Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólskuleg líkamsárás leiddi ungan mann til dauða – Framin af 17 ára pilti og 15 ára stúlku

Fólskuleg líkamsárás leiddi ungan mann til dauða – Framin af 17 ára pilti og 15 ára stúlku
Mynd/skjá­skot

Úr dag­bók lög­regl­unnar í Reykja­vík: „Kl. rúm­lega sjö á sunnu­dags­morgun fannst maður liggj­andi í kjall­ara­tröppum baka til við Banka­stræti 14. Reyndist mað­ur­inn lát­inn. Um er að ræða mann, 25-30 ára. Á honum voru áverkar sem ekki er vitað með hvaða hætti hann fékk. RLR rann­sakar nú málið.„

Til­kynn­ingin var birt í Morg­un­blað­inu, þriðju­dag­inn, 5. mars 1991.

Sá látni hét Úlfar og var 28 ára reyk­vík­ingur og skildi eftir sig eina dóttur. Hann starf­aði sem prent­ari og ljós­mynd­ari. Honum var minnst sem list­rænum, vand­virkum og miklum fag­manni. Úlfar hafði verið úti að skemmta sér með félögum sínum í Þjóð­leik­hús­kjall­ar­anum en hafði hug á að finna sér eitt­hvað að borða og haldið ein­sam­all í átt að mið­bænum.

Lögreglan töldu árásina tengjast annarri árás

Fyrr sama kvöld hafi verið ráð­ist að karl­manni að Hverf­is­götu 14 í Reykja­vík. Fórn­ar­lambið taldi að 1-2 menn hafa veist að sér og taldi lög­reglan miklar líkur að árás­ar­menn­irnir væru þeir sömu. Dán­ar­or­sök Úlfars var talin vera af völdum áverka sem hann var með á höfði. Þó ekki hafi verið Ijóst á frum­stigi máls­ins hvar eða með hvaða hætti hann fékk áverk­ana.

Í bak­síðu­frétt DV, þriðju­dag­inn 5. mars 1991 sagði: „ Laust fyrir klukkan þrjú aðfara­nótt sunnu­dags­ins, skömmu áður en síð­ast sást til Úlfars heit­ins, var ráð­ist með ofbeldi á karl­mann í húsa­sundi við Hverf­is­götu 14 og hann rændur. Fórn­ar­lambið telur að 1-2 menn hafi veist aö sér – það liggur þó ekki ljóst fyrir. Skömmu síðar, eða um klukkan 3.15-3.20, fór Úlfar út úr Þjóð­leik­hús­kjall­ar­anum við Hverf­is­götu en hann er örstutt frá fram­an­greindum árás­ar­stað. Kvaddi hann kunn­ingja sína sem töldu hann hafa ætlað að ganga að mið­bænum til að fá sér eitt­hvað að borða. Rann­sókn­ar­lög­reglan telur mögu­leika á að sömu árás­ar­menn­irnir hafi ráð­ist á báða menn­ina. RLR biður alla sem telja sig búa yfir upp­lýs­ingum um þessi mál að hafa sam­band.“

Morðsrán framið af 17 ára pilti og 15 ára stúlku

Veski Úlfars heit­ins fannst nokkurn spöl frá þeim stað þar sem lík hans lá í Banka­stræti. Veskið var pen­inga­laust. Tók lög­reglu­rann­sóknin því mið af að um ráns­morð væri að ræða.

Þann 15. mars eða 12 dögum eftir and­lát Úlfars birt­ist frétt í DV þar sem fram­kemur að lög­reglan telji sig hafa upp­lýst málið og hafi deg­inum áður, eða 14. mars, hand­tekið 17 ára pilt og 15 ára gamla stúlku.

„Karl­maður og kona, sem eru innan við tví­tugt, voru hand­tek­inn í gær grunuð um að hafa átt hlut að máli og orðið völd að dauða manns­ins.

Rann­sókn­ar­lög­reglan tekur ákvörðun í dag um frek­ari fram­gang máls­ins og hvort kraf­ist verði gæslu­varð­halds­úr­skurðar yfir fólk­inu. Eins og fram hefur komið fannst veski Úlfars heit­ins nokkurn spöl frá þeim stað þar sem lík hans lá í Banka­stræti. Veskið var pen­inga­laust. Því tók lög­reglan mið af því við rann­sókn máls­ins að hugs­an­lega hefði verið um ráns­morð að ræða.“

Síðar kom í ljós að stúlkan hafi lokkað mann­inn inn í húsa­sund við Banka­stræti 14 þar sem pilt­ur­inn hafi slegið fórn­ar­lambið með hnúa­járni.

Dómurinn

Um það bil sjö mán­uðum eftir and­lát Úlfars féll dómur yfir ung­menn­unum. Hlaut pilt­ur­inn sex ára dóm en stúlkan, þá orðin 16 ára, þriggja ára dóm. Í umfjöllun DV 15. októ­ber 1991 segir: „ Saka­dómur Hafn­ar­fjarðar hefur dæmt 17 ára pilt í sex ára og fimm mán­aða fang­elsi fyrir að hafa banað Úlfari […] við bak­húsið að Banka­stræti 14 í Reykja­vík og rænt hann aðfara­nótt 3. mars síð­ast­lið­ins. Hann var einnig sak­felldur fyrir að hafa barið og rænt annan mann við Hverf­is­götu sömu nótt. 15 ára stúlka, sem var með honum, var fyrir aðild sína að báðum rán­unum dæmd í 24 mán­aða varð­hald, þar af 21 mánuð skil­orðs­bund­inn.“

Í grein­inni kom jafn­framt fram að: „Pilt­ur­inn við­ur­kenndi að hafa slegið Úlfar þremur þungum höggum í höf­uðið og hafði hann hnúa­járn innan í hönskum sínum. Eftir að fórn­ar­lambið féll við greiddi pilt­ur­inn mann­inn tvö hnefa­högg. […]. Saka­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu að pilt­inum hefðu ekki átt að dylj­ast afleið­ingar gerða sinna með árásinni með hnúa­járn­unum. Hann var því sak­felldur fyrir mann­dráp með svoköll­uðum lík­inda­á­setn­ingi. Stúlkan, sem nú er orðin 16 ára, var ákærð fyrir aðild að morð­inu og einnig árás­ina á mann­inn við Hverf­is­götu. Hún var sýknuð af sak­ar­giftum að beinni aðild að morð­inu en sak­felld fyrir aðild sína að rán­unum. Eftir að Rann­sókn­ar­lög­regla rík­is­ins hand­tók ung­mennin var stúlkunni komið fyrir í for­sjá Barna­vernd­ar­nefndar á ung­linga­heim­ili vegna ald­urs hennar. Hún hefur síðan verið vistuð á sveita­heim­ili. Pilt­ur­inn var fyrst vistaður í gæslu­varð­halds­fang­els­inu í Síðumúla en hefur að und­an­förnu verið í Hegn­ing­ar­hús­inu við Skóla­vörðu­stíg. Til frá­dráttar refs­ingu hans kemur gæslu­varð­halds­vistin sem hófst 15. mars. Máli pilts­ins verður sjálf­krafa áfrýjað til Hæsta­réttar vegna þyngdar refs­ing­ar­innar. Uni hins vegar rík­is­sak­sókn­ari og stúikan sjálf hennar dómi fer hann ekki til Hæsta­réttar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina