Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Langveikur 11 ára drengur safnar áheitum: „Mjög duglegur strákur, þrátt fyrir veikindin“

Langveikur 11 ára drengur safnar áheitum: „Mjög duglegur strákur, þrátt fyrir veikindin“
Erik er afar dug­legur drengur. Mynd: Aðsend

Hinn 11 ára gamli Erik Valur hleypur í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu um næstu helgi og safnar áheitum fyrir góð­gerð­ar­sam­tökin Mia Magic. Erik Valur er lang­veikur.

Hið árlega Reykja­vík­ur­mara­þon Íslands­banka fer fram næst­kom­andi laug­ar­dag, á Menn­ing­arnótt en þar safna hlauparar áheitum fyrir ýmis­konar góð­gerð­ar­sam­tök.
Erik Valur Kjart­ans­son er einn þeirra en hann mun hlaupa svo­kallað skemmtiskokk en það eru þrír kíló­metrar. Erik er lang­veikur en eldri bróðir hans, Jón Sverrir, sem einnig er lang­veikur hefur hlaupið í nokkur skipti í hlaup­inu og mun Erik hlaupa bróður sínum til heið­urs.

Hleypur fyrir bróður sinn

Bræð­urnir eru báðir með sjúk­dóm­inn CVID eða Common vari­able immunodeficiency sem er ein­hverss­konar ónæm­is­galli og þurfa þeir að fara í lyfja­gjöf á þriggja vikna fresti. Jón varð 18 ára nýlega en fær und­an­þágu til að fara í síð­ustu lyfja­gjöf­ina sína með bróður sínum á Barna­spít­al­anum á næst­unni. Af þeim sökum ætlar Erik að verð­launa stóra bróður sinn öll skiptin sem hann hefur hlaupið og hlaupa sjálfur til styrktar Mia Magic. Mamma þeirra, Þórunn Eva G Páls­dóttir stofn­aði sam­tökin árið 2021 en hún gaf út bók­ina Mía fær lyfja­brunn ásamt Bergrúni Írisi Sæv­ars­dóttur, í þeim til­gangi að hjálpa börnum sem þurfa á lyfja­brunni að halda. Og nú stefnir Þórunn Eva á að gefa út aðra Míu bók, Mía fer í Tívolí. Hlaupa­styrkur Eriks fer í að kosta útgáfu bók­ar­innar en stefnt er á að hún komi út fyrir jól.

Jón Sverrir

Mannlíf heyrði í bræðr­unum Erik og Jóni og spjall­aði við þá um hlaupið og þann styrk sem þeir finna hjá hvorum öðrum.

„Ég ætla að hlaupa þrjá kíló­metra,“ sagði Erik þegar blaða­maður Mannlífs spurði hann út í hlaupið. „Hann er mjög virkur, hefur ekki hlaupið áður í mara­þon­inu en er mjög dug­legur strákur, þrátt fyrir veik­indin,“ segir Jón Sverrir um litla bróður sinn.

Falleg fjöl­skylda

Markmið Eriks er að safna 250.000 en þegar þetta er ritað hefur þegar náðst að safn­ast 52% af þeirri upp­hæð. Eru bræð­urnir ekki bjart­sýnir á að þetta náist fyrir hlaupið?
„Jú, við erum mjög bjart­sýnir á þetta, það eru fleiri hlauparar að hlaupa fyrir Míu Magic sam­tökin og mér sýn­ist þeir flestir vera búnir að ná mark­miðum sínum. Mér finnst þetta ganga mjög vel en hver styrkur hjálpar voða mikið,“ sagði Jón Sverrir og Erik tók undir.
Sjálfur hefur Jón hlaupið nokkrum sinnum áður í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu. „Já, ég hef hlaupið nokkrum sinnum fyrir Einstök börn en það eru komin nokkur ár síðan síð­ast.“

Duglegir að hvetja hvorn annan

Á hlaupa­styrks­síðu Eriks má sjá ljós­myndir af honum en á einni þeirra heldur hann á þremur bik­urum. „Fyrir hvað eru þeir?“ spurði blaða­maður Erik.

„Þeir eru fyrir bad­minton, ég er þre­faldur Íslands­meist­ari í bad­minton,“ svar­aði Erik og Jón Sverrir bætti við: „Já, hann er allur í bad­minton og golfi,“ greini­lega stoltur af litla bróður.

Bræð­urnir eru góðir vinir.

Nú stytt­ist í að þeir bræður fari í sína síð­ustu lyfja­gjöf saman á Barna­spít­al­anum þar sem Jón Sverrir varð nýlega 18 ára gam­all. Bræð­urnir segj­ast finna fyrir miklum stuðn­ingi vegna hlaups­ins hjá bekkj­ar­fé­lögum og vinum. „Það eru mjög margir, til dæmis í skól­anum mínum, sem vita af bók­inni en ég fór með hana á bóka­safnið í skól­anum mínum og það eru mjög margir búnir að lesa hana og koma til mín og spyrja mig hvað þetta er og fleira,“ sagði Erik glaður í bragði. Blaða­maður spyr hvort þeir bræður styðji ekki líka hvorn annan. „Jú, við erum mjög dug­legir að hvetja hvorn annan áfram,“ svar­aði Jón og Erik tók vel undir það.

Aðspurðir hvort hann sé ekki spenntur fyrir hlaup­inu sagð­ist Erik vera það. „Jú, mjög spenntur! Ég ætl­aði að hlaupa 5 kíló­metra ef það væri hægt en það er bara hlaupið í þrjá kíló­metra, 10, 21 og 42 kíló­metra. Ég ákvað þá að taka hlaupa bara aðeins minna og fara þrjá kíló­metra.“

En hafa bræð­urnir ein­hver sér­stök loka­orð fyrir les­endur Mannlífs?

„Já, bara, endi­lega styðjið mig í hlaup­inu,“ svar­aði Erik.

Þeir sem vilja styrkja þennan dug­lega strák geta lagt inn hlaupa­styrk hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina