Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Harmleikurinn á jólaballinu í Skildi: „Sem hendi væri veifað stóð jólatréð þegar í björtu báli“

Harmleikurinn á jólaballinu í Skildi: „Sem hendi væri veifað stóð jólatréð þegar í björtu báli“

Það var á milli jóla og nýárs sem mik­ill fjöldi prúð­bú­inna barna var á leið til jóla­skemmt­unar í sam­komu­hús­inu Skildi í Keflavík. Það var eft­ir­vænt­ing og hátíð­leiki í loft­inu þegar börnin tóku að streyma inn í sam­komu­húsið, ásamt 20 til 30 full­orðnum. Alls voru um 200 þar sam­an­komnir, þar af 170 til 180 börn. Í miðjum húskynn­unum var stórt og fal­legt jóla­tré, sem börnin döns­uðu í kringum; upp­full af kátínu eins og van­inn er á slíkum skemmt­unum.

Gleðin átti hins vegar eftir að breyt­ast í martröð. Í einu vet­fangi stóð jóla­tréð sem börnin döns­uðu og sungu í kringum í ljósum logum.

Elds­voð­inn sem varð í Sam­komu­hús­inu í Keflavík að kvöldi dags þann 30. des­em­ber árið 1935 er sá mann­skæð­asti í íslenskri sögu, allt frá alda­mót­unum 1900.

Kviknaði í út frá bréfpoka

Eft­ir­far­andi er lýs­ing á atburðum kvölds­ins í sam­komu­hús­inu, í Nýja Dag­blað­inu, dag­inn eftir hinn hrika­lega atburð.

„Jólatrésskemmtun var haldin í Keflavík í gærkveldi í sam­komuhúsi þorps­ins. Um 10-leytið datt bréfpoki ofan á eitt kertið og kvikn­aði í honum. Og sem hendi væri veifað stóð jólatréð þegar í björtu báli, með svo miklum ofsa, að eld­ur­inn læsti sig þegar í húsið, sem var gam­alt og byggt sem verst má verða, þegar slíkt óhapp ber að höndum, eftir því, sem blað­inu hefir verið tjáð ann­ar­staðar að. En húsið var svo byggt, að utan á trégrind var neglt bárujárni, en innan á grind­ina rimlum, yfir þá strengdur strigi, en aðeins pappír límdur á hann. Enda fuðr­aði húsið þegar upp, svo að alelda mátti heita á augna­bliki.“

Lýs­ing­arnar í Nýja Dag­blað­inu eru hafðar eftir síma­stöðv­ar­verð­inum í Keflavík, Ingi­björgu Ólafs­dóttur, kaup­mann­inum Ingi­mundi Jónssyni og Helga Guð­munds­syni, lækni. Þær gefa skýra mynd af atburðum kvölds­ins; kvölds sem átti að vera upp­fullt af hátíð­leika og fögn­uði, en umbreytt­ist þess í stað í harm­leik.

Hurðin lokaðist

„Þarna voru inni 170—180 börn og auk þess full­orðnir, svo að alls er talið, að yfir 200 hafi verið í húsinu. Þeim ógnum, sem nú dundu yfir, er erf­ið­ara að lýsa en að gera sér í hug­ar­lund, og skynjar þó eng­inn, sem ekki ratar í slíkt,“ segir í lýs­ingum Nýja Dag­blaðs­ins.

„Auðvitað þustu allir til dyra og glugga, eða í kjall­ara til útgöngu. En svo ógæfu­lega virð­ist hafa til tekizt, að því er sumir álíta, að útidyra­hurð hafi lokazt, um stund, er ruðzt var á dyr, og slysið því orðið ægi­legra en ann­ars hefði kannske mátt verða. Þrátt fyrir þetta virð­ast litlar eða engar lim­lest­ingar hafa orðið af sjálfum troðn­ingnum, en einn drengur a.m.k., hafði skorizt töluvert af rúðubrotum.“

Blaðið kom út morg­un­inn eftir brun­ann. Blaða­menn höfðu náð tali af Helga Guð­munds­syni lækni um nótt­ina, en þá var talið að um 20 manns hefðu brennst í elds­voð­anum, en sex barna var þá saknað og talið að þau hefðu brunnið inni. Um nótt­ina höfðu þeir sem verst voru brenndir verið fluttir á sjúkra­hús í Reykja­vík, flestir á Landakot. Seinna varð ljóst að tíu höfðu lát­ist í elds­voð­anum, þar af sjö börn.

Sam­komu­húsið brann til kaldra kola á svip­stundu, miðað við lýs­ingar.

„Það var eign ung mennafélags­ins í Keflavík, sem af góðum hug efndi til skemmt­un­ar­innar, sem end­aði svo átak­an­lega,“ segir í frétt­inni.

„Jólatréð fuðraði upp“

Sig­ur­björn Reynir Eiríks­son var einn þeirra sem slas­að­ist í brun­anum en lifði af. Hann kom fram í við­tali við RÚV árið 2015, þegar 80 ár voru liðin frá hinum hræði­lega atburði. Sig­ur­björn var níu ára gam­all þegar eld­ur­inn kvikn­aði í Skildi.

„Ég man eftir því að eitt kertið féll niður. Við vorum að dansa í kringum jóla­tréð. Það féll niður og byrj­aði að loga. Maður bjóst ekki við að þetta yrði eins mikið og þetta varð. En jóla­tréð fuðr­aði upp. Það voru venju­leg kerti á trénu og það náði upp í loft og þetta bara fuðr­aði upp. Það varð alelda á nokkrum sek­úndum,“ sagði Sig­ur­björn Reynir í við­tal­inu við RÚV.

Sig­ur­björn Reynir lýsti troðn­ingnum sem mynd­að­ist við dyrnar þegar reynt var að rýma húsið. Hann rifj­aði upp að útgöngu­dyr hafi verið sitt hvoru megin í salnum. Bekkj­a­röð hafi alveg lokað öðrum dyr­unum. Það gerði rým­ing­una mun erf­ið­ari að dyrnar sem um ræðir opn­uð­ust inn.

„Það tók tíma að opna þær og rífa bekk­ina frá. Við krakk­arnir gátum það ekki þannig að ég held að prest­ur­inn hafi gert það. En það var líka troðn­ingur þegar komið var fram í and­dyrið. Þar opn­uð­ust dyrnar líka inn. Og allir að reyna að kom­ast út,“ sagði hann. Eftir elds­voð­ann var lögum um bruna­mál breytt þannig að dyr á leik­húsum og sam­komu­húsum skyldu ávallt opn­ast út.

Margir slös­uð­ust og hlutu alvar­leg bruna­sár í elds­voð­anum. Sig­ur­björn var einn þeirra. Hann var sendur á Landakot og dvaldi þar í heilt ár. Hann brennd­ist á höndum, hnakka og á eyra.

Atburðurinn sveipaður þögn

Árið 1991 var minn­is­varði um brun­ann í Skildi reistur þar sem sam­komu­húsið hafði staðið. Hann var reistur af aðstand­endum fórn­ar­lamba elds­voð­ans.

Dagný Gísla­dóttir gaf út bók um brun­ann í Skildi árið 2010. Í henni má meðal ann­ars finna við­töl við fólk sem lifði elds­voð­ann. Dagný sagði í við­tali við RÚV um bók­ina að hinn hörmu­legi atburður hafi í langan tíma verið sveip­aður þögn meðal íbúa í Keflavík. Margir sem hún ræddi við fyrir skrifin hafi tjáð henni það sama – að brun­inn hafi ekki verið ræddur á þeirra heim­ili.

Það voru ýmsir full­orðnir sem drýgðu hetju­dáðir við björg­un­ar­störf á vett­vangi, til að mynda ein­stak­lingar sem voru inni í hús­inu og fórn­uðu lífi og limum við að reyna að koma börn­unum út. Má þar til dæmis nefna séra Eirík Brynj­ólfs­son, en það er hann sem Sig­ur­björn Reynir tal­aði um að hafi rifið bekk­ina frá annarri útgöngu­leið­inni og opnað dyrnar. Þegar séra Eiríkur fór, síð­astur manna, út úr sam­komu­hús­inu stóð hár hans í ljósum logum. Börnin hans fengu ekki að vita almenni­lega um elds­voð­ann eða hetju­dáð föður þeirra fyrr en hann var lát­inn. Hann tal­aði aldrei um harm­leik­inn í Skildi.

Séra Eiríkur Brynj­ólfs­son. Mynd/skjá­skot RÚV.

Þau sem lét­ust í elds­voð­anum voru:

Kristín S. Hall­dórs­dóttir, 76 ára

Guðrún Eiríks­dóttir, 61 ára

Loftur Hlöðver Krist­ins­son, 10 ára

Borgar Breið­fjörð Björns­son, 6 ára

Guðbjörg Sig­ur­gísla­dóttir, 7 ára

Sólveig Helga Guð­munds­dóttir, 7 ára

Anna Guð­munds­dóttir, 10 ára

Árni Jóhann Júl­í­us­son, 8 ára

Þóra Eyj­ólfs­dóttir, 71 árs

Alma Svein­björg Þórð­ar­dóttir, 10 ára (Alma lést 28. mars 1936)

Heim­ildir:

Hræði­leg­asti elds­voði í manna minnum – Nýja Dag­blaðið

Lifði af mann­skæð­asta elds­voða 20. aldar – RÚV

Minn­is­varði um Skjald­ar­brun­ann – Reykja­nes­bær

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við