Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gretu Salóme leyst ekkert á Disney-ævintýrið í upphafi: „Mér fannst ég vera fyrir“

Gretu Salóme leyst ekkert á Disney-ævintýrið í upphafi: „Mér fannst ég vera fyrir“
Greta Salóme

Nýjasti gestur Hildar Maríu í Lifa og njóta hlað­varps­þætt­inum er engin önnur en söng­konan og fiðlu­snill­ing­ur­inn Greta Salóme Stef­áns­dóttir. Þjóðin kynnt­ist þess­ari hæfi­leika­bombu er hún keppti fyrir hönd Íslands í Eurovision með lagið Mundu eftir mér árið 2012 og hefur haldið áfram að heilla land­ann æ síðan. Ræðir hún meðal ann­ars um Disney-ævin­týrið sem í byrjun leit ekk­ert sér­stak­lega vel út. Þá segir hún einnig frá áfall­inu þegar faðir hennar fékk heila­blóð­fall í miðju flugi.

Þakklát fyrir agann og aðhaldið

Hildur María velti því fyrir sér í byrjun við­tals­ins hvernig Greta Salóme hafi verið sem barn og í raun hver þessi litla ljós­hærða stelpa væri.

„Ég var bara aðeins minni,“ svar­aði Greta og hló. Hún hélt svo áfram: „Ég er fædd og upp­alin í Mos­fells­bænum og er bý þar reyndar ennþá, núna. Ég byrj­aði að spila á fiðlu þegar ég var fjög­urra ára gömul og í raun­inni tók tón­listin bara yfir líf mitt allt. Ég fór í gegnum Suzuki-námið og mæli heldur betur með því.“ Segir Greta að hún mæli með því námi fyrir fólk sem vill senda börn sín í tón­lista­nám. Þar sé mik­ill agi en einnig mjög mikil gleði. Systir Gretu Salóme var með henni í nám­inu en í Suzuki-nám­inu fylgja for­eldrar börnum sínum í gegnum námið og því var öll fjöl­skyldan í þessu saman. „Við erum mjög sam­heldin fjöl­skylda og þetta var alltaf svo gaman,“ sagði Greta en tók það svo til baka: „Nei, ég ætla að taka þetta til baka, í minn­ing­unni var þetta alltaf gaman og námið var það en auð­vitað tími þar sem maður vildi ekki æfa sig og vildi ekki gera þetta og hitt en ein­hvern­veg­inn aginn og aðhaldið, ég er ótrú­lega þakk­lát fyrir það í dag. Það sem Suzuki hefur kennt mér hef ég tekið með mér út í lífið og bý enn að, þannig að ég er mjög þakk­lát fyrir það.“

Greta Salóme fór síðan í Tón­list­ar­skól­ann í Reykja­vík og svo í Mennta­skól­ann í Reykja­vík. Eftir útskrift stund­aði hún svo nám við Lista­há­skóla Íslands þar sem hún nam Bacherlor-nám í fiðlu. Næst lá leiðin til Banda­ríkj­anna þar sem hún nam við Stetson-háskól­ann í Florida. Eftir það snéri hún svo aftur heim og klára meist­ara­nám í tón­list árið 2012.

Hildur spurði Gretu hvort það sé ekki rétt að í henni búi upp­reisn­ar­seggur, sem stundum brýst út í tón­list­inni. „Já, ég hef alltaf synt upp á móti straumnum hvað það varðar en ég var alltaf svo heppin að ég var með stuðn­ing­inn heima. Ég til dæmis fékk alveg að skrúfa upp í útvarp­inu og spila með og syngja með og búa til í kringum það sem ég var að hlusta á. Og stundum þegar ég átti að vera að æfa skal­ana mína á fiðl­una þá fór ég og pikk­aði upp gítar Metallica-rokk sóló,“ sagði Greta og skellti upp úr. „Ég kunni einu sinni allan kata­log­inn af Metallica-gít­ar­sól­ó­unum á fiðl­una. Þannig að ég hef alltaf verið svo­lít­ill rebell í mér.“ Segir Greta að hún sé afar þakk­lát fyrir stuðn­ing­inn heima fyrir og það hafi gert henni kleift að fara sínar eigin leiðir í tón­list­inni.

Disney-ævintýrið

Fyrir nokkrum árum var Greta Salóme ráðin á skemmti­ferða­skip á vegum Disney-sam­steypunnar.

