Lögreglan handtók í gærkvöld karlmann í miðbæ Reykjavíkur. Sá var grunaður um að hafa ráðist á mann skömmu áður en var hann í annarlegu ástandi samkvæmt dagbók lögreglu. Þar maðurinn var ekki viðræðuhæfur fékk hann gistingu í fangaklefa þar sem hann bíður eftir því að verða yfirheyrður.
Stuttu áður barst lögreglu tilkynning um innbrot í Hafnarfirði. Ekki leið á löngu þar til lögregla hafði hendur í hári þess grunaða en sá gisti einnig bak við lás og slá.
Þjófur í Breiðholti var gómaður í verslun. Var hann látinn laus að loknni yfirheyrslu. Þá barst lögreglu tilkynning um slagsmál í Grafarvogi. Einn maður var handtekinn vegna málsins en var honum sleppt úr haldi eftir að hafa rætt við laganna verði. Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna.































Athugasemdir