Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Minnast Eiríks Guðmundssonar: „Ég og þú munum aldrei vita hvað hann vildi segja og hvernig“

Minnast Eiríks Guðmundssonar: „Ég og þú munum aldrei vita hvað hann vildi segja og hvernig“
Eiríkur Guð­munds­son, Mynd/skjá­skot: Rúv

Ýmsir vinir og sam­starfs­menn Eiríks Guð­munds­sonar minn­ast hans í dag en hann er lát­inn, 52 ára að aldri.

Einn þeirra er Egill Helgason, menn­ing­arrýnir og þátta­stjórn­andi á Rúv. Egill skrif­aði fal­lega færslu um Eirík þar sem hann fer yfir mann­kosti hans. „Við starfs­fólk RÚV erum harmi slegin að heyra fréttir af föllnum félaga. Kolla vin­kona mín segir að Eiríkur hafi verið svo byronískur og sjar­mer­andi, honum hefði fund­ist það spaugi­legt, en hann var líka sér­lega skemmti­legur, alúð­legur, gáf­aður, fal­legur, örvandi félag­s­kapur – jú og rit­höf­undur, pistla­höf­undur og einn okkar allra­besti útvarps­maður. Í dag fellir maður tár yfir dauða Eiríks en maður finnur líka fullt af góðum minn­ingum sem veita smá huggun og kalla jafn­vel fram bros. Farðu vel kæri.“

Gunnar Smári Egilsson, fyrrum fjöl­miðla­maður og for­ingi Sós­í­alista á Íslandi skrif­aði einnig fal­legan pistil en þeir voru mál­kunn­ugir. Minnist Gunnar Smári á þörf Eiríks til að tjá sig en eftir að hann missti starfið hjá Rúv, hafi hann í raun misst sviðið.

„Ég sam­hrygg­ist öllum sem elsk­uðu Eirík. Þetta er svo sorg­legt. Ég rendi áðan yfir sam­skipti okkar und­an­farið árið og sé að það er ekki bara gjöf að eiga ríkt innra líf, að hafa í sér deiglu og átök. Þegar ég horfi yfir skeytin er eins og mað­ur­inn á bak við orðin sé að brenna upp.

Við Eiríkur vorum það sem kalla má vel mál­kunn­ugir. Ég leit­aði ráða hjá honum eða fletti upp í honum, hann sendi mér hvatn­ingu og ég honum þakkir. Þannig er banda­lag manna sem ganga með þá grillu að þeim beri að laga sam­fé­lagið, benda á það sem betur mætti fara, kasta inn ein­hverri hug­mynd sem kannski hreyfir við ein­hverjum í von um að eitt­hvað ger­ist. Ekki veit ég hvaðan þessi þrá­hyggja kemur. Kannski er þetta mein fólks úr litlum sam­fé­lögum, þar sem ábyrgð hvers og eins er hlut­falls­lega stór.

Þessi bæklun veldur því að það er illt að missa tján­ing­ar­frelsið. Það henti Eirík að ein­hverju leyti þegar hann missti starfið hjá Rík­is­út­varp­inu og var á vissan hátt slauf­aður út úr menn­ing­ar­um­ræð­unni. Ég kann­ast við svipað, en ekki jafn illt. Maður getur ekki lengur hugsað neitt til enda, orð­inn of vanur að leika sér með hálf­kar­aður hug­myndir í almanna­rým­inu, þarf á öðrum að halda, er orð­inn háður því að hugsa upp­hátt í sam­fé­lagi.

Síðasta sem Eiríkur skrif­aði mér var að hann lang­aði að taka til máls, hann taldi sig geta sagt eitt­hvað öðru­vísi en aðrir höfðu sagt hingað til. Ef það væri eft­ir­sókn eftir því, bætti hann við. Ég hef margt að segja, bætti hann enn við.

Það varð ekk­ert úr þessu. Atvik voru bara þannig, til­efnið rann hjá. Og nú er Eiríkur þagn­aður að eilífu og ég og þú munum aldrei vita hvað hann vildi segja og hvernig. Og þó við teljum okkur geta gert okkur það í hug­ar­lund munum við aldrei geta galdrað það fram. Upplifun okkar, skynjun og tján­ing er ein­stök og eink­an­leg, sér­stakur heimur. Hann deyr með fólki, tor­tím­ist.

Heimur Eiríks var svo stór að hann gat gefið okkur hinum alls­konar sem við áttum ekki fyrir. Slíkir heimar hafa mörg skúma­skot og sum myrk. Sá sem hitti Eirík fann það vel, að mennska hann var líka byggð upp af sárs­auka og ang­ist. Þannig er það hjá öllu góðu fólki.

Hjartans kveðjur til Kolbeins og alls fólks­ins hans Eiríks, ást­vina og allra sem elsk­uðu þennan fal­lega mann. Dauðinn drepur allt sem lifir. Við erum sífellt áminnt um það, stundum harka­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina