Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fékk á sig 129 mörk í 16 leikjum: „Ég er mjög æfður og löngu hættur að flækja mig í netinu“

Fékk á sig 129 mörk í 16 leikjum: „Ég er mjög æfður og löngu hættur að flækja mig í netinu“
Takið eftir text­anum undir mynd­inni. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Huginn Fellum er forn­frægt knatt­spyrnu­lið frá Fellabæ á Héraði. Liðið lék mestan part í utandeild­inni fyrir austan en árið 1992 lék Huginn í fjórðu deild­inni með skelfi­legum árangri en liðs­menn héldu þó ávalt í húmor­inn og nutu sín á vell­inum. Liðið sam­an­stóð að mestu af bændum úr Fella­sveit­inni og síð­hærðum ung­lings­piltum frá Fellabæ en senni­lega var þekkt­asti leik­maður liðs­ins hæsta­rétt­ar­dóm­ar­inn Ólafur Börkur Þor­valds­son en hann þótti afar góður í föstum leikatriðum.

Hið fagra merki Hugins Fellum

Hinu Fell­bæska liði gekk væg­ast sagt illa í fjórðu deild­inni árið 1992 en þegar tvær umferðir voru eftir var liðið með 1 stig og höfðu fengið á sig 129 mörk í 16 leikjum. Pressan tók stór­skemmti­legt við­tal við mark­mann liðs­ins, Arnfinn Bragason:

Átta mörk í leik

Mark­vörður sá sem hefur fengið flest mörk á sig á þessu knatt­spyrnu­tíma­bili heitir Arn­finnur Bragason og leikur með íþrótta­fé­lag­inu Huginn, Fellum, í fjórðu deild­inni. Fyrir þá sem ekki þekkja til er Fellabær stað­settur rétt utan við Egils­staði og erki­fj­end­urnir því Höttur á Egils­stöðum.

Arn­finnur hefur fengið á sig 129 mörk í sextán leikjum eða um átta mörk i leik. PRESSAN hafði sam­band við mark­vörð­inn fima og spurði hann hvernig tílfinn­ing það væri að þurfa sífellt að hirða bolt­ann úr net­inu. Arn­finnur kvaðst alls ekki taka það nærri sér þótt bolt­inn væri oftar fyrir aftan hann í net­inu en fyrir framan hann á vell­inum. „Ég er mjög æfður og löngu hættur að flækja mig í net­inu þegar ég sæki bolt­ann,“ sagði Arn­finnur.

Huginn er nú í neðsta sæti D-rið­ils í fjórðu deild­inni, með eitt stig, en efsta liðið í riðl­inum er sem oft áður Höttur, með 42 stig, og ljóst að þeir munu leika til úrslita í deild­inni. Stærsta tap Hugins í sumar var gegn Hetti 12:0. Þrátt fyrir það voru þeir Hug­ins­menn ánægðir með frammi­stöð­una og þótti það helst til baga í leiknum, að dóm­ar­inn hafði dæmt tvö mörk af Hetti vegna rang­stöðu. Þrátt fyrir heldur dap­ur­lega stöðu er Arn­finnur hvergi bang­inn og segir þá félaga stefna beint á topp­inn. „Við höfum fimm ára áætlun sem miðar að því að verða á undan Hetti upp í aðra deild. Þeir hafa verið að baksa við þetta í mörg ár, nær alltaf verið í úrslitum en aldrei kom­ist upp.

Í bók­inni Íslensk knatt­spyrna 1992 eftir Víði Sig­urðs­son kemur fram að að marka­tala liðs­ins í lok móts hafi verið 8-153 sem þýðir að Huginn fékk á sig 24 mörk til við­bótar í síð­ustu tveimur leikj­unum en stærsta tap þeirra var gegn Huginn Seyð­is­firði en sá leikur fór 0-18. Það var Íslands­met í þó nokkur ár eða þar til lið Skalla­gríms bætti það. Bjarni Fel, íþrótta­f­rétta­mað­ur­inn goð­sagna­kenndi, hafði ein­staka unun af því að lesa upp úrslit leikja Hugins Fellum sem heyrð­ist vel á glað­hlakk­an­legri rödd hans er hann las upp nýj­ustu úrslitin. Fimm ára tak­mark­inu náði Huginn Fellum aldrei en liðið æfir enn inn­an­dyra á vet­urnar og keppir á árlegu polla­móti á Akureyri á sumrin, oft með góðum árangri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við