Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Svæsnar nágrannerjur í Mosfellsbæ: „Ég er enginn æsingamaður“

Svæsnar nágrannerjur í Mosfellsbæ: „Ég er enginn æsingamaður“
Lög­reglan mætt á svæðið. Mynd: Aðsend

Harð­vít­ugar nágrann­erjur eru í Ástu-Sól­li­lju­götu í Mos­fellsbæ um þessar mundir. Rifrildi vegna bíla­stæðis hefur undið upp á sig og hefur lög­reglan ítrekað þurft að sker­ast í leik­inn. Kærur í und­ir­bún­ingi en báðir aðilar deil­unnar saka hvor annan um illan ásetn­ing.

Bílastæðadeilur vinda upp á sig

Blaða­maður Mannlífs sett­ist niður með Viðari Aust­manni Jóhanns­syni, syni hans og dóttur í bjartri og fal­legri íbúð son­ar­ins og hlýddi á frá­sögn þeirra. Viðar er eig­andi húss­ins sem íbúðin er í, við Ástu-Sól­li­lju­götu. Í hús­inu búa tvö börn hans í sitt­hvorri íbúð­inni sem og aðrir leigj­endur.

Fyrir nokkrum mán­uðum fluttu hjónin Freyr Jak­obs­son og Lilja Hrönn Hauks­dóttir, kennd við Cosmo, í hús við hlið­ina á húsi Viðars. Að sögn voru sam­skiptin milli þeirra til að byrja með kurt­eisleg og þægi­leg. Viðar segir það hins vegar hafa breyst eftir að Freyr og aðilar honum tengdir hófu að leggja ítrekað í bíla­stæði sem til­heyrði húsi Viðars. Síð­ast­lið­inn laug­ar­dag héldu hjónin stóra veislu fyrir börn sín, en dóttir þeirra var að útskrif­ast og son­ur­inn að flytja til Dan­merkur. Gestir lögðu ítrekað í einka­stæði húss­ins við hlið­ina og þurfti sonur Viðars að biðja Frey að fjar­lægja bíla úr stæð­inu. Að sögn mætti hann dóna­skap frá Frey en bílar voru þó færðir. Hið sama hélt áfram að ger­ast; að gestir hjón­anna leggðu í stæðið. „Þau voru svo ágeng og leyfðu mér ekki að kom­ast að, en ég var að reyna að segja þeim að nágranni minn að ofan hefði ekki getað lagt í stæðið dag­inn áður því þau höfðu lagt í það,“ útskýrir sonur Viðars í sam­tali við Mannlíf og heldur áfram: „En Freyr er alltaf að grípa fram í fyrir mér og í raun bara að segja hvað ég sé mik­ill fáviti.“ Að end­ingu hafi hann neyðst til að hringja í Vöku til að láta draga einn bíl­inn í burtu.

Dóttir Viðars bætir því við að með­leigj­andi hennar hafi heyrt Lilju segja: „Veistu hvaða fólk við þekkjum?“ Bróðir hennar segir að Freyr hafi end­ur­tekið þetta og sagt: „Ef þér fannst fyrrum eig­andi húss­ins erf­iður, þá er ég miklu verri.“ Tók hann skýrt fram við blaða­mann að fyrri eig­andi húss­ins hefði verið mjög fínn og „ekki gert flugu mein.“

„Ég svara og segi „Já ókei, þú ert svona svaka­legur,“ en svo segir Freyr: „Þó að pabbi þinn sé rosa stór og sterkur þá ert þú algjör aum­ingi.““

Segir sonur Viðars að fólk úr veisl­unni hafi öskrað sví­virð­ingar yfir hann þar sem hann var á svöl­unum og hótað honum bar­smíðum. Lög­reglan mætti svo á svæðið og ræddi við son Viðars og svo Frey og Lilju. Hún hafi svo farið.

Um nótt­ina er svo að sögn sonar Viðars barið á dyr hans, og eru þá fimm eða sex menn að berja og sparka í hurð­ina. Hann kveðst hafa opnað og spurt hvað gengi á. „Ég opna og einn spyr hvort ég ætli að hringja í Vöku aftur og er bara piss­fullur á því. Og þeir kalla mig fávita og alls konar og ég segi þeim bara að fara heim, ég nenni ekki þessu dyra­ati núna,“ segir sonur Viðars. Þegar hann hafi svo ætlað að loka hurð­inni hafi einn mann­anna sett fót­inn fyrir hana. Hafi hann þá dregið þann mann inn og læst hurð­inni. Sá maður hafi verið rólegur og sagst skilja hans rétt á bíla­stæð­inu. „Náunginn sem ég dró inn sagði mér að Freyr og Lilja hefðu verið að reyna að fá hann til að hringja í und­ir­heimalið til að koma að hóta mér.“ Maðurinn hafi svo farið út en þá hefði einn mann­anna sem höfðu reynt að kom­ast inn, náð að sparka í kvið­inn á syni Viðars. Hann hafi þó náð að ýta honum frá og lokað hurð­inni.

Hér sést maður fyrir utan hurð sonar Viðars að reyna að kom­ast inn.

Aftur var hringt á lög­regl­una sem kom á svæðið og tók skýrslu af syni Viðars og ræddi svo aftur við Frey og Lilju.

Daginn eftir, á sunnu­dag­inn síð­ast­lið­inn, ákvað Viðar að koma úr ferð sem hann var í úti á landi, til þess að ræða við son sinn um atvik dags­ins á undan. „Þegar ég kem inn til sonar míns sé ég bara að hann er í áfalli. Hann var bara stein­runn­inn og stjarfur.“ Segist hann hafa sest niður með systkin­unum og farið í gegnum málið og hvernig ætti að bregð­ast við svona átökum. Hann hafi svo farið út á svalir og séð þar Frey og Lilju og nokkra aðra á plan­inu heima hjá sér, meðal ann­ars box­ara sem hafi verið í veisl­unni og einn þeirra sem voru fyrir utan úti­dyr sonar Viðars, nótt­ina áður. Segist hann hafa ákveðið að taka ljós­mynd af fólk­inu „til að sjá hver er hvar“ en segir þau öll hafa tekið eftir því. „Ég opna þá svala­hurð­ina svo­lítið og sýni mig bara algjör­lega stand­andi hér, „hér skuluð þig bara sjá mig, ég er hérna vegna þess að ég er bara hérna og þau sjá það. Ég ótt­ast ykkur ekk­ert.“,“ segir Viðar við blaða­mann Mannlífs. Þegar hann svo bakkar bíl sínum úr stæð­inu og upp göt­una segir hann að box­ar­inn hafi tekið á rás í átt að bílnum. Hann hafi ætlað sér að læsa bílnum en ýtt á rangan takka. Boxarinn hafi þá opnað hurð­ina bíl­stjóra­megin og öskrað á Viðar: „Ertu að taka myndir af mér? Hver gefur þér leyfi til þess, á ég að berja þig?“. Viðar segir að á þessu augna­bliki hafi hann hugsað að hann þyrfti að verja sig með ein­hverjum hætti og ákveðið að setja í D-drifið og keyra áfram, en þá hafi box­ar­inn farið frá. Viðar hafi síðan lagt bílnum í stæðið, læst honum og hringt á lög­regl­una. Hafi box­ar­inn þá áttað sig á að Viðar væri að hringja á lög­regl­una. „Þegar ég var búinn að fá stað­fest­ingu á að lög­reglan væri að koma, fór ég út úr bílnum. Ég ótt­að­ist hann ekk­ert. Ég fór beint í hann og rak hann út af lóð­inni.

Ég braut svo ákveðið prinsipp hjá mér með því að fara til Freys og Lilju en þar sagð­ist ég bara vera að biðja um frið og að hann ætti að láta okkur í friði.“ „Þú ert búinn að vera að trufla okkur síðan þú komst, farðu bara!“, seg­ist Viðar hafa sagt við Frey.

Lög­reglan kom að lokum á stað­inn en þá var box­ar­inn far­inn. Hún tók skýrslu af máls­að­ilum en Viðar seg­ist hafa sagt lög­regl­unni að hann vildi bara frið frá ónæði og árásum. „Ég er eng­inn æsinga­maður. Ég vil bara hafa frið eins og var hérna með fyrr­ver­andi nágrann­ann,“ segir Viðar. Hann seg­ist hafa hringt á lög­regl­una eftir helgi til að kæra árás­ina á hann í bílnum, til­raun mann­anna til að kom­ast inn í íbúð sonar hans og hót­an­irnar gagn­vart syn­inum. Viðari var sagt að hringja í næstu viku en hann kveðst vita að ekk­ert muni koma út úr þessu. „Það sem við munum fara fram á hjá rétt­ar­gæslu­manni er að við fáum bætur fyrir hurð­ina, miska­bætur vegna áfalls­ins sem sonur minn varð fyrir og ég veit ekki hvaða kröfu ég geri varð­andi árás­ina á bíl­inn, en mað­ur­inn verður bara kærður og það er örugg­lega ekk­ert gott fyrir bar­daga­mann sem er að keppa að hafa kæru á bak­inu. Við erum ekki að gera þetta til að hefna okkar, við viljum gera eitt­hvað úr árásinni og að fólk fái að vita stað­reynd­irnar. Við tökum ekki þátt í ger­enda­með­virkni,“ segir Viðar að lokum.

Hin hliðin

Freyr Jak­obs­son þver­tekur fyrir frá­sögn Viðars. „Þetta er bara rangt. Í morgun var hringt í mig, Mos­fells­bær, og verið að hóta mér. Það er svona geymslu­kofi hérna í garð­inum, sem er sam­kvæmt samn­ingi sem aðil­inn hér við hlið­ina á mér gerði við fyrri eig­endur af hús­inu mínu. Hann bjó til þetta afsal og allt saman. Nú er hann að segja að það eigi að rífa húsið og fara þannig á bak við samn­inga sína. Þetta er svo fjar­stæðu­kennt.“ Hann segir að Viðar sé stað­ráð­inn í að gera líf hans leið­in­legt.

Varðandi veisl­una segir Freyr að hún hafi verið fjöl­menn og að það hafi komið fyrir að gestir leggðu í einka­bíla­stæði hjá syni Viðars. Hann hafi ekki getað stjórnað því vegna anna við að sinna gest­unum. Hann segir að þegar sonur Viðars hafi komið yfir til að kvarta undan bíla­stæð­inu hafi hann barið ansi hressi­lega á dyr. „Það var fólk í veisl­unni sem er hálf nírætt. Það var bara skelkað, það var eins og það hafi verið keyrt á húsið. Svo jós hann sví­virð­ingum yfir fólk hérna.“ Sagðist Freyr hafa fundið eig­anda bíls­ins og bíll­inn var því næst færður. Svo mætti Vaka seinna um kvöldið vegna ann­ars bíls sem lagt var í stæðið.
„Ég fer út og kann­ast við bíl­inn, það var 18 ára stelpa sem var á bíl móður sinnar. Ég fer og tala við Vöku­mann­inn því stelpu­greyið var bara í losti.“ Freyr seg­ist á þessu augna­bliki hafa gef­ist upp og borgað reikn­ing Vöku og bíll­inn var færður úr stæð­inu. „Ég átti rosa erfitt með að fylgj­ast með því hvort ein­hver væri að leggja í stæðið eða ekki, ég hafði nóg að hugsa um í þess­ari 100 manna veislu.“

Varðandi til­raun veislu­gesta til að kom­ast inn í íbúð sonar Viðars, seg­ist Freyr ekki hafa vitað af neinu slíku fyrr en honum var sagt að lög­reglan væri mætt á svæðið og vildi tala við hann. „Og ég vissi ekk­ert hvað var í gangi. Það sem ég veit er að það urðu orða­skipti þar sem dreng­ur­inn var úti á svölum að ausa sví­virð­ingum yfir fólk og það verður hiti í þessum málum.“ Segir hann þau hjónin hafa verið blá­edrú og að þau hafi rætt við lög­regl­una þegar hún óskaði eftir því. „Þannig að við vorum alveg í topp­standi með það allt saman.“

Hvað snéri að atlögu box­ar­ans dag­inn eftir veisl­una segir Freyr þá frá­sögn Viðars ekki stand­ast skoðun. „Viðar byrjar að taka myndir frá svöl­unum og maður sem var að spjalla við mig og nokkra aðra á plan­inu spyr hann í hvaða til­gangi hann sé að taka myndir. Viðar svarar því engu en segir við mig að ég sé í skíta­málum og svo bara hlær hann.“

Þegar blaða­maður spyr Frey út í það að box­ar­inn hafi hlaupið í átt að Viðari, þegar hann var að bakka út úr stæð­inu segir Freyr það ekki rétt. „Hann ákveður bara að labba til hans og athuga um hvað málið snýst. Og þá botnar hann bíl­inn aftur á bak og það mun­aði bara sentí­metra á að hann tæki hlið­ina af mínum bíl. Og þá opnar hann hurð­ina hjá Viðari og það sem ég heyri hann segja er „heyrðu“ og „hvað er í gangi hérna?“ en ég veit ekki hvernig þau orða­skipti voru almenni­lega. En Viðar verður alveg dýr­vit­laus.“

Freyr segir að box­ar­inn gæti ekki hafa hlaupið að bílnum. „Hann getur ekki hlaupið, hann er með ónýta löpp! Þú getur bara farið í lækna­skýrslur og séð það. Hann er að fara til Sví­þjóðar í þriðju eða fjórðu aðgerð­ina, þannig að hann gat ekk­ert hlaupið að honum. Hann getur ekki einu sinni beygt löpp­ina almenni­lega. Sko, þetta er bara ekki rétt! Viðar er bara í missioni í að gera líf mitt hérna leið­in­legt.“

Freyr segir að á sunnu­dag­inn hafi ungur maður með skegg komið að heim­ili hans, senni­lega í kringum 25 ára ald­ur­inn, og sagt við fjórar vin­konur dóttur hans að líf þeirra yrði gert óbæri­legt hérna. Segir hann mann­inn tengdan Viðari eða börnum hans. Aðspurður segir hann nokkra hafa orðið vitni að þessu.

Blaða­maður Mannlífs spurði Frey út í hót­anir um und­ir­heima­menn­ina en því harð­neitar hann. „Nei, ekki til í dæm­inu! Hvernig leysir það málið? Það leysir ekk­ert málið. Ég er ekki að flytja hingað til að gera allt brjálað í göt­unni sko.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina