Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tvíhöfði er hættur: „Ég vil ítreka það sem ég sagði hér áður að þetta er algjörlega mín ákvörðun“

Tvíhöfði er hættur: „Ég vil ítreka það sem ég sagði hér áður að þetta er algjörlega mín ákvörðun“
Tvíhöfði Mynd: Rúv.is

Tvíhöfði er hættur. Jón Gnarr birti langa færslu þar sem hann útskýrir ástæð­una.

Rétt í þessu birt­ist löng og á köflum torskilin en auð­vitað drep­fyndin til­kynn­ing frá Jóni Gnarr, grínista og annar Tví­höfða­bræðra, þar sem hann segir frá því að útvarps­þáttur hans og Sig­ur­jóns Kjart­ans­sonar, Tvíhöfði, sé hættur. Segir Jón að ákvörð­unin sé alfarið hans og ekki við Sigurjón eða Rúv að sakast og þaðan af síður honum Dodda litla tækni­manni. Útilokar Jón þó ekki að Tvíhöfði muni snúa aftur einn dag­inn en nú vilji hann snúa sér að öðrum hlutum.

Tvíhöfði hóf göngu sína árið 1994 á Rás tvö en hét þá Heimsendir en var hann í loft­inu í ár. Árið 1996 snéru þeir aftur og köll­uðu sig þá Tvíhöfði en voru á Aðal­stöð­inni sál­ugu. Þátt­ur­inn sló ræki­lega í gegn en hann hefur farið í loftið víða á öldum ljós­vakans, meðal ann­ars á X-inu, Radíó, Kananum, Skonrokk og aftur á Rúv. Þá gáfu þeir félagar út nokkra geisla­diska með leiknum brönd­urum, tón­list og almennu gríni úr þátt­unum. Frá árinu 2019 hefur Tvíhöfði verið hlað­varps­þáttur hjá Rúv við miklar vin­sældir.

Hér fyrir neðan má lesa til­kynn­ingu Jóns Gnarr í heild sinni:

„Kæru Íslend­ingar

Tvíhöfði hefur um ára­tuga skeið átt sinn sess í þjóð­menn­ingu okkar. Und­an­farin ár hefur hann komið einsog ein­hver far­fugl á hverju hausti og haft vet­ur­setu hér á okkar fal­lega landi.

Þegar dimmir yfir hafa hinar vinn­andi stéttir haft dægra­stytt­ingu og il af söng þessa svo elskaða þjóð­ar­fugls. Hlust­endur hætta sínu hvers­dag­lega kvaki en leggja við hlustir. Í lotn­ingu og þögn situr þjóðin, ekki sundruð einsog alltaf, heldur sam­einuð í eina hlust­önd. Frammi fyrir Tvíhöfða eru öll jöfn, rukk­ari jafnt sem skuld­ari, börn jafnt sem gam­al­menni, aum­ingjar jafnt sem auð­valds­herrar. Þetta er það sem Íslands­vin­ur­inn knái Bono kall­aði One love. Hann sýnir og sannar hið forn­kveðna að margur er knár þótt hann sé smár.

En nú eru blikur á lofti. Váfugl er kom­inn að ströndum Íslands. Allar hlust­endur setur hljóðar, ekki af gleði og eft­ir­vænt­ingu, einsog áður, heldur af óhug og skelf­ingu.

Tvíhöfði kemur ekki til lands­ins með haust­skip­unum einsog áætlað var. Auðvitað og eðli­lega er fólk slegið yfir því.

Móðir mín í hví, hví? spyr þjóðin einsog í dæg­ur­lag­inu vin­sæla.

Áköf gleði og eft­ir­vænt­ing skýn úr sak­lausum and­litum allra ann­arra. En ekki úr mínu. Tindr­andi barns­leg augu sam­starfs­fólks míns mæta ein­ungis hörku­legum en um leið sorg­mæddum augum mínum.

-Hætta skal leik þá hæst hann stendur! hróp­aði Jesú kristur til mann­fjöld­ans þegar hann var leiddur í járnum útúr Get­semane lysti­garð­inum og veif­aði hug­hreystandi til fólks­ins. Ég hef, frá því ég var lít­ill drengur, haft Krist að leið­ar­ljósi í mínu lífi. Og einsog Hann þá skor­ast ég ekki undan örlög­unum, jafn­vel þótt þau séu ill.

-Hvað er kær­leikur?! spurði Pontíus Pílatus með grát­staf­inn í kverk­unum. Þeirri spurn­ingu verður víst aldrei svarað. En eitt er víst að án kær­leik­ans væri lítið gaman að vera til.

Eins og alþjóð veit, sem fylgst hefur með heilsu­fari mínu, í gegnum árin, þá greind­ist ég með ill­vægi­legt lík­þorn (Clavus Neurovascularis) á vinstri il fyrir nokkrum árum, aðeins nokkrum árum eftir að ég missti báða for­eldra mína með svip­legum hætti.

Sjúk­dómar og ást­vina­missir setur sín spor á allt fólk, jafn­vel mestu helj­ar­menni.

Ég hef þegar sent Útvarps­ráði upp­sögn mína. Ég á samt ekki von á að þau svari því erindi frekar en öðrum sem ég hef sent þeim.

Líkþorn er ólækn­andi sjúk­dómur. En hann er samt ekki lífs­hættu­legur. Ég grát­bið ykkur, hlust­endur góðar, að hafa ekki áhyggjur af mér. Ég er kannski mun­að­ar­laus með lík­þorn og ADHD en ég ber mig vel, bít á jaxl­inn og stíg ákveðið í vinstri fót­inn.

Það hitti mig maður þegar ég var á göngu í Vest­ur­bænum á dög­unum. Hann hafði á orði við mig að ekki sæist á ákveðnu og takt­föstu göngu­lagi mínu að ég væri með lík­þorn. Ég tók undir þessa fal­legu kveðju en bætti svo við, frá eigin hjarta:

-Eigi skal haltur ganga á meðan báðir fætur eru jafn­langir!

Við hlógum að þessu báðir. Svo kvödd­umst við.

Og einsog ég kvaddi þennan góða mann þá kveð ég ykkur hlust­endur mínar. Ég er vissu­lega fullur af sorg og trega. Ég hafði hlakkað mikið til að kynna ykkur fyrir nýjum manni sem er að berj­ast við það að hætta að drekka. Ég er með svo mörg ný orð sem mig lang­aði að deila með ykkur. Ég hlakk­aði alveg sér­stak­lega mikið til að heyra Suðu Sigfús kenna okkur að elda hin full­komnu súkkulaði­svið. Missir ykkar er mik­ill en þið getið huggað ykkur við að minn er meiri. Það sem fyrir ykkur eru ónot er fyrir mér kvöl.

Ég vil ítreka það sem ég sagði hér áður að þetta er algjör­lega mín ákvörðun. Ég þakka Sig­ur­jóni þann mikla stuðn­ing sem hann hefur sýnt mér en grát­bið hann um leið að virða ákvörðun mína.

Ástæðan er ein­föld. Ég hrein­lega nenni þessu ekki lengur og langar til að nýta mína skap­andi krafta til ann­ars á nýjum og spenn­nadi vett­vangi þjóð­mál­anna, einsog ég hef gert und­an­farin ár. Ég hlakka til að sjá ykkur í leik­hús­inu, í Bónus og Costco.

Ég vil að lokum grát­biðja ykkur um að láta Dodda í friði með þetta. Hann er sak­leys­ingi sem einsog aðrar barns­sálir í land­inu hélt að haust­fugl­inn kæmi með kóln­andi veðri.

En hvað ef og hvað ef? skrækir eflaust mörg öndin. Hvað ef þetta væri sona en annað hinsegin? Tökum dæmi:

Jesú kemur gang­andi niður versl­un­ar­götu í Jer­úsalem með níð­þung­ann tré­kross­inn á bak­inu. Hann hrasar. Múgurinn veitir honum enga hlut­tekn­ingu heldur hlær bara að honum.

-Þetta er bara skráma! hrópar einn maður. Múgurinn hlær að þessu líka. Engin vita að þessi maður er eng­inn annar en Barrabas sjálfur. Og auð­vitað er þetta bara skráma, örlítil rispa á öðru hnéi Jesúsar. En þetta er hans hné og hvað ger­ist í því getur eng­inn skilið, ekki einu sinni Hann. Það eru bara fær­ustu læknar og vís­inda­fólk sem getur skilið það og þau voru bara ekki til á þessum tíma. En hvað ef Jesú hefði bara sagt við Róm­versku her­menn­ina að hann nennti ekki að bera þennan þunga kross? Það hefði eflaust komið undr­un­ar­svipur á þá. Hvað hefði þá verið til ráða?

Ég tek þetta bara sem dæmi um það að allar sögur geta haft mis­mun­andi enda. Og stundum þegar ein saga endar þá hefst önnur. Ég man, þegar ég var lít­ill drengur, hvað ég var leiður þegar The Hobitt end­aði. Ég grét mig í svefn í nag­andi óvissu. Spurn­ing­arnar hlóð­ust upp í huga mér. Hvað ger­ist næst fyrir Bilbo? Lendir hann ekki í neinum fleiri ævin­týrum? Og hvað verður um Gollum? Og hvað og hvað og hvað?

Mamma gat auð­vitað ekki svarað þessum spurn­ingum mínum. Hún hafði ekki lesið bók­ina og vissi ekk­ert hvaða fólk þetta var. Og auð­vitað tækni­lega séð var þetta ekki fólk heldur hobbitar. Meira að segja Gollum var einu sinni Hobbiti. En þá kom höf­und­ur­inn sjálfur mér á óvart, einsog hann hafði gert með bók­inni, og gaf út nýja bók. Ég er auð­vitað að tala um Hringa­drott­ins­sögu. Þær áttu eftir að verða þrjár. Mér fannst þær í fyrstu ekki eins góðar og The Hobbit en þær voru það nú samt. Myndin The Hobbit er td ekki eins góð og Lord of the Rings. Eða það upp­lifði ég að minnsta kosti sem áhor­fönd. En nóg um það.

Ég harma að svona sé fyrir okkur komið. Enga tekur þetta sárar en mig. En þetta er ekki í mínum höndum og frjáls vilji aðeins barna­leg blekk­ing. Pontíus Pílatus hefur kveðið upp sinn dóm og gang­verk böðl­anna hefur verið gang­sett.

Ég vil end­ur­taka það sem ég hef sagt áður að þetta er alfarið mín ákvörðun. Ég er búinn að tala við minn yfir­mann hjá RÚV. Ég er búinn að tala við Sigurjón. Hann virðir mína ákvörðun. Ég tal­aði líka við Þórð Helga Þórð­ar­son. Hann tók þessu þurr­lega en grát­bað mig að grát­biðja ykkur að láta sig í friði. Hann ber enga sök hér og getur ekk­ert útskýrt.

Ég úti­loka það ekki að Tvíhöfði komi aftur til lands­ins einn dag­inn. En það er með það einsog annað í nátt­úr­unni og einsog jarð­fræð­ing­arnir segja, þegar þau eru spurð um mögu­leg eld­gos, það er ekki ólík­legt að það gjósi ein­hvern tím­ann á næstu 500 árum en hvar það verður og hvenær það ger­ist er ómögu­legt að segja.

Með auð­mýkt, hug­rekki og birtu heið­ar­leika að leið­ar­ljósi

Ykkar ein­lægur Jón Gnarr“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við