Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fræðslu-fimmtudagur BL – Hvað eru ,,mild hybrid” bílar og eru þeir þess virði að kaupa þá?

Fræðslu-fimmtudagur BL – Hvað eru ,,mild hybrid” bílar og eru þeir þess virði að kaupa þá?
BMW iX – Fínasta sjálfrenni­reið

Fræðslu-fimmtu­dagar BL hefja nú göngu sína á Mannlífi en þá verða les­endur fræddir um flest milli him­ins og jarðar í bíla­málum. 

Sífellt fleiri bílar eru nú knúnir vélum sem kall­ast á ensku ,,mild hybrid” og gætu útlagst á íslensku sem „vægir tvinn­bílar“. Hefði þýð­ingin „tvinn“ ekki þegar haslað sér völl í íslensku máli hefði maður mögu­lega freist­ast til að þýða þetta frekar sem „mildan blend­ing“ þó það ætti mögu­lega betur heima í hest­hús­inu en bíl­skúrnum.

Maður hlýtur að velta fyrir sér hvort þessi tækni muni vega þungt í þessum orku­skiptum eða hvort þetta verði neð­an­máls­grein í bíla­blaða­bunk­anum hjá tann­lækn­inum eftir tíu ár en hér rýnum við aðeins í hvað þetta er.

„Hybrid“ bílar sem blanda saman hefð­bundnum sprengi­hreyflum, sem mögu­lega hljómar eins og eitt­hvað í eld­flaug en á í raun við bensín- eða dísel­vélar, og raf­magns­mótor til að draga úr elds­neyt­iseyðslu og útblæstri eru okkur löngu orðnir okkur kunnir.

Fyrstu Hybrid bíl­arnir komu á markað þegar maga­bolir og Buffalo skór voru ennþá vin­sæl fyr­ir­bæri, eða árið 1997.

Í seinni tíð hefur svo bæst við það sem kall­ast „plug-in hybrid sem gerir það að verkum að bíl­arnir geta ekið lengra á raf­magn­inu einu saman en eru þó studdir af vélum sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti.

Nýjasta við­bótin í flóru „Hybrid“ bíla eru þessir „Mild Hybrid“ bílar en nú þegar hafa all­nokkrir bíla­fram­leið­endur hafið sölu á bílum sem nýta þessa tækni.

Hvað eru þessir „Mild Hybrid“ bílar?

Tæknin að baki hug­tak­inu er til­tölu­lega ódýr og ein­föld en hún dregur, líkt og önnur tvinn­tækni, úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og elds­neyt­iseyðslu miðað við bíl­vélar sem nota bara jarð­efna­elds­neyti.

Almennt séð kemur lít­ill rafall í stað start­ara og alt­ernators auk við­bótar lít­illar lit­hium-ion raf­hlöðu. Flestir „Mild Hybrid“ bílar not­ast við 48-volta raf­kerfi, sem er hærra en í kerfum hefð­bund­inna bíl­véla, til að knýja hluti bif­reið­ar­innar sem áður voru knúnir af vél­inni sem skilar sér í auk­inni skil­virkni.

Hvernig virkar þetta svo?

Eins og nafnið gefur til kynna léttir „Mild Hybrid“ kerfið undir með vél­inni með því að taka á sig hluta af raf­orku­þörf­inni en ekki nóg til þess að bif­reiðin geti ekið á raf­orkunni einni saman. Kerfin eru útfærð með mis­mun­andi hætti milli bíl­teg­unda en almennt séð léttir kerfið undir þegar bíll­inn þarf að auka hrað­ann skyndi­lega og til að bæta virkni kerfa sem drepa á og kveikja á bif­reið­inni sjálf­krafa. Þetta er klár­lega kostur fyrir þá sem aka bílum með sjálf­virku stoppi sem eru akkúrat nógu lengi að kveikja aftur á sér til að öku­mað­ur­inn fyrir aftan mann er byrj­aður að flauta.

Kerfin geta líka sótt sér orku þegar hemlað er. Nún­ingnum er þá breytt í raf­orku sem er svo hleypt á raf­hlöð­una til að veita auka stuðn­ing þegar þörf er á. Að með­al­tali er áætlað að „Mild Hybrid“ bíll skili 15% meiri afköstum en sam­bæri­legur, hefð­bund­inn bíll.

Eru allir „Mild Hybrid“ bílar eins?

Töluvert er nú orðið af þessum kerfum og þau eru mis mikið þróuð. Sum kerfin vinna með hraða­still­inum þannig að bíll­inn hægir á sér þegar hann nálg­ast beygjur og hring­torg og nýtir þá ork­una sem mynd­ast þegar bíll­inn hemlar og eins geta kerfin slökkt á vél­inni og látið hann renna í allt að 40 sek­úndur til að spara elds­neyti.