„Ég hef verið on og off á Disney-skip­inu frá 2014 og er að fara aftur út núna eftir tvær vikur,“ segir Greta og brosir sínu breið­asta, greini­lega spennt. Er þetta síð­asta ferðin á þessu ári en svo var hún að skrifa undir nýjan samn­ing við Disney. „Ég er að fara á nýtt skip núna, þeir eru að stækka flot­ann sinn, eru með fimm skip núna. Þeir eru að koma með eitt skip til Evrópu og ég er að fara að opna það sea­son núna. Ég var á Bahamas og mikið á Kar­ab­íska haf­inu en líka nálægt Spáni en mest á Flórída.“

Hildur spurði Gretu hvort það sé mik­ill lúxus um borð í skipum Disney og neitar Greta því ekki. „Já, Disney gerir mjög vel við aðal­núm­erin þeirra, þeir passa það að manni líði vel í þessu verk­efni. Þannig að ég hef verið ótrú­lega heppin, er alltaf með svítu út af fyrir mig. Yfir­leitt má ég líka hafa ein­hvern með mér þannig að ég hef oft með mér fjöl­skyldu­með­lim. Reyndar þarf maður að fara mjög var­lega núna vegna Covid en ég er einmitt að jafna mig á Covid akkurat núna.“ Greta Salóme fékk Covid úti í Banda­ríkj­unum í jan­úar á þessu ári, þrátt fyrir að vera full bólu­sett en svo fór hún í þriðju spraut­una í júní til að vera alveg örugg en einum og hálfum mán­uði síðar var hún komin aftur með veiruna. „Þannig að þetta er búið að vera svo­lítið tricky tíma­bil, að vera söng­kona með Covid og missa rödd­ina.“

En aftur að Disney. Greta sagði það mik­inn mis­kiln­ing að hún sé að leika prinsessur í sýn­ingum hennar hjá Disney. „Ég er bara með show sem heitir Greta Salóme. Þannig að ég kem bara fram undir mínu eigin nafni og er að spila mitt efni og svo spila ég mínar útsetn­ingar á Disney-lögum og svo spila ég eitt­hvað annað líka. Ég skipti showinu svo­lítið í þrennt. Þeir hafa leyft mér að fara svo­lítið mínar eigin leiðir í þessu showi, þeir hafa leyft mér að þróa það. Ég tek til dæmis íslensk lög líka og þeim finnst það mjög skemmti­legt.“

Gretu Salóme leyst eig­in­lega ekk­ert á blik­una þegar hún fór fyrst út til að vinna fyrir Disney. „Þegar ég byrja hjá Disney 2014, þá var þetta svo­lítið sér­stakt ferli. Ég fer þangað út í gegnum umboðs­skrif­stofu og ég fékk svo lítið að vita. Ég vissi bara að þeir vildu að ég setti upp ein­hvers­konar show hjá þeim en ég vissi eig­in­lega ekki neitt. Þannig að þegar ég kem út til þeirra þá vissi eng­inn hvað þeir ættu að gera við mig. Það var búið að vera í fjöl­miðlum hér heima að ég væri að fara að spila fyrir Disney þannig að ég var ótrú­lega spennt en svo kem ég út og þetta voru eig­in­lega bara von­brigði. Og ég gat ekki farið heim því það var búið að aug­lýsa alls staðar að ég væri með show hjá Disney,“ sagði Greta og hló. „Ég gat ekki komið heim og bara sagt „Nei, þetta hent­aði mér ekki“, þannig að ég ákvað bara að gera gott úr þessu.“ Enginn virt­ist vita hvað gera ætti við Gretu Salóme en vissu bara að þeir vildu vinna með henni og þróa eitt­hvað. „Þannig að við byrjum show og ég var með alveg geggjað fólk í kringum mig sem hafði trú á þessu.“

Fyrsta sýn­ingin sem Greta var með var lítið í sniðum en það var í leik­húsi sem tók um 500 manns. Þegar þeim samn­ingi lauk bjóst hún við að hennar tími hjá Disney væri lokið. „Og ég var bara til­búin að setja „check“ við þetta og fara heim og halda áfram með lífið. Og þá bjóða þeir mér þennan „Hea­d­liner“ samn­ing sem er sá samn­ingur sem ég hef verið á síðan. Þau sögðu að þau vildu kaupa þetta show sem þau eru búin að þróa og fjár­festa í því og í raun stækka það enn meira.“ Sem þau gerðu og er sýn­ing hennar nú orðið hið glæsi­leg­asta. Segist Greta Salóme mjög þakk­lát að hafa ekki farið heim þegar fyrsti samn­ing­ur­inn rann út en hún var ansi nálægt því. „Mér leið ekki vel, ég var með heim­þrá og svo voru svo miklar vænt­ingar því ég var að fara að vinna hjá Disney en svo er ég bara í pínu­litlu her­bergi og það vissi eng­inn ein­hvern­veg­inn hvað þeir ættu að gera við mig og mér fannst ég vera fyrir. Þetta var rosa skrítin til­finn­ing.“

Hægt er að horfa á við­talið í heild sinni hér fyrir neðan eða á VefTV Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina