Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hlaupa fyrir Samtök um Endómetríósu: „Þakklát fyrir hverjar þúsund krónur sem er heitið á mig“

Hlaupa fyrir Samtök um Endómetríósu: „Þakklát fyrir hverjar þúsund krónur sem er heitið á mig“
Eyrún Telma – Endó­metríósu er afar sárs­auka­fullur sjúk­dómur. Mynd: Aðsend

Reykja­vík­ur­mara­þon Íslands­banka fer fram á Menn­ing­arnótt næst­kom­andi laug­ar­dag. Fjöldi manns hefur skráð sig til keppni en til­gang­ur­inn er sá að safna áheitum til handa ein­hverju góða­gerða­starfi, gegn því að hlaupa ákveðnar vega­lengdir. Þær Karen Ösp Friðriks og Eyrún Telma Jóns­dóttir taka þátt í hlaup­inu en þær safna nú báðar áheitum fyrir Samtök um endó­metríósu. Þær gegna báðar stöðu í aðal­stjórn sam­tak­anna og eiga það sam­eig­in­legt að hafa þurft að fara í leg­nám fyrir þrí­tugt vegna sjúk­dóms­ins.

Stórt og gott bakland

Karen og fjöl­skylda á Regn­boga­stræti á Seyð­is­firði

Karen Ösp er 30 ára gömul. Hún hefur þjáðst af endó­metríósu síðan hún var níu ára. Maðurinn hennar, Óskar, ætlar líka að hlaupa fyrir sama mál­efni.

„Í fyrra fór ég í leg­nám þar sem öll kven­líf­færin voru tekin og eign­að­ist nýtt líf. Þetta er auð­vitað ekki auð­veld ákvörðun að taka en ég er svo heppin að eiga níu ára stjúp­son og hund þannig að ég valdi að taka þessa stóru ákvörðun fyrir akkúrat þetta, eiga líf og lifa líf­inu en ekki berj­ast við sjúk­dóm­inn alla daga þar sem hann var bara bund­inn við legið hjá mér,“ segir hún.

„Ég hef aldrei hlaupið áður en fannst þetta full­komið tæki­færi fyrst ég er svona hraust í dag. Ég finn fyrir miklum stuðn­ing og er mað­ur­inn minn líka að hlaupa, strák­ur­inn okkar, móðir mín, mág­kona, bróðir minn og vinur hans og annar vinur okkar þannig bak­landið mitt er mikið. Það er nátt­úru­lega ómet­an­legt í alla staði að finna fyrir með­byrnum.“

Karen situr í stjórn sam­tak­anna og segir þau hafa gert mikið til þess að vekja athygli á sjúk­dómnum und­an­farin ár.

„Ég vil endi­lega halda því á lofti. Það þarf að útrýma því að sárir túr­verkir séu eðli­legt fyr­ir­bæri sem allir leg­hafar ganga í gegnum. Svo þarf líka að horfast í augu við það að einn af hverjum tíu leg­höfum er með endó­metríósu sem gerir sjúk­dóm­inn jafn algengan og syk­ur­sýki.“

Heita má á Karen hér.

Aldrei liðið jafn vel líkamlega

Eyrún Telma, sem er 29 ára, hleypur einnig fyrir sam­tökin en hún hefur glímt við endó­metríósu frá því að hún var ung­lingur. Blaða­maður Mannlífs spurði hana af hverju hún hafi ákveðið að hlaupa fyrir sam­tökin.

Eyrún og tví­burarnir

„Ég ákvað að hlaupa í ár og fyrir endó-sam­tökin vegna þess að ég er sjálf með endó­metríósu og hef glímt við alveg síðan ég var ung­lingur. Endósam­tökin hafa reynst mér svo ótrú­lega vel síð­ustu ár og mér fannst til­valið að prófa að hlaupa í mara­þoni þar sem ég get gefið eitt­hvað til baka til sam­tak­anna. Auðvitað skiptir það líka miklu máli að vekja athygli á mál­staðnum og gera öðrum við­vart um helstu ein­kenni endó­metríósu. Ég vil því hvetja þau sem grunar að þau séu með endó­metríósu, eða börnin þeirra, til að hafa sam­band við sam­tökin fyrr en síðar til þess að grípa fyrr inn í og stytta þar með grein­ing­ar­tím­ann sem er að með­al­tali 7 ár.“

Eyrún segir að þetta sé í fyrsta skipti sem hún hefur haft heilsu til að taka þátt í hlaup­inu.

