Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ásta hótaði að hjóla í dánarbúið: „Þetta er sú allra mesta mannvonska sem ég hef orðið vitni að“

Ásta hótaði að hjóla í dánarbúið: „Þetta er sú allra mesta mannvonska sem ég hef orðið vitni að“

„Þetta er sú allra mesta mann­vonska sem ég hef orðið vitni að og allt í boði Blá­skóga­byggðar með Ástu Stef­áns­dóttur sveit­ar­stjóra í for­svari sem kvittar undir þetta við­bjóðs­lega bréf. Þið megið deila að vild.“

Svo líkur Steinunn Skúla­dóttir færslu sinni á Facebook þar sem hún greinir frá kaldri kveðju Blá­skóga­byggðar eftir að móðir hennar lést fyrir aldur fram. Steinunn segir að ekki hafi liðið mán­uður frá því að móðir hennar lést þar til stjúp­faðir hennar fékk hót­un­ar­bréf frá Blá­skóga­byggð, und­ir­ritað af Ástu Stef­áns­dóttur sveit­ar­stjóra. Steinunn gaf Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að end­ur­birta pistil hennar.

Þar fer Steinunn yfir málið frá a til ö. „Mamma mín Inga Björk og stjúpi minn Jón Þór hafa verið með hjól­hýsi í Blá­skóga­byggð síð­ast­liðin 20 ár. Þau hafa verið dug­leg að byggja upp fal­lega og nota­lega aðstöðu í kringum hjól­hýsið sitt. Börnin þeirra og barna­börn eiga dásam­legar minn­ingar frá sumr­unum þarna með ömmu, afa og okkur for­eldr­unum. Fyrir einu og hálfu ári grein­ist mamma með íll­vígt heila­æxli og strax ljóst að hún ætti ekki mik­inn líf­tíma eftir, nokkrum mán­uðum áður er þeim sagt upp leig­unni á hjól­hýsa­stæð­inu og fara strax af stað við­ræður á milli leigu­taka hjól­hýsa­svæð­is­ins og Blá­skóga­byggðar varð­andi að vinna að lausn þannig að hjól­hýsa­svæðið fái að vera starf­rækt áfram og skilj­an­lega er fólk áfram á svæð­inu á meðan samn­inga­við­ræður standa yfir. Í júlí 2022 er svo tekin sú ákvörðun að hjól­hýsa­svæð­inu yrði lokað!,“ lýsir Steinunn.

Í dag er mán­uður síðan Inga Björk, móðir hennar, lést. Hún var ein­ungis 56 ára. „Þann 22. júlí 2022 deyr mamma ekki nema 56 ára eftir mjög erfið veik­indi sem hafa tekið ofsa­lega á fjöl­skyld­una og sér í lagi mann­inn hennar sem hugs­aði um hana mjög veika fram undir það síð­asta. Hún er svo jörðuð 2 ágúst. Af skilj­an­legum ástæðum hefur stjúpi minn ekki farið austur í sumar til að taka allt niður þar sem bæði allur hans tími fór í að hugsa um mömmu og hann var einnig að vona að hann gæti fengið að hafa hjól­hýsið þarna áfram þar sem þetta var upp­á­halds­stað­ur­inn hennar sem var henni svo kær. Eftir jarð­ar­för­ina þá hefur hann verið langt niðri og ekki treyst sér til að fara austur án mömmu. Þann 18 ágúst fær hann svo ábyrgð­ar­bréf frá Blá­skóga­byggð. Mamma var skráð fyrir hjól­hýs­inu og fær stjúpi minn fyr­ir­mæli um að koma hjól­hýs­inu og pall­inum og öllu af lóð­inni ÞEGAR Í STAÐ! Að öðru leyti yrði leigu­taki (mamma) bor­inn út og gerð krafa í dán­ar­búið hennar fyrir þeim kostn­aði sem af hlýst,“ segir Steinunn.

Stjúp­faðir hennar sá ekki annað í stöð­unni en að fara austur. „Hann fer því austur á föstu­dag­inn og byrjar að rífa allt niður. Allt sem mömmu var kær­ast. Allt líf sem þau voru í sam­ein­ingu búin að byggja þarna upp í 20 ár, tveimur vikum eftir jarð­ar­för­ina hennar. Hann hringir svo í mig bug­aður á laug­ar­dag­inn og seg­ist ekki geta gert þetta einn því þetta sé svo erfitt. Sonur minn fer þá rak­leiðis austur og fer að hjálpa afa sínum að brjóta niður allt sem ömmu hans var kær­ast og allar minn­ingar sem hann hefur átt þarna með ömmu sinni. Hann er 20 ára og hefur komið þarna á hverju ein­asta sumri frá því hann var smá­barn. Hann er svo með afa sínum yfir nótt og heldur áfram á sunnu­deg­inum að rífa niður og þá kemur systir mín og hennar maður og hjálpa til við að rífa allt niður þannig að nú er lítið eftir. Nema að gefa hjól­hýsið því það eru bruna­út­sölur á hjól­hýs­inu þessa dag­ana í boði Blá­skóga­byggðar!,“ segir Steinunn.

Hún segir að Jón Þór hafi verið bug­aður eftir þetta. „Stjúpi minn kom til mín í gær­kvöldi eftir að hafa eitt helg­inni í að rífa niður allar minn­ing­arnar sínar með kon­unni sinni og var bug­aður. Hann átti erfitt þegar hann jarð­aði kon­una sína til 40 ára en að þurfa að rústa öllu sem henni þótti vænt um það var tals­vert erf­ið­ara og ekki hægt að leggja á nokkurn eig­in­mann eða fjöl­skyldu sem er nýbúin að ganga í gegnum svona mik­inn missi. Það hefði ekki verið neitt mál fyrir Ástu sem skrifar undir þetta bréf að hringja í stjúpa minn og athuga hver staðan sé og kannski finna ein­hverja sam­eig­in­lega lausn í stað þess að reka hann út ÞEGAR Í STAÐ og hóta að hjóla í dán­arbú mömmu varð­andi kostnað. Það er ekk­ert mann­legt við þessi vinnu­brögð og ekk­ert nema skepnu­skapur og mann­vonska. Það eru nokkur hjól­hýsi sem hafa frest til ára­móta til að fara af lóð­inni og hefði ekki verið mik­ill skaði fyrir bæj­ar­fé­lagið að veita honum ein­hvern frest í ljósi aðstæðna,“ segir Steinunn og deilir myndum af bréf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við