Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Skrýtið hve margir á Íslandi hafa þörf fyrir að tala niður fólk sem það þekkir ekki“

„Skrýtið hve margir á Íslandi hafa þörf fyrir að tala niður fólk sem það þekkir ekki“

Ísdrottn­ingin, Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir, hefur verið á milli tann­anna á Íslend­ingum síðan hún var korn­ung. Hún hefur marga fjör­una sopið síðan hún kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið sem fyr­ir­sæta á ung­lings­aldri. Ásdís er nú komin til Íslands, eftir að hafa meira og minna búið erlendis í fjöl­mörg ár, aðal­lega í Búlgaríu. Í kjöl­far alls kyns ævin­týra, verk­efna og við­skipta flutti hún aftur heim í kjöl­far Covid-tíma­bils­ins og er sest hér að í bili. En þó að hún sé komin heim á klak­ann er aug­ljóst að Ásdís er ekki ákveðin í að setj­ast hér alfarið að.

Hún seg­ist aldrei með­vitað hafa gert í því að vera umdeild. Hún telur að það stafi frekar af því að hún segi skoð­anir sínar umbúða­laust og hafi alltaf gert. Hún segir það ein­fald­lega vera hennar stíl og að það sé ekki að fara að breyt­ast í bráð.

„Ég er bara ekki með filter og mér er alveg sama. Ég vil koma til dyr­anna eins og ég er klædd og ég hef alltaf verið þannig. Ef ein­hver þarf að tala illa um mig þá verður bara að hafa það, ég ætla ekki að fara að rit­skoða mig,“ segir hún og er örlítið hugsi yfir því hvers vegna fólk hafi svo mikla þörf á að tala aðra niður.

„Mér hefur alltaf fund­ist skrýtið hve margir á Íslandi hafa þörf fyrir að tala niður fólk sem það þekkir ekki. Kannski er það smæðin, en á Íslandi er að mínu mati of algengt að fólk vilji gera lítið úr þér, alveg sama hvað þú ert dug­leg eða stendur þig vel. Þú færð ekki við­ur­kenn­ingu fyrir þín störf fyrr en þú gerir eitt­hvað erlendis. Þá allt í einu breyt­ist stemm­ingin og ég fann það mjög vel eftir að ég fór að gera góða hluti í öðrum löndum. Ég er ekki að vor­kenna sjálfri mér og veit að það er mjög margt frá­bært fólk hér og ég á að margt fólk sem vill mér vel. En ef þú vekur athygli á Íslandi er mjög algengt að fólk vilji troða ofan á þér og tala þig niður,“ segir Ásdís og bætir við að hún finni mun á kynj­unum.

„Karl­arnir eru meira „líbó“, en íslenskar konur hafa dáldið mikið verið að hafa sterkar skoð­anir á mér og oft nei­kvæðar.“

Viðtalið má lesa í heild sinni í nýju blaði Mannlífs og sjá hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við