Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pabbi Gretu Salóme fékk heilablóðfall í miðju flugi: „Vissum ekki hvort að hann hefði lifað af“

Pabbi Gretu Salóme fékk heilablóðfall í miðju flugi: „Vissum ekki hvort að hann hefði lifað af“
Greta Salóme Mynd: Vikan

Nýjasti gestur Hildar Maríu í Lifa og njóta hlað­varps­þætt­inum er engin önnur en söng­konan og fiðlu­snill­ing­ur­inn Greta Salóme Stef­áns­dóttir. Þjóðin kynnt­ist þess­ari hæfi­leika­bombu er hún keppti fyrir hönd Íslands í Eurovision með lagið Mundu eftir mér árið 2012 og hefur haldið áfram að heilla land­ann æ síðan. Ræðir hún meðal ann­ars um Disney-ævin­týrið sem í byrjun leit ekk­ert sér­stak­lega vel út. Þá segir hún einnig frá áfall­inu þegar faðir hennar fékk heila­blóð­fall í miðju flugi.

„Þetta er búið að vera mjög erfitt ár en á sama tíma ár sem setur lífið í svo­lítið sam­hengi,“ segir Greta Salóme við Hildi Maríu. Segir hún það mjög mik­il­vægt að geta stundum skilið sím­ann eftir heima, slökkva á hausnum, hlusta á fal­lega tón­list og labba á Helg­ar­fellið sem er nán­ast í bak­garð­inum hjá henni í Mos­fells­bænum og kúpla sig aðeins út. „Það er bara mjög mik­il­vægt ef maður ætlar svo að vera upp á sitt besta upp á sviði.“

Áfall í flugi

„Ég var á leið­inni til Banda­ríkj­anna að spila, núna í mars þegar ég fæ sím­tal frá mömmu. Hún segir mér að pabbi, sem var á leið­inni heim í skírn hjá fyrst barna­barn­inu sínu hjá litlu frænku minni, hafi fengið heila­blóð­fall í flugi. Við erum mjög lítil og mjög sam­heldin fjöl­skylda og við höfum ekki þurft að díla við svona hluti áður. Við vissum ekki neitt. Við vissum ekki hvort að hann hefði lifað af, við bara vissum ekk­ert. Það eina sem við vissum var að hann var á leið­inni heim eftir vinnu­ferð á Græn­landi og hann hafði fengið þetta áfall í flug­inu frá Græn­landi til Dan­merkur. Og hann var kom­inn inn á spít­al­ann í Köben. Og það eina sem okkur var sagt að það væri gott fyrir okkur að koma. Sem er auð­vitað aldrei það sem maður vill heyra í svona aðstæðum. Þannig að við fljúgum út og við erum öll bara í áfalli. Og við fljúgum út hald­andi að við munum mögu­lega þurfa að kveðja. Þetta móment, þegar þetta gerð­ist, þá skipti ekk­ert annað máli. Það fyrsta sem ég gerði var að hringja og cancela bara öllu. Bara „ég er off núna. Ég er ekki að fara að til Banda­ríkj­anna eftir tvo daga, þú veist, ég er bara off“. Svo fór þetta reyndar miklu betur en á horfð­ist en við vissum ekki hvort pabbi myndi labba aftur eða hvort hann myndi þekkja okkur þegar hann vakn­aði aftur eða hvort hann myndi tala einu sinni. En allt þetta hefur gengið aftur í dag, hann labbar og er alveg skýr. Þetta setti hlut­ina í sam­hengi. Pabbi er 68, hann er ekki gam­all. Þetta var eitt­hvað sem ég þurfti svo ég myndi hægja á líka. Ég held að ekk­ert annað hefði getað stoppað mig í að keyra bara út af líka, úr vinnu og álagi. Þegar pabbi veik­ist tek ég bara þá ákvörðun að ég ætli að eyða þessum vetri alfarið heima með fjöl­skyld­unni og hlúa að því sem skiptir máli. Því það er þannig að maður heldur að maður hafi enda­lausan tíma. Það er ekk­ert mik­il­væg­ara en fjöl­skylda manns. Þegar þú ert komin niður af svið­inu og komin úr glam­úr­dress­inu og ert að að taka af þér make-upið, það bliknar allt, að vera uppi á sviði og upp­lifa þetta, ef þú hefur ekki ein­hvern til að fara heim til. Og þá er ég ekki að tala endi­lega um maka, er ekki að segja að fólk þurfi að eiga sína eigin fjöl­skyldu til að vera ham­ingju­samt en bara að hlúa að þér og þínu. Og í mínu til­felli er það fjöl­skyldan mín og fólkið sem skiptir mig mestu máli, mað­ur­inn minn og fjöl­skyldan mín.“

Hægt er að horfa á við­talið í heild sinni hér fyrir neðan eða á VefTV Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við