„Þetta er í fyrsta skipti sem mér finnst ég hafa heilsu til þess að taka þátt. Þó ég sé vissu­lega alls ekki í hlaupaformi og hafi aldrei á ævinni hlaupið 10 kíló­metra, hef ég trú á mér og treysti lík­am­anum í þetta. En það er af því að ég fór í leg­nám í mars og mér hefur aldrei liðið eins vel lík­am­lega.“

Eyrún Telma útskýrir að hún hafi verið með annan sjúk­dóm sem sé syst­ur­sjúk­dómur endó­metríósu.

„Ég var með annan sjúk­dóm sem kall­ast aden­ómýósa og er svip­aður sjúk­dómur og endó, en adenó frum­urnar eru ein­ungis stað­bundnar inni í leg­inu. Þess vegna í mínu til­felli finn ég fyrir svaka­legum bata eftir að leg og leg­háls var tek­inn. Ég tek það samt fram að leg­nám læknar ekki endó­metríós­una þó svo að það sé lækn­ing við aden­ómýós­unni.“

Eyrún Telma er sömu­leiðis með afar gott stuðn­ings­net í kringum sig.

„Ég á litla dásam­lega fjöl­skyldu sem saman stendur af eig­in­manni mínum, Rúnar og tví­bura­drengjum okkar, Atlasi og Eldari en nýlega misstum við fjöl­skyldu­hund­inn okkar Dolla.“

Hún seg­ist hafa fundið mik­inn og áþreif­an­legan stuðn­ing frá fólki í kringum sig, sem og á sam­fé­lags­miðlum. „Það er ótrú­legt hvað skiln­ingur fólks eykst meira með árunum og ég bind miklar vonir við að eftir nokkur ár verði endó­metríósa sjúk­dómur sem allir vita um. Varðandi hlaupið þá er ég aðeins hálfnuð með mark­miðið hjá mér svo ég væri afskap­lega þakk­lát fyrir hverjar þús­und krónur sem er heitið á mig. Frá árinu 2021 hef ég setið í vara­stjórn sam­tak­anna en á þessu ári fékk ég sæti í aðal­stjórn og er það mér afar mik­il­vægt.“

Eyrún Telma bætir því svo við að hún muni ekki láta það stoppa sig í að hlaupa þótt hún þurfi að vinna á laug­ar­dag­inn: „Ég er það all-in í að hlaupa þetta að ég hleyp sjálf á föstu­dag­inn og sleppi tíma­tök­unni, vegna þess að ég er bundin í vinnu allan laug­ar­dag­inn.“

Þau sem vilja styrkja Eyrúnu Telmu geta gert það hér.

Fyrir þau sem vilja vita meira um sjúk­dóm­inn má hér lesa lýs­ingu sam­tak­anna um endó­metríósu:

Um 10% fólks sem fæð­ist með leg er með endó­metríósu eða um 176 millj­ónir í heim­inum. Endó­metríósa er ekki bara slæmir túr­verkir. Sjúk­dómnum geta fylgt miklar kvalir og ýmsir erf­iðir fylgi­kvillar, þar á meðal melt­ing­ar­vand­ræði og ófrjó­semi. Með­al­grein­ing­ar­tími er 7-8 ár. Stuðn­ingur og fræðsla er meg­in­verk­efni Samtaka um endó­metríósu. Samtökin vinna ötul­lega að því að fræða almenn­ing og heil­brigð­is­starfs­fólk um sjúk­dóm­inn. Margt fólk með endó­metríósu finnur fyrir van­trú ann­arra og þarf enn þann dag í dag að berj­ast fyrir við­ur­kenn­ingu á líðan sinni og ein­kennum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við