiðum af atburð­inum. Frétta­til­kynn­ing Árna er hér að neðan og var svohljóð­andi:

„Vegna frétta­flutn­ings af at­viki á Brekku­sviði á Þjóð­há­tíð í Herjólfs­dal í Eyj­um í lok vel heppn­aðrar Þjóð­há­tíðar og brekku­söngs s l. sunnu­dags­kvöld, vill und­ir­rit­aður gefa eft­ir­far­andi yf­ir­lýs­ingu:

Vegna mis­skiln­ings á milli full­trúa í Þjóð­há­tíðar­nefnd og kynn­is sem jafn­framt er dag­skrár­stjóri ásamt Þjóð­há­tíðar­nefnd og stjórn­andi Brekku­söngs, var kynni ekki kunn­ugt um að hóp­ur söngv­ara úr dag­skrá Þjóð­há­tíðar­inn­ar, ætti að syngja kveðju­lag að lokn­um brekku­söng, en venj­an er að þegar brekku­söng lýk­ur með ís­lenska þjóð­söngn­um, standi all­ir þjóð­há­tíð­ar­gest­ir upp í brekk­unni eins og vera ber og síðan er kveikt á blys­um um hálf­an Herjólfs­dal og flug­eld­um skotið upp að því loknu.

Lagið sem hóp­ur­inn söng kom hins veg­ar strax á eft­ir brekku­blys­un­um eða um tveim­ur mín­út­um eft­ir að brekku­söng lauk. Þá var enn verið að slökkva í varð­eld­in­um og hreinsa leyf­ar varð­elds­ins af dan­spalli Brekku­sviðs­ins og full­bú­inn slökkvi­liðs­bíll var á dan­spall­in­um beint fyr­ir fram­an sviðið og skyggði á það. Þá snar­aði kynn­ir sér upp á svið og ætl­aði að hliðra til þessu atriði sem var ekki á dag­skrá hans sem kynn­is, en þetta taldi hann nauð­syn­legt af ör­ygg­is­ástæðum, því venj­an er sú að um leið og dag­skrá byrj­ar aft­ur á upp­lýstu Brekku­svið­inu eft­ir brekku­söng með sviðið myrkvað, þá flykk­ist unga fólkið á dan­spall­inn og ef slíkt hefði hent með pall­inn óhreins­aðan og slökkvi­liðs­bíl­inn við sviðið hefði mik­il hætta getað skap­ast. Þegar kynn­ir þreif síðan í hita leiks­ins í þröng á svið­inu til hljóð­nema af þess­um sök­um að lokn­um flutn­ingi kveðju­lags rakst hann slysa­lega á Hreim söngv­ara sem kom að hljóð­nem­an­um í sömu mund. Það var því síður en svo ásetn­ing­ur að bregða Hreimi söngv­ara.

Þjóð­há­tíð­ar­kynni er ljúft að biðja Hreim af­sök­un­ar á þess­um óvænta árekstri og reynd­ar gerði hann það einnig á Brekku­svið­inu þegar at­vikið átti sér stað.

Dag­skrá Þjóð­há­tíðar Vest­manna­eyja er metn­að­ar­full og marg­slung­in og stund­um þarf að grípa skjótt í taum­ana á 10 þús­und manna hátíð, en þá er hætta á hnökr­um sem alltaf hef­ur verið hægt að leið­rétta sem bet­ur fer.

Und­ir­rit­aður harm­ar að þetta at­vik skyldi koma upp eins og skratt­inn úr sauðal­eggn­um, en við fé­lag­ar Hreim­ur Örn Heim­is­son söngv­ari erum sam­mála um að þetta mál sér úr heim­in­um í fullri sátt. Það hef­ur Hreim­ur stað­fest eft­ir sam­tal mitt við hann um þetta bréf. Hitt­umst í Herjólfs­dal að ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við