Hversu umhverfisvænir eru „Mild Hybrid“ bílar?

„Mild Hybrid“ bíl­arnir eru ekki eins spar­neytnir og margir bílar sem telj­ast til Hybrid- eða Plug-in Hybrid-bíla. Þó það að spar­neytn­ustu „Mild Hybrid“ bíl­arnir í flokki jepp­linga blási út um 96 grömmum af koltví­sýr­ingi á hvern ekinn kíló­metra líti mjög vel út í sam­an­burði við hefð­bund­inn jepp­ling bliknar það í sam­an­burði við marga Plug-in Hybrid bíla í sama flokki sem sumir blása út eins litlu og 29 grömmum á ekinn kíló­metra.

Hvers vegna ættirðu þá að íhuga að kaupa vægan tvinnbíl?

Til að byrja með eru kerfin ein­fald­ari í hönnun en aðrir Hybrid bílar þannig að í mörgum til­fellum reyn­ast þeir ódýr­ari. Að sama skapi þarf ekki að huga að því að hlaða þá eins og Plug-in Hybrid-bíla svo þeir nýt­ist að fullu.

Ef Plug-in Hybrid reyn­ist of dýr eða þú hefur ekki tök á að koma upp hleðslu­stöð er Mild Hybrid þó umhverf­is­vænni en hefð­bund­inn bíll með sprengi­hreyfli. Fyrir þá sem kjósa að halda sig við óbreytta upp­lifun í akstri eru þessir bílar eins og hefð­bundnir bílar að þessu leyti auk þess að þeir geta feng­ist bein­skiptir. Fyrir þá sem vilja fara alla leið er hægt að finna kassettu­tæki í bíla bæði á Amazon og eBay.

Hvernig eru aðrir Hybrid bílar í samanburði við þessa vægu?

Allir Hybrid bílar búa yfir hefð­bund­inni vél, raf­magns­mótor og raf­hlöðu, þó stærðir og hleðslu­geta geti verið mjög mis­mun­andi. Auk Mild Hybrid eru þrjár aðrar teg­undir sem allar virka á mis­mun­andi vegu.

Parallel hybrid

Það liggur bein­ast við að kalla þessa teg­und ,,sam­hliða tvinn” eða mögu­lega „sam-blend­ingur“ þar sem hjól bif­reið­ar­innar geta í senn verið knúin beint af vél­inni, af raf­magns­mót­ornum einum eða með sam­vinnu beggja aflgjafa.

Þegar slegið er af eða hrað­inn er undir um 20 kíló­metra hraða knýr raf­mót­or­inn einn bif­reið­ina sem gerir hana hugs­an­lega spar­neytn­ari í inn­an­bæj­arakstri en er þá háð því að íslenskir öku­menn hafi þol­in­mæði til að aka á tutt­ugu þar sem hámarks­hraði er 30 eða hrein­lega vera fyrir þar sem hraða­tak­mark­anir eru hærri.

Sprengi­hreyfill­inn tekur svo við þegar hrað­inn eykst eða hröð­unin eykst. Þegar dregið er úr hrað­anum eða stigið á heml­ana hleðst raf­hlaðan en hleðslan dugar bílnum yfir­leitt ekki nema um það bil frá Graf­ar­vogi upp í Árbæ á góðum degi.

Range-extender hybrid

Þessi teg­und er til­tölu­lega sjald­gæf og eru frá­brugðin að því leyti að sprengi­hreyfill­inn er aðal­lega not­aður sem rafall til að fram­leiða raf­magn fyrir raf­mót­or­inn sem einn knýr hjólin. Hafi ekki þegar feng­ist íslenskt heiti á þessa teg­und er hér með stungið upp á heit­inu „end­ing­ar­blend­ingur“.

Plug-in hybrid

Plug-in hybrid eru mitt á milli Hybrid bíla og raf­magns­bíla. Eins og nafnið gefur til kynna er hægt að tengja þá við hleðslu­stöð til að hlaða raf­hlöð­urnar.

Þó þeir búi yfir hefð­bundnum bíl­vélum eru raf­hlöð­urnar stærri en í Hybrid bílum og hafa meiri drægni þegar þeir eru keyrðir á raf­magn­inu einu saman sem dregur umtals­vert úr rekstr­ar­kostn­aði ef þeir eru hlaðnir reglu­lega. Sumar bíl­teg­undir hafa jafn­vel drægni upp undir hund­rað kíló­metra á raf­magn­inu einu saman en þó ber að hafa í huga að raf­hlöður eru sann­ar­lega þungar og ef til­fellið er að ekki er hægt að hlaða bíl­inn reglu­lega má leiða að því líkum að sparn­að­ur­inn sé fyrir bí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina