Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bretlandi: „Biður fyrir og vonar að hann verði ærlegur þjóðfélagsþegn“

Dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bretlandi: „Biður fyrir og vonar að hann verði ærlegur þjóðfélagsþegn“
mynd úr mynda­banka Mynd: Rattankun Thongbun / Getty Images/iStockphoto

Árið 2012 var hálf­ís­lenskur drengur dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi í Bret­landi fyrir að hafa orðið 16 ára pilti að bana. Verkn­að­inn framdi hann í slag­togi með fjórum eldri ung­lings­piltum. DV fjall­aði um málið fyrst miðla hér á landi, en Auður Ösp, blaða­maður tók við­tal við föður drengs­ins sem birt­ist í DV árið 2019. Í þessum lið, bak­sýn­is­spegli er unnið út frá heim­ildum úr málum sem áttu sér stað í for­tíð­inni. Í þessu erf­iða máli skal tekið fram að allar heim­ildir eru unnar út frá opin­berum heim­ildum. DV fjall­aði um málið fyrst og vekur Mannlíf athygli á því út frá þeim heim­ildum og öðrum heim­ildum sem hafa komið upp um málið.

Fékk aðeins að heyra í honum einu sinni á átta árum

Dreng­ur­inn var ein­ungis 12 ára gam­all þegar hann hlaut lífs­tíð­ar­dóm í Bret­landi fyrir að stinga ung­lings­pilt í hjartað. Áður en hann framdi verkn­að­inn, árið 2007, hafði hann ánetj­ast kanna­bis­efnum og var kom­inn í slæman félags­skap.

Í febr­úar árið 2016 ræddi Auður Ösp, blaða­maður hjá DV fyrst við föður drengs­ins. Á þeim tíma hafði dreng­ur­inn setið í fang­elsi í tæp átta ár og hafði faðir hans aðeins einu sinni fengið að heyra í honum í síma.

Í heim­ildum um málið kemur fram að faðir drengs­ins eigi tvo syni með konu sem hann kynnt­ist þegar hann bjó í Bret­landi. Upp úr sam­band­inu hafi slitn­aði og flutt­ist hann aftur til Íslands. Eldri son­ur­inn kom reglu­lega í heim­sókn til föður síns en sam­bandið við yngri son sinn var mun stop­ulla.

.

Í við­tal­inu við Auði Ösp segir faðir drengs­ins að níðst hafi verið á syni hans fyrir að vera svo­kallað „half caste,“ af blönd­uðum kyn­þætti.

„Það var rosa­lega mikil klíku­myndun í kringum hann. Hann pass­aði ekki neins staðar inn,“ sagði hann í við­tal­inu við DV.

Á sér þá ósk heitasta að geta búið hjá föður sínum

Faðir drengs­ins segir í við­tali við DV árið 2019 að á þeim tíma sem hann hafi setið inni hafi hann snúið við blað­inu og náð undra­verðum árangri. Faðir hans telur það hafa gert gæfumun­inn að sonur hans hafi verið fluttur í opið úrræði árið 2018, en þar hafi hann loks­ins fengið tæki­færi til betr­unar. Faðir drengs­ins segir að hann eigi sér þá ósk heitasta að geta búið hjá föður sínum á Íslandi í fram­tíð­inni og bindur faðir hans vonir við að þeir feðgar muni sam­ein­ast á ný.

Í sam­tali við Vísi nokkrum árum áður, árið 2011 ræddi faðir drengs­ins um afplán­un­ina í lífs­tíð­ar­fang­els­inu á Englandi. Hann tjáði blaða­manni að það væri engin lausn að vista unga glæpa­menn með full­orðnum afbrota­mönnum. Hann telur ólík­legt að ungir ein­stak­lingar verði að ærlegum þjóð­fé­lags­þegnum eftir slíka dvöl.

Faðir hans hafði sagt við son sinn nokkrum árum fyrir brotið að hann væri ekki í góðum málum. Hann hefði átt í deilum í skól­anum og verið kom­inn í fíkni­efni. Þegar ég kvaddi hann, þá kvaddi ég hann með orð­unum að hann skyldi fara að taka sig á, ann­ars biði eftir honum útsýni í gegnum riml­ana.

Og sú varð raunin, árið 2008 var hann dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir verkn­að­inn, ein­ungis 12 ára gam­all, með mögu­leika á reynslu­lausn eftir 16 ár. Í fyrstu var hann vistaður í ung­linga­fang­elsi, en fjórtán ára var hann fluttur yfir í fang­elsi rétt hjá Ipswich sem hýsir full­orðna afbrota­menn.

„Það er hroða­leg til­hugsun. Maður nátt­úru­lega biður fyrir því og vonar að hann verði ærlegur þjóð­fé­lags­þegn, en ef þú ert búin að vera frá 12-13 ára til 28 ára ald­urs í fang­elsi út af ein­hverju sem þú framdir þegar þú varst á þessum aldri… lík­urnar eru ekki hans megin.“

Breskir fjöl­miðlar fjöll­uðu ítar­lega um morðið á Kodjo Yenga á sínum tíma. Ljósmynd/Skjáskot af vef BBC.

Málið vakti mik­ila athygli í Breta­landi og fjöll­uðu breskir fjöl­miðlar þónokkuð um málið á sínum tíma. Í frétt The guar­dian kom fram að verkn­að­ur­inn hefði verið inn­vígslu­at­höfn í götuklíku.Málið vakti upp umræður um vax­andi gengja­menn­ingu í Lundúnum, hækk­andi glæpa­tíðni og nei­kvæð áhrif þess á unga fólkið. Á þeim tíma sem Kodjo Yenga var drep­inn höfðu 26 ung­menni verið drepin af gengjum í London á árinu 2007.

Faðir drengs­ins seg­ist hafa fengið tauga­á­fall þegar hann sá frétt­irnar af mál­inu. Þar sem honum reynd­ist erfitt að nálg­ast upp­lýs­ingar um fram­gang máls­ins og líðan sonar síns þá þurfti hann einkum að reiða sig á upp­lýs­ingar frá breskum fjöl­miðlum sem fjöll­uðu ítar­lega um málið.

Heim­ildir:

Auður Ösp. 24. febr­úar 2019. Sonur … afplánar lífs­tíð­ar­dóm í Bret­landi. DV.

David Pall­ister. 10. maí 2008. Teenage gang mem­bers jailed for kill­ing A-level stu­dent. The guar­dian.

Innlent. 14. sept­em­ber 2011. „Börn ekki eiga heima í fang­elsum.“ Vísir.

Tobba Mar­in­ós­dóttir. 13. Desember 2020. 14 ára sonur … fékk lífs­tíð­ar­dóm -„Töl­fræðin er á móti honum. En ég hef fulla trú.“ DV